{"title":"Allar bækur","description":"","products":[{"product_id":"18th-century-stone-buildings","title":"18th Century Stone Buildings","description":"\u003cp\u003eÁ seinni hluta 18. aldar lét danska stjórnin byggja átta vönduð steinhús á Íslandi, fjögur íbúðarhús fyrir embættismenn sína og fjórar kirkjur. Þau voru teiknuð af fremstu arkitektum Dana og gegna enn mikilvægu hlutverki: Stjórnarráðshúsið í Reykjavík, Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja, Nesstofa við Seltjörn, Hóladómkirkja í Hjaltadal, Landakirkja á Heimaey, Bessastaðastofa og Bessastaðakirkja. Allir þessir staðir - og allar þessar byggingar - eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði. Höfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þýðandi er Anna Yates. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum. Hér er bætt úr brýnni þörf því lítið hefur verið um bækur af þessu tagi á markaðnum, áherslan hefur verið á landið og náttúruna. Bækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku. \u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425802887,"sku":"9789935170811","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Steinhus_ensk_NET.jpeg?v=1451157086"},{"product_id":"50-crazy-things-to-taste-in-iceland","title":"50 crazy things to taste in Iceland","description":"\u003cp\u003e· The stink of Christmas\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e· A lethal bite\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e· The island´s ugliest fish\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e· Ram´s testicles – if you´ve got the balls\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e· Sheep heads – burned and boiled\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e· Ethnic food orgies\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThere ain´t no such thing as wrong food. Sean Stewart Truer words were never spoken, especially when it comes to the unique dishes that dominate Iceland´s food culture. In this third book of the 50 Crazy... series (including 50 Crazy Things To Do In Iceland and 50 Crazy Romantic Things To Do In Iceland), you´ll be introduced to some of the country´s strangest and most challenging foods, as well as many that are just plain delicious.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIn addition to being an enthusiastic gourmand, Snæfríður Ingadóttir is a well-known journalist who´s written countless articles on Iceland´s people and culture. Photographer Þorvaldur Örn Kristmundsson provides the accompanying images to this fascinating and funny taste-tour through the Land of Fire and Ice.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eWhen author, Snæfríður Ingadóttir, is asked about the idea, she says that she always wanted to make a tourist book which was light and entertaining. When she herself is a tourist, she does not want to do what every other tourist does - she personally likes to do what locals do. In her Crazy book series, she points out what is obvious and natural to all Icelanders, but to the guests-eye might seem rather crazy. Lots of crazy stuff can be done in Iceland. \u003c\/p\u003e","brand":"Snæfríður Ingadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425805383,"sku":"9789979560843","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/50_crazy_taste_net.jpeg?v=1451157096"},{"product_id":"andlit-islenskir-listamenn","title":"Andlit - Íslenskir listamenn","description":"\u003cp\u003eHér er á ferðinni ljósmyndabók sem felur í sér mannlýsingar og hefur að geyma 192 ljósmyndir af íslenskum listamönnum. Guðmundur Andri Thorsson skrifar texta við myndir og undirstrikar hina einstöku stemmingu sem bókin býr yfir. Guðmundur Oddur Magnússon skrifar formála þar sem hann líkir Jónatan við Andy Warhol og segir meðal annars: „Bein, hörð birta Jónatans afmarkar fyrirmyndina og togar í hana þannig að hún virðist koma á móti áhorfandanum. Drungaleg lýsing - ekkert bros, litir fölnaðir, eftirsjá og fortíðarhyggja. \/…\/ Þessi skráningaraðferð Jónatans er á háu stigi og nærveran slík að áhorfandinn er tekinn í ferðalag og freistast til að fara á bak við spegilinn, inn í heim hins veruleikans sem er uppfullur af táknum, íkonum sem hafa fest á hvolfi hins innra heims. Það er ekki hægðarleikur að snúa til baka svo sterk er upplifunin. Hugurinn hefur nefnilega hálfa sjónina.“ Jónatan notar samspil ljóss og skugga til að mála sterkar myndir af svipmiklu fólki. Bergsteinn, Fréttablaðið Íslenskir listamenn eru ekki svipmyndir sem fanga eitt augnablik, heldur úthugsuð og þaulunnin myndverk. Jón Kaldal, Fréttatíminn\u003c\/p\u003e","brand":"Jónatan Grétarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425810951,"sku":"9789935418616","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Andlit.kapa.jpeg?v=1451157113"},{"product_id":"arngrimur-apaskott-og-fidlan","title":"Arngrímur apaskott og fiðlan","description":"\u003cp\u003eSérlega falleg myndabók fyrir yngstu kynslóðina. Arngrímur apaskott er hrifnæmur og uppátektarsamur. Hjá honum er lífið endalaust ævintýri!\u003c\/p\u003e","brand":"Kristín Arngrímsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425812103,"sku":"9789935418135","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Arngrimur_apaskott.jpeg?v=1451157116"},{"product_id":"ain","title":"Áin","description":"\u003cp\u003eHjá sumum hafa draumarnir ræst, aðrir fara heim með löskuð hjörtu, en koma þó flestir fljótlega til baka fullir af veiðihug og bjartsýni. Slagæð dalsins, fóstran stóra, sem streymir þung og hæg milli gróðri vafinna bakka, hefur ekki aðeins aðdráttarafl vegna höfðingjanna sem í henni búa, heldur líka vegna umhverfisins sem á vart sinn líka hér á landi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓgleymanleg einstök saga um drottningu laxveiðiánna á Íslandi, prýdd stórkostlegum myndum eftir Einar Fal Ingólfsson, Guðmund frá Miðdal og fleiri laxveiðiáhugamenn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDVD diskur með kvikmynd um sögu nesveiðanna fylgir bókinni. \u003c\/p\u003e","brand":"Bubbi Morthens","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425813639,"sku":"9789935418005","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Ain.jpeg?v=1451157123"},{"product_id":"akall-til-mannkyns","title":"Ákall til mannkyns","description":"\u003cp\u003eÁKALL TIL MANNKYNS – Sjálfbærni, lýðheilsa, bætt loftslag. Um framtíð matvæla og landbúnaðar Á okkar dögum er ræktun og viðhald fjölbreytninnar ekki munaður heldur forsenda þess að við lifum af. Vandana Shiva, hugsuður og baráttukona á sviði sjálfbærrar þróunar, umhverfis- og mannréttinda- mála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHún hélt áhrifamikinn fyrirlestur í Reyjavík þann 29. ágúst 2011. Stefnuyfirlýsing um framtíð matvæla og Stefnuyfirlýsing um loftslagsbreytingar og framtíð matvælaöryggis er heiti á tveimur skýrslum sem birtast í þessari bók og vakið hafa fólk víða um lönd til vistvænni vitundar. Efnið er tekið saman í kjölfar rannsókna sem koma okkur öllum við og er í raun ákall um samstöðu. Það sýnir ekki aðeins hvað farið hefur úrskeiðis í umgengni okkar við jörðina heldur skýrir frá stórkostlegum verkefnum sem gætu bókstaflega bjargað heiminum – ef við leggjumst öll á eitt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVandana Shiva er einn þeirra fræðimanna sem tók saman þessar skýrslur. Hún er heimsþekkt baráttukona á sviði umhverfis- og mannréttindamála, ötull talsmaður lífræns landbúnaðar og einn atkvæðamesti gagnrýnandi erfðabreytinga á nytjaplöntum. Hún hefur beitt sér gegn því að fjölþjóðleg iðnaðarfyrirtæki nái yfirráðum yfir matvælaframleiðslu og vatnsbúskap í heiminum. Einnig hefur hún barist fyrir kvenréttindum og bent á hættuna sem fylgir því að staðbundin þekking glatist vegna hnattrænna áhrifa og sóunar á náttúruauðlindum. Hugsum upp á nýtt …• sjálfbærni • lýðheilsa • grenndarlýðræði • lífrænn landbúnaður • fæðukílómetrar • líffræðilegur fjölbreytileiki … og gerum jörðina að betri stað\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425813959,"sku":"9789935170057","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Akall_til_mannkyns_endurprent.jpeg?v=1451157124"},{"product_id":"atta-steinhus","title":"Átta steinhús","description":"\u003cp\u003eÁ seinni hluta 18. aldar lét danska stjórnin byggja átta vönduð steinhús á Íslandi, fjögur íbúðarhús fyrir embættismenn sína og fjórar kirkjur. Þau voru teiknuð af fremstu arkitektum Dana og gegna enn mikilvægu hlutverki: Stjórnarráðshúsið í Reykjavík, Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja, Nesstofa við Seltjörn, Hóladómkirkja í Hjaltadal, Landakirkja á Heimaey, Bessastaðastofa og Bessastaðakirkja. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425815175,"sku":"9789935170804","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Steinhus_isl_NET.jpeg?v=1451157132"},{"product_id":"a-vit-margbreytileikans-vididalsa-og-fitja-hopid-og-gljufura","title":"Víðidalsá og Fitjá","description":"\u003cp\u003eBókin hefur að geyma veiðilýsingar fyrir Víðidalsá og Fitjá ásamt lýsingu á Hópinu og Gljúfurá. Á sama tíma lýsir hún fjölbreyttri sögu, mannlífi og náttúrufræði í Húnaþingi vestra. Einnig er þar að finna stórskemmtilegar veiðisögur þar sem tekist er á við stórlaxa. Þá lýsir hún fjölskylduveiði í ám og vötnum, frá heiðum til ósa. Einnig skrifa þekktir fiskifræðingar um rannsóknir sínar á vatnasvæðinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin hefur að geyma fjölda ljósmynda sem teknar eru af landsþekktum ljósmyndurum.\u003c\/p\u003e","brand":"Karl G. Friðriksson og Sigríður P. Friðriksdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425815495,"sku":"9789935170743","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Net_Vididalsa.jpeg?v=1451157133"},{"product_id":"borda-bidja-elska","title":"Borða, biðja, elska","description":"\u003cp\u003eElizabeth Gilbert var um þrítugt og líf hennar nákvæmlega eins og það „átti\" að vera. Hún var í góðri vinnu, átti fallegt heimili og mann sem vildi stofna fjölskyldu. Þrátt fyrir það voru einmanaleiki og þunglyndi hennar nánustu félagar. Eftir erfiðan skilnað og eldheitt en stormasamt ástarsamband ákveður Liz að fara út í heim í leit að sjálfri sér. Fyrst liggur leiðin til Ítalíu þar sem hún nýtur þess að borða góðan mat - og mikið af honum. Á Indlandi leggur hún síðan stund á andlega íhugun og finnur innri ró með því að skrúbba steingólf. Að lokum endar Liz ferðalag sitt á Balí í Indónesíu þar sem tannlaus töfralæknir hjálpar henni að öðlast jafnvægi milli holdlegra og andlegra hugðarefna og þá loksins finnur hún hamingjuna. Hún er orðin sú sem hún vill vera. Borða, biðja, elska er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er að mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eElizabeth Gilbert fer með okkur í pílagrímsferð og kryddar hana með þeim húmor, töfrum og innsæi sem aðeins skapast þegar heiðarleg sjálfsskoðun og ritsnilld fara saman. - Jack Kornfield\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað þarf engan flugmið til að leggja upp í andlega ferð sem þessa. Töfrandi og heiðarleg saga sem allir verða að lesa. - Oprah Winfrey\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVefsíða Gilbert: http:\/\/www.elizabethgilbert.com\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLofuð er sjálfstætt framhald af Borða, biðja, elska\u003c\/p\u003e","brand":"Elizabeth Gilbert","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425822855,"sku":"9789935418364","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Borda_bidja_kapa_NY.jpeg?v=1451157141"},{"product_id":"brekkan","title":"Brekkan","description":"\u003cp\u003eBrekkan er frumraun norska höfundarins Carls Frode Tiller. Hún vakti mikla athygli og vann til fjölmargra verðlauna. Leikgerð sögunnar var sett upp í norska þjóðleikhúsinu árið 2004 og hlaut verkið fádæma vinsældir. Kristian Guttesen þýddi, en þýðingin var tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna 2007.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„En sensasjonell debut“ – Frumraun á heimsmælikvarða! Ida Berntsen - Dagbladet, Noregi. „En fantastisk roman“ – Stórkostlegur skáldskapur! Lars Bjødstrup - Kommakongen.dk, Danmörku. Carl Frode Tiller er upprennandi stjarna norskra bókmennta. - Jón Atli Jónasson „Her pyntes ikke på noget. Romanen er klar og præcis, sproget formidabelt.“ – Hér er ekkert verið að skreyta eða hlaða um of … sagan er afburða vel skrifuð og hnitmiðuð. Orðfærið er beitt og ógnvekjandi. Gitte S. Larsen - Kirkebladet, Danmörku.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425823303,"sku":"768886","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Brekkan.jpeg?v=1451157145"},{"product_id":"candida-sveppasyking","title":"Candida sveppasýking","description":"\u003cp\u003eHér fjalla Hallgrímur Þ. Magnússon, læknir, og Guðrún G. Bergmann, höfundur sjálfræktarbóka, á einfaldan og auðskiljanlegan hátt um það hvað candida sveppasýking er, helstu einkenni, hversu skaðleg hún geti verið líkamanum og hvernig hægt sé að öðlast góða heilsu á ný. Bæði hafa þau persónulega reynslu af þessum kvilla, en líka víðtæka fagþekkingu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHallgrímur Þ. Magnúson var sérfræðingur í deyfingar- og svæfingalækningum, auk þess sem hann lagði stund á kínverskar nálastungulækningar. Hann var einstaklega fróður um innihaldsefni fæðunnar og þau áhrif sem fæðan hefur á líkamsstarfemina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún G. Bergmann hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsurækt og einnig þýtt bækur um sömu málefni. Hún hefur látið mikið til sín taka í baráttu fyrir “grænum” lífsstíl og bættri umgengni við náttúruna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Candida er fjallað um fæðusamsetningu, á hvaða tíma sólarhrings helstu líffæri okkar starfa, hvernig best sé að takast á við breyttan lífsstíl, og margt fleira sem vekur okkur til vitundar um þá staðreynd að við sjálf getum stórlega bætt líðan okkar ef við veljum að borða hollari mat, þekkja líkamsstarfsemina betur og lifa heilbrigðu lífi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi bók kom upphaflega út árið 1995 og var svo endurprentuð 1997 og 1999. Vegna mikillar eftirspurnar er hún nú gefin út aftur en í þetta skipti betrumbætt og endurskrifuð í ljósi ýmissa nýrra rannsókna um þennan algenga en leynda kvilla. \u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún G. Bergmann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425824583,"sku":"9789935418630","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Candida.jpeg?v=1451157149"},{"product_id":"carpe-diem","title":"Carpe diem","description":"\u003cp\u003e„Ástin er flókið fyrirbæri. Að vera í 10. bekk er áskorun útaf fyrir sig. Að eiga vonlausa foreldra sökkar feitt.“ Carpe Diem er eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur og Kristjönu Maríu Kristjánsdóttur. Birna er ný í skólanum og hálfutanveltu. Heimilislífið er ekki upp á sitt besta, enda á móðir hennar við ýmis vandamál að stríða og föður sinn hefur Birna hvorki séð né heyrt í mörg ár.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrirmyndarunglingurinn Hallgrímur æfir fótbolta og spilar á gítar. Hann á samheldna fjölskyldu og hefur allt til alls. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn eiga þau margt sameiginlegt. Inn í söguna fléttast samskipti við skólafélagana og fjölskylduátök að ógleymdri ástinni sem aldrei er langt undan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyrún Ýr Tryggvadóttir hefur áður sent frá sér þrjár skáldsögur hjá Sölku Hvar er systir mín (2008), Fimmta barnið (2009) og Ómynd, en eru hinar síðari tvær sjálfstætt framhald. Þetta er fyrsta skáldsaga Kristjönu Maríu en hún hefur samið þrjú leikrit sem sett hafa verið upp með unglingum víða um land. Kristjana María er grunnskólakennari á unglingastigi og hefur starfað með ungu fólki á ýmsum sviðum. \u003c\/p\u003e","brand":"Eyrún Ýr Tryggvadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425825159,"sku":"9789935170019","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Carpe_Diem_f_net_stor.jpeg?v=1451157150"},{"product_id":"dagbok-kameljonsins","title":"Dagbók kameljónsins","description":"\u003cp\u003eMeð því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚr ritdómi Úlfhildar Dagsdóttur á bokmenntir.is Bókin er gefin út sem skáldsaga, þrátt fyrir að æviskrifin séu áberandi þáttur. Ljósmyndir og myndefni leika stóran þátt í verkinu og skapa enn annan áhugaverða flötinn á þessari samþáttun minninga og skáldskapar, en ekki er betur hægt að sjá en að myndirnar sýni höfund á unga aldri.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSjálf hönnun bókarinnar undirstrikar svo enn viðfangsefnið, en í útliti minnir bókin á lúna dagbók og sumar síðurnar eru línustrikaðar, auk þess sem handskrifuð textabrot birtast meðal teikninga og skyssa. Þessi áferð öll og það hvernig hún styður við innihaldið er augljóslega framhald af vinnu Birgittu með netið sem miðil sem hún yfirfærir á bókina, það er, ekki netið sjálft, heldur áhersluna á miðilinn, það hvernig netið myndar ramma utanum ljóðin. Á sama hátt er bókin öll einskonar bókverk, allt frá ytri hönnun til framsetningar textanna til viðfangsefnis sögunnar. \u003c\/p\u003e","brand":"Birgitta Jónsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425826119,"sku":"9979973300","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/dagbokkameljonsins.jpeg?v=1451157154"},{"product_id":"d-vitamin-fjorefni-solarljossins","title":"D-vítamín – fjörefni sólarljóssins","description":"\u003cp\u003eD-vítamín er ekki dæmigert fjörefni. Við fáum ekki alltaf nægilegt magn þess úr fæðunni, enda verður það fyrst og fremst til fyrir áhrif sólarljóssins á húðina. Ef við njótum ekki nægilega mikillar sólar geta fæðubótarefni komið að gagni. Allar frumur, vefir og líffæri mannslíkamans eru búin viðtökum fyrir D-vítamín og þarfnast þess til að framkvæma ýmsar lífsnauðsynlegar aðgerðir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eD-vítamín er nauðsynlegt fyrir heilbrigt taugakerfi, heila, hjarta og æðakerfi. Það er einnig nauðsynlegt fyrir húðina, beinin, sjónina og heyrnina – svo nokkuð sé nefnt og það ver okkur jafnframt fyrir alvarlegum sjúkdómum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEf D-vítamínbúskapur líkamans er góður getum við treyst því að verða heilsuhraustari og ánægðari með lífið. Þessi bók er full af fróðleik um gagnsemi D-vítamíns, áhrif þess á líkamsstarfssemina, hvaða vandamál geta skapast við skort á því og hvernig hægt er að bæta heilsuna með því að bæta D-vítamínbúskapinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundurinn; Zoltan P. Rona útskrifaðist frá McGill Læknaháskólanum og er með meistaragráðu í lífefnafræði og læknisfræðilegri næringarfræði frá Háskólanum í Bridgeport í Connecticut. Hann er forseti Canadian Holistic Medical Association og er höfundur metsölubóka um heilsu og næringu en er auk þess læknisfræðilegur ritstjóri Encyclopedia of Natural Healing sem hlotið hefur Benjamin Franklin-verðlaunin (1998).\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425828615,"sku":"9789935171009","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/D_vitamin_net.jpeg?v=1451157165"},{"product_id":"eg-skal-kveda-um-eina-thig-alla-mina-daga-astarljod-pals-olafssonar-innbundin","title":"Eg skal kveða um eina þig alla mína daga - ástarljóð Páls Ólafssonar","description":"\u003cp\u003eEftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Ástarljóðin eru fyrst og síðast skáldleg tilfinningatjáning en í tímaröð mynda þau jafnframt sögu sem einnig er skýrð með stuttum lesköflum. List Páls er borin uppi af eldi hjartans, hröðum æðaslætti og óvenju léttvængjuðum orðum. Kvæðin grípa okkur enn fastari tökum þegar þau, eitt af öðru, svipta hulunni af ástarsögu þeirra Páls og Ragnhildar Björnsdóttur. „Mín kvæði eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí,“ skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e[Fyrst satt eg ekki segi]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrst satt eg ekki segi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003esvo er best eg þegi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003een eg get ekki þagað\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eaf því hjartað dagað\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehefur uppi hjá þér\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eog hleypur aldrei frá þér.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað að nátttrölli orðið er\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eástin mín kær, í faðmi þér.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e[Ástríku augun þín]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁstríku augun þín eilífðar stúlkan mín rændu mig ró.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOfin með æðum blá eins hvít og mjöll að sjá mundin þín mjúk og smá mig að sér dró.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHvíldi´ eg við heilagt brjóst, hjarta þitt fann ég slóst, mín hjartans mey.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEftir þann ástarfund eg man þig hverja stund, uns sé þig sætan blund sofna ég ei.\u003c\/p\u003e","brand":"Páll Ólafsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425829383,"sku":"9789979650317","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eg_skal_kveda_um_eina_thig.jpeg?v=1451157169"},{"product_id":"einn-plus-einn","title":"Einn plús einn","description":"\u003cp\u003eÓvænt ástarsaga sem kemur skemmtilega á óvart. Einstæð móðir Jess, einstæð tveggja barna móðir í tveimur störfum, gerir sitt besta dag eftir dag. En það getur verið erfitt að berjast endalaust upp á eigin spýtur og stundum þegar öll sund virðast lokuð tekur fólk vafasama áhættu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinstök fjölskylda Tanza, hin hæfileikaríka en sérstaka dóttir Jess, er snillingur að fást við tölur, en án fjárhagsaðstoðar mun hún aldrei fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Og Nicky, stjúpsonur Jess, er að bugast undan einelti. Stundum líður Jess eins og það sé engin von.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓkunnugur milljónamæringur, maður að nafni Ed Nicholls flækist óvænt inn í líf Jess en hann á meira en nóg með sín eigin vandamál á ýmsum vígstöðvum. Skyldi honum nú loks takast að gera eitthvað rétt?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓvænt ástarsaga Einn plús einn er hrífandi og ómótstæðileg ástarsaga um tvær ráðvilltar sálir sem hittast við óvenjulegar aðstæður. Þetta er þriðja bókin á íslensku eftir Jojo Moyes, þennan vinsæla metsöluhöfund.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHerdís Magnea Hübner íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425830023,"sku":"9789935171511","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Einn_plus_einn_NET.jpeg?v=1451157172"},{"product_id":"eliasarbok","title":"Elíasarbók","description":"\u003cp\u003eKúnstugt væri … að safna saman í eitt handrit ýmsum þeim yrkingum sem hrotið hafa úr penna manns fyrr og síðar … það væri andskotalaust af minni hálfu eftir að ég er dauður … Flest eru þetta hálfkæringsvísur, paródíur og útúrsnúningar, en sumt líka háalvarlegt. Elías Mar (1924-2007)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elíasar Mar. Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bókmenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins. Mörkin milli raunveruleika og skáldskapar eru stundum óskýr en sögusviðið, hvort sem það er Reykjavík eða borg úti í heimi, stendur lesanda ljóslifandi fyrir sjónum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePersónurnar eru margar ógleymanlegar, þær spretta fram í fjölbreytileika sínum og auðga safn íslenskra mannlýsinga. Endurminningar, skáldastælingar, ástarsögur og ljóð, mannlýsingar, háðkvæði og heimspeki; hvar sem borið er niður leiftrar textinn af einskærri sköpunargleði og Elíasi sjálfum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorsteinn Antonsson tók saman.\u003c\/p\u003e","brand":"Elías Mar","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425831303,"sku":"9789935170217","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eliasarbok.jpeg?v=1451157182"},{"product_id":"eyru-busters","title":"Eyru Busters","description":"\u003cp\u003eÁrum saman hefur Eva hlúð að rósunum sínum, hún veit af reynslu að sambandið við blómin er mun auðveldara en tengslin við fjölskylduna. Á miðjum aldri fær hún dagbók að gjöf og finnur sig knúna til að skrifa um veröld sem hún hefur lagt sig fram um að gleyma: Um bernskuna hjá fallegri en sjálfhverfri móður sem gerði líf hennar að helvíti. Eva er aðeins sjö ára þegar hún tekur ákvörðun. Hún ætlar sér að lifa af. Stríðið innan veggja heimilisins krefst herkænsku og skipulagningar og öll uppvaxtarárin stundar Eva markvissa þjálfun fyrir lokaorrustuna. Meðal annars þarf hún að sigrast á hræðslunni við Buster sem að lokum er þó sá sem alltaf hlustar. Hún kynnist ástinni sextán ára gömul og öðlast í kjölfarið meiri trú á hið góða. En kringumstæðurnar haga því þannig að hún getur ekki flúið ákvörðun sína frá barnæsku. Nú, fjörutíu árum síðar, virðist allt ætla að komast upp fyrir einskæra tilviljun. Gömul sár eru rifin upp og hið sama gildir um rósirnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaria Ernestam er ein áhugaverðasta og virtasta sænska skáldkona nútímans. Stíll hennar þykir með eindæmum sérstakur og er jafnvel til orðatiltæki meðal sænskra blaðamanna og gagnrýnenda en þeir segja að stíllinn sé „ernestamískur” (Ernestamian), en þá er átt við að stíllinn sé alvarlegur með svörtum humor í bland.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyru Busters hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er þegar búið að selja kvikmyndaréttinn að sögunni og einnig að fyrstu sögunni, Caipirinha med Döden.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTungutak Ernestam er ljóðrænt, óheflað, myrkt og leiftrandi fagurt. Uppsala nya tidning\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur sýnir slíkt öryggi í stíl og byggingu að jaðrar við fullkomnun. Dagens nyheter\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e...dásamleg eins og dökkt súkkulaði. Nerikes allehanda\u003c\/p\u003e","brand":"Maria Ernestam","offers":[{"title":"Kilja","offer_id":12425832647,"sku":"9789935418487","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/EyruBursters.jpeg?v=1451157190"},{"product_id":"eg-laedist-framhja-oxi","title":"Ég læðist framhjá öxi","description":"\u003cp\u003eLýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda áratugnum. Sjónarhornið er hennar og lesandi fylgist með þegar hún upplifir ljúfsár tímamót æsku og unglingsára. Systkinin eru sjö og fjölskyldan þykir „óvenjuleg“ ... hefur ekki mikið umleikis, faðirinn atvinnulaus sveimhugi en móðirin píanóleikari með brostnar vonir. Stúlkan hefur mikið og frjótt ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga sér dekkri hlið ... Hún skynjar lífið frekar en hún skilji það og þannig fær lesandi nýtt og ferskt sjónarhorn á fjölskyldulíf, ást, umhyggju, drauma og metnað, og ýmislegt annað sem tekst á í huga fólks frá degi til dags. Ég læðist framhjá öxi lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af ... þangað til hún skilur í stað þess að skynja ... þangað til hún fullorðnast.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHjalti Rögnvaldsson íslenskaði. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2000.\u003c\/p\u003e","brand":"Beate Grimsrud","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425833991,"sku":"9789935170187","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eg_laedist_framhja_oxi_stor.jpeg?v=1451157197"},{"product_id":"eg-skal-vera-dugleg","title":"Ég skal vera dugleg","description":"\u003cp\u003eÁ einlægan hátt lýsir Lovísa María líðan sinni innan veggja sjúkrahússins og þeim heimi sem þar var, heimi sem einkenndist jafnt af æðruleysi og örvæntingu – sorgum og sigrum. Hún segir frá söknuðinum, framandleikanum og kynnum sínum af börnum og gömlu fólki sem hún tengdist órjúfanlegum böndum. Sumir náðu sér og kvöddu með bros á vör – aðrir kvöddu þetta líf. Lóa Maja fékk bót meina sinna en gleymir aldrei Tóta og öllum hinum sem kenndu henni að meta hinar margvíslegu hliðar mannlífsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni eru ljósmyndir frá æskuárum höfundarins og teikningar eftir systur hennar, Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur.\u003c\/p\u003e","brand":"Lovísa María Sigurgeirsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425834631,"sku":"9789979650768","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eg_skal_vera_dugleg.jpeg?v=1451157199"},{"product_id":"fangarnir-i-trenu","title":"Fangarnir í trénu","description":"\u003cp\u003eÁrið 2009 kom út fyrsta bók Hörpu Dísar, Galdrasteinninn, og er Fangarnir í trénu sjálfstætt framhald þeirrar bókar en Harpa var einungis 16 ára þegar Galdrasteinninn kom út.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErla er að undirbúa boð heima hjá sér þegar hún er skyndilega hrifin til Álfheima. Hún kemst að því að vinum hennar, konungsbörnunum, er haldið föngnum af Völmundi galdrakarli og svartdvergunum hans í álagaskóginum í Furudal og hún ein getur bjargað þeim. Í skóginum eignast Erla sérstaka en góða vini sem hjálpa henni og hún fær einnig óvænta aðstoð frá lærisveini Völmundar. En þó að Erlu takist að frelsa vini sína er aðeins hálfur sigur unninn því leiðin til baka liggur um þverhnípta kletta, fjöll og dali og yfir Vonleysisá. Ekki er heldur víst að svartdvergarnir leyfi þeim að sleppa svo auðveldlega ef þeir skjóta upp kollinum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTeikningar: Þórir Karl Bragason Celin\u003c\/p\u003e","brand":"Harpa Dís Hákonardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425834759,"sku":"9789935170156","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fangarnir_i_trenu.jpeg?v=1451157200"},{"product_id":"ferill-til-frama-aevisaga-bjorgvins-gudmundssonar-tonskalds","title":"Ferill til frama - Ævisaga Björgvins Guðmundssonar tónskálds","description":"\u003cp\u003eHér segir frá einlægum og óbrigðulum baráttuvilja sem bar Björgvin áfram til þeirra miklu afreka á kjörsviði sínu, tónlistinni, sem hann óneitanlega vann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓskólagenginn í list sinni samdi hann flest sinna verka og þar á meðal fjögur af fimm hinna miklu kórverka sinna sem eru að umfangi meiri og að mörgu glæsilegri en það sem aðrir íslenskir tónsmiðir hafa eftirlátið þjóð sinni. Nafn hans má ekki falla í gleymskunnar dá.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFerill hans og afrek eru hvatning sem hverri nýrri kynslóð er nauðsyn til átaka og til sóknar á hvaða sviði sem er, landinu sem það byggir, til framfara go heilla um ókomnar aldir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er rituð í tilefni af því að 120 ár eru liðin frá fæðingu Björgvins. Hann fæddist á Rjúpnafelli í Vopnafirði 26. apríl 1891 og lést á Akureyri 4. janúar 1961, svo að hálf öld er liðin frá andláti hans. Jafnframt eru 70 ár síðan Björgvin var ráðinn sem söngkennari við Barnaskóla Akureyrar og Menntaskólans á Akureyri 1931. Líkt og fram kemur í formála bókarinnar sem var gefin út árið 2011„því fullt tilefni til að vera sérstakt hátíðarár Björgvini til heiðurs.“ Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA styrkti útgáfu þessarar bókar. Útgefandi er Ásprent Stíll ehf., Akureyri og Salka sér um dreifingu á höfuðborgarsvæðinu.\u003c\/p\u003e","brand":"Haukur Ágústsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425836551,"sku":"9789979709107","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Ferill_til_frama.jpeg?v=1451157207"},{"product_id":"fiskur-fyrir-lifid","title":"FISKUR! fyrir lífið","description":"\u003cp\u003eÞessi áhrifaríka dæmisaga bendir á hvernig okkur getur liðið betur heima og með fjölskyldunni með því að ræða málin skipulega og af einlægni. Ef við tökum sameiginlegar ákvarðanir og ræðum vanda sem upp kemur heima, í skóla og á vinnustað dregur úr streitu og samskiptin verða ánægjulegri. Milljónir manna hafa notfært sér hugmyndafræði bókarinnar FISKUR! til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur. FISKUR! fyrir lífið beinir sjónum að einkalífinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar um FISK! hafa selst í milljónum eintaka víða um heim og setið á metsölulistum. Þúsundir virtra fyrirtækja nýta sér þessa hugmyndafræði sem hefur aukið bjartsýni, hugrekki og árangur heima og á vinnustað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigríður Á. Ásgrímsdóttir þýddi.\u003c\/p\u003e","brand":"Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425837255,"sku":"9789935418524","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fiskur-fyrir-lifid_NET.jpeg?v=1451157212"},{"product_id":"fiskur-kilja","title":"Fiskur - KILJA ný","description":"Boðskapur Fisksins! er hagnýtur öllum starfs- og iðngreinum, enda auðskilinn og hnitmiðaður. Þessi gríðarvinsæla bók höfðar jafnt til stjórnenda og starfsmanna og er þekkt fyrir að kveikja neista að vinnugleði á ánægju á vinnustað. „Hér er á ferðinni fiskisaga sem flýgur! Hún sýnir fram á hvernig hægt er að njóta vinnunnar jafnt sem lífsins með breyttu viðhorfi. Bíttu á krókinn. - Spencer Johnson, höfundur bókarinnar Hver tók ostinn minn? og meðhöfundur The One Minute Manager. „Hugmyndafræðin Fiskur! er náttúrlega bara hrein snilld í einstökum einfaldleika sínum. Hún er sett í þannig búning að það er ekki hægt annað en að tileinka sér meginatriðin fjögur sem nýtast frábærlega til aukins árangurs, gleði og bættra samskipta, jafnt í vinnu og einkalífi. Er hægt að biðja um meira? - Herdís Pála Pálsdóttir, fræðslustjóri Íslandsbanka og þýðandi bókarinnar Páfugl í Mörgæsalandi.","brand":"Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425837767,"sku":"9789979650386","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fiskur_22c99424-384b-463f-b6fa-69e9d8aafdd7.jpeg?v=1451157214"},{"product_id":"fleiri-skyndibitar-fyrir-salina","title":"Fleiri skyndibitar fyrir sálina","description":"\u003cp\u003e„Hugsanir eru til alls fyrstar og þær skapa þann raunveruleika sem við lifum í. Þess vegna er svo nauðsynlegt að hafa stjórn á þeim og láta þær ekki hlaupa með sig í gönur. - Við erum máttugri en við höldum, við þurfum bara að taka stjórnina og njóta lífsins. Leiðin til máttarins er ögrandi og skemmtileg í senn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari bók hrífur höfundur lesandann með sér og nær að vekja með honum hugrenningar sem færa hann nær takmarkinu, það er að breyta hugsanamynstrinu til hins betra og búa sér þannig til betri heim.\u003c\/p\u003e","brand":"Barbara Berger","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425839111,"sku":"9979768371","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fleiri-skynditar.jpeg?v=1451157218"},{"product_id":"focus-auf-island","title":"Focus auf Island","description":"\u003cp\u003eFocus auf Island er á þýsku og er markvisst skrifuð fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um náttúru og landslag Ísland. Rafn hefur tekið íslenskar landslagsmyndir síðan 1955 og þær prýða allt frá bæklingum, póstkortum, dagatölum og frímerkjum. Árið 1998 vann hann sér til frægðar að 32 myndir eftir hann skreyttu kaffirjóma-fernur sem dreifðar voru á flugvöllum, hótelum og veitingastöðum vítt og breitt um Evrópu. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar bæði hérlendis og erlendis og unnið til verðlauna í ljósmyndakeppnum. Ari Trausti ritar texta við allar myndirnar og reynir að þýða flest örnefni og útskýra söguleg og landfræðileg merkilegheit viðkomandi staðar. Svona ferðast þeir mátar hringinn í kringum og að afkimum Íslands og varla er til sú þúfa sem ekki er nafngreind.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFotos: Rafn Hafnfjörð Text: Ari Trausti Guðmundsson Der umfassende Landesführer erläutert das Wesentliche der Geschichte, Natur und Geologie aller Landesteile und gibt Informationen zu den möglichen Aktivitäten. Focus auf Island hilft bei der Wahl: • Wohin zu fahren • Was zu erforschen Focus auf Island enthält: • Straßenkarte und Ortsplan • Erklärungen der Ortsnamen • 600 qualitative Fotos • Informativen Text • Index Eine wertvolle Erinnerung an eine unvergessliche Reise. Rafn Hafnfjörð (1928 -2011) war schon seit 1955 in Island als Fotograf tätig. Seine Fotos sind in zahlreichen Reisebroschüren, auf Postkarten, Kalendern, Briefmarken und Webseiten erschienen. 1998 schmückten 32 Fotos die Verpackungen von Kaffeesahne, die in 20 Millionen Exemplaren auf Flughäfen, in Hotels und Restaurants in ganz Europa verteilt wurden. Im Jahre 2008 wurden 36 Fotos als Motiv für ein Memory-Spiel von Ravensburg auserwählt. Rafn Hafnfjörð legte in seiner fotografischen Arbeit besonderen Schwerpunkt auf Landschaft und Freizeitaktivitäten wie Angeln. Der isländische Pavillion auf der Weltausstellung in Montreal 1967 war mit Fotos von Rafn Hafnfjörð dekoriert. Seine Fotografien haben an zahlreichen Ausstellungen im Ausland Beachtung gefunden. Im Jahre 1979 stellte er seine fotografische Arbeit in einer privaten Ausstellung in der Kunstgalerie von Reykjavík aus und im Jahre 2004 im Kulturzentrum Hafnarborg in Hafnarfjörður. 1990 wurde er mit dem ersten Preis für die beste fotografische Islandwerbung ausgezeichnet. Der Wettbewerb war vom Isländischen Fremdenverkehrsamt in Zusammenarbeit mit dem Europäischen Tourismusverband ausgeschrieben worden. Ari Trausti Guðmundsson (geb. 1948 in Reykjavík) hat über 20 Büchertitel über Geologie, Vulkanologie, Astronomie, Umweltschutz und Bergwandern geschrieben. Väterlicherseits ist er isländischer Abstammung und mütterlicherseits Deutsch-Österreicher. Seine Ausbildung als Geophysiker hat er in Norwegen und Island absolviert. In Island ist Ari Trausti nicht nur als Schriftsteller, sondern auch aus Radiound Fernsehsendungen bekannt. Er ist ein bekannter Bergsteiger, hat Exkursionen in die Arktik unternommen und ist Mitglied im Explorer Club. Er hat zu zahlreichen wissenschaftlichen Ausstellungen Beitrag geleistet. Ari Trausti hat seit 1970 ebenfalls Gedichte und Kurzgeschichten geschrieben, die in Zeitschriften und Anthologien veröffentlicht wurden. Im Jahre 2002 wurde er mit dem Laxness Literaturpreis für seine Kurzgeschichtensammlung Vegalínur ausgezeichnet. Drei Gedichtsbände erschienen 2004, 2006 und 2008 und der Roman Land þagnarinnar im Jahre 2007. Ari Trausti erhielt 1998 den Aurelio Pecei Preis (Italien), 1999 den Ehrenliteraturpreis für Sachbücher der isländischen Bibliotheken und wurde 2001 für den Isländischen Literaturpreis nominiert. Im Jahre 2007 wurde er mit dem Preis des Isländischen Forschungsinstitutes (Rannís) ür seine Öffentlichkeitsarbeit im Dienste der Wissenschaft ausgezeichnet.\u003c\/p\u003e","brand":"Ari Trausti Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425840007,"sku":"9789935170453","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Focus-thyskaNET.jpeg?v=1451157221"},{"product_id":"fyrst-eg-gat-haett-getur-thu-thad-lika","title":"Fyrst ég gat hætt getur þú það","description":"\u003cp\u003eValgeir Skagfjörð, leikari og fyrrum stórreykingamaður, deilir hér með lesendum reynslu sinni af því að hætta reykingum fyrir fullt og allt. Ýmsir kvillar voru farnir að hrjá hann sem hann tengdi við flensu, ofþreytu, rangt mataræði, stress og fleira í þeim dúr. En þegar maður á besta aldri hefur þjáðst af flensu og ofþreytueinkennum í nokkur ár er kannski kominn tími til að hugsa sinn gang.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAðferðir Valgeirs hrista upp í okkur og breyta hugarfarinu þannig að við tökum sjálf þá ákvörðun að hætta – og stöndum við hana. Þetta er persónuleg og áhrifarík bók fyrir alla þá sem vilja hætta að reykja og eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum. Allir geta hætt að reykja og það þarf ekki að vera erfitt! Þannig eru meginskilaboðin í þessari gagnmerku bók. Vegurinn að markinu er upplýstur og bjartur. Valgeir Skagfjörð er brautryðjandi í jákvæðri nálgun á því að hætta að reykja.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg hef áratuga reynslu af vinnu með þeim sem vilja drepa í og mín skoðun er sú að aðferðafræðin sem Valgeir beitir sé mikilvæg viðbót við það sem annars er í boði. Maður fær virkilega á tilfinninguna að reyklaust líf sé ekki fórn heldur frelsun. Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓtrúlega skemmtileg bók þar sem reykingafólk fær tækifæri til að sjá sig í hlutverki fíflsins – og hlýtur að hætta að reykja í eitt skipti fyrir öll. Súsanna Svavarsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfundur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEins og flestir reykingamenn var ég sífellt að hætta að reykja. Mér tókst hins vegar aldrei að standa við ákvörðunina fyrr en ég fékk vopn sem dugðu til að sigrast á hinum ótrúlegu blekkingum nikótínfíknarinnar. Þau fékk ég hjá Valgeiri Skagfjörð og þau er að finna í þessari stórskemmtilegu bók. Eyþór Gunnarsson, tónlistarmaður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er stórfróðleg og skemmtileg bók. Hún logar á milli fingranna og ég er viss um að hún getur slökkt í stærri stubbum en mér. Einar Már Guðmundsson, rithöfundur\u003c\/p\u003e","brand":"Valgeir Skagfjörð","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425845063,"sku":"9789935171177","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fyrst_eg_gat_kapan.jpeg?v=1451157231"},{"product_id":"faedubyltingin","title":"Fæðubyltingin","description":"\u003cp\u003eSólveig losnaði við 168 kíló. Kennet gat hætt að nota tíu lyf af tólf sem hann hafði þurft að taka daglega. Barn sem þjáðist af alvarlegri flogaveiki hætti að fá köst. Tilfellum sem þessum fjölgar jafnt og þétt. Síðustu áratugi hafa ráðleggingar um heilnæmt mataræði einkennst af efasemdum um hollustu fitu í matvælum. Margir hafa því sneitt hjá henni sem mest þeir mega en hafa hvorki orðið heilbrigðari né grennri. Hér rekur höfundur slóð helstu fæðukenninga sem við höfum fetað í átt til betri heilsu, allt frá upphafi vega. Hann mælir sérstaklega með ákveðnu mataræði sem hefur loksins aftur fengið uppreisn æru eftir að hafa dvalið í skugga fituhræðslunnar um langa hríð. Mataræði breytir nú lífi fólks á umtalsverðan hátt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eANDREAS EENFELDT heldur úti einu stærsta og vinsælasta heilsubloggi Svíþjóðar, www.kostdoktorn.se, sem fær yfir fimmtíu þúsund heimsóknir á degi hverjum. Í Fæðubyltingunni hefur hann tekið saman fróðleik um „góð“ kolvetni og fituríkt fæði. Hann svarar líka algengum spurningum, gefur ráð sem virka og bendir á hugmyndir að uppskriftum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAndreas Eenfeldt er ungur sænskur læknir, þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og tala tæpitungulaust. Afraksturinn er stórskemmtileg og rökföst metsölubók sem vakið hefur athygli víða um heim. Þetta er sannkölluð fæðubylting – viltu vera með? Vísindalega rökstudd bók, skrifuð af lækni sem hefur sjálfur reynslu af því að vinna með of þungum einstaklingum. – Fredrik Nyström, prófessor í lyflækningum\u003c\/p\u003e","brand":"Andreas Eenfeldt","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425845959,"sku":"9789935171207","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Faedubyltingin.jpeg?v=1451157234"},{"product_id":"grilladu-madur","title":"Grillaðu maður","description":"\u003cp\u003eÍ bókinni eru uppskriftir að gómsætum grillréttum sem auðvelt er að matreiða á gasgrilli eða kolagrilli. Þær gera hvaða karlmanni sem er kleift að elda frábærar máltíðir úr lambakjöti, nautakjöti, kjúklingum, fiski, humri, hamborgurum og grænmeti svo eitthvað sé nefnt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú lærir að heilla elskuna þína og vinahópinn upp úr skónum með ekta matseld við hvers kyns tækifæri - sumar sem vetur - heima, í sveitinni, í veiðiferðinni, við húsvagninn ... alls staðar þar sem grill er við höndina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin opnar þér nýjan heim og veitir þér áræði til að bjóða til grillveislu með öryggið uppmálað. Þínar grillveislur verða framvegis með stæl! Alvöru grillbók fyrir alvöru karlmenn! \u003c\/p\u003e","brand":"Thomas Möller","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425849223,"sku":"9789979650898","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Grilladu_madur.jpeg?v=1451157249"},{"product_id":"graent-graent-og-meira-graent","title":"Grænt, grænt og meira grænt","description":"\u003cp\u003eÍ Grænt, grænt og meira grænt eru ýmsar ráðleggingar og fróðleiksmolar auk ótal uppskrifta sem munu sannarlega koma þér á bragðið! Ljúffengir og auðveldir drykkir sem dekra við líkamann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGott er að grípa til dæmis spínat, agúrku, sítrónu, kókosvatn og hollustuskot á borð við engiferrót eða lárperu, og blanda ljúffengan drykk, stútfullan af vítamínum, steinefnum, trefjum, ómega-fitusýrum og jafnvel prótíni. Taka svo drykkinn með og njóta hollustunnar þegar best hentar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hver hitaeining í grænu blaðgrænmeti inniheldur meira af næringarefnum en hitaeiningar annarra fæðutegunda.“ – Frank Lipman, læknir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKatrine van Wyk er norsk en flutti ung til New York til að stunda fyrirsætustörf. Hún hefur lært heildræna heilsuþjálfun og starfar sem næringarráðgjafi, einnig er hún jógakennari og heilsuráðgjafi hjá MindBodyGreen.com. Hún er meðal þeirra sem búa til uppskriftir fyrir vinsælu Equinox-safabarina í London og Toronto.\u003c\/p\u003e","brand":"Katrine van Wyk","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425849863,"sku":"9789935171276","price":999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Graent_graent.jpeg?v=1451157252"},{"product_id":"gusugangur-i-grasinu","title":"Gusugangur í grasinu","description":"\u003cp\u003eFallegar myndir og skemmtileg saga handa litlum börnum sem finnst gaman að fylgjast með lífi músanna og ævintýrum þeirra. Höfundur og myndskreytingar: Erla Sigurðardóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Erla Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425850823,"sku":"9789979650836","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Gusugangur_kapa.jpeg?v=1451157255"},{"product_id":"harid","title":"Hárið","description":"\u003cp\u003eHér eru að gengilegar leiðbeiningar um fjölbreyttar hárgreiðslur sem henta fyrir öll gullnu augnablikin í lífinu ... skólann, vinnuna, afmælin, gleðistundirnar ... hvar sem er og hvenær sem er.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSýndar eru aðferðir við fléttur, snúða og alls kyns uppsetningu á hári, allt greiðslur sem konur geta sjálfar gert. Einnig er gagnlegur fróðleikur um umhirðu hársins. Heilbrigt og fallegt hár er höfuðprýði og segir mikið um persónu okkar og stíl.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUngt og hæfileikaríkt fólk úr tískuheiminum að stoðað i Theodóru Mjöll við gerð bókarinnar; Saga Sig tók myndir og Ísak Freyr sá um förðun. Fyrirsæturnar hafa allar slegið í gegn hér heima og margar þeirra starfa við metnaðarfull verkefni erlendis.\u003c\/p\u003e","brand":"Theodóra Mjöll Skúladóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425851399,"sku":"9789935170514","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/HARID_framhlNet.jpeg?v=1451157258"},{"product_id":"heilsujurtabiblian","title":"Heilsujurtabiblían","description":"\u003cp\u003eKynntu þér hefðbundnar jurtaremedíur gegn hversdagslegum kvillum. Í þessari fróðlegu handbók er fjallað um ýmsar jurtir sem geta haft góð áhrif á heilsuna. Margar þeirra má nota gegn algengum kvillum svo sem kvefi, húðvandamálum, lélegri blóðrás, magakveisu, streitu eða jafnvel svefnleysi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEf við kynnum okkur lækningamátt jurtanna og hvernig þær geta bætt heilsu okkar og vellíðan getum við gengið skrefinu lengra og lagað okkar eigin græðandi tinktúrur, seyði, olíur, smyrsli, krem, síróp og edik. Með því að lifa í takt við náttúruna og nýta sér það sem hún hefur upp á að bjóða blómstrar líkami okkar, hugur og sál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNanna Gunnarsdóttir íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Jade Britton","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425851527,"sku":"9789935170873","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Heilsujurtabiblian_CoverNET.jpeg?v=1451157261"},{"product_id":"hin-morgu-andlit-kristninnar","title":"Hin mörgu andlit kristninnar","description":"\u003cp\u003eHin mörgu andlit kristninnar er byggð á sviðpaðri hugmynd og bók Þórhalls, Hin mörgu andlit trúarbragðanna sem kom út 2005 og fjallaði um öll trúarbrögð heimsins - en nú tekur höfundur fyrir kristna trú og sögu eins og nafnið ber með sér. Í bókinni skoðar höfundur trúna frá ýmsum hliðum og gerir upp samskipti sín við kirkjuna. Bókin skiptist í fimm hluta; í fyrsta hluta er Biblían skoðuð, næsti hluti snýr að sögu kristninnar, í þriðja hluta er beint sjónum að kirkjuárinu, uppruna og sögu daganna og siðferðislegum átakamálum í samtímanum. Í fjórða hluta er farið í gegnum trúarjátninguna og í fimmta og síðasta kaflanum fjallar höfundur um dulræna reynslu sína, spíritisma og hið yfirskilvitlega. Í þessari sjöundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun, kenningar og átök þeirra sem aðhyllast kristna trú, allt frá Egyptalandi hinu forna til Íslands í dag. Þetta er stórbrotin saga um marga mikilvæga sögulega þætti; blóðug átök krossferðanna fá hér sitt rými, musterisriddarar og múslímar, kristin talnaspeki og táknfræði, biblíurannsóknir og dagar kirkjuársins svo fátt eitt sé talið. Einnig rekur höfundur reynslu sína af dulrænum atburðum, rannsóknum á nær-dauða-reynslu og spíritisma og veltir upp spurningum um líf eftir dauðann. Bókin er spennandi lesning um sögulegar staðreyndir sem hér eru færðar í aðgengilegan búning fyrir alla sem vilja vita meira um bakgrunn sinn. Auk þess gefa persónulegar hugleiðingar höfundarins bókinni aukna vídd.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórhallur Heimisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425852999,"sku":"9789935170576","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hin_morgu_andlit_kristn_net.jpeg?v=1451157266"},{"product_id":"hlustarinn-innbundin","title":"Hlustarinn - innbundin","description":"\u003cp\u003eÁrið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, trúað fyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða frá. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\/...\/ Saga þýska verkafólksins sem kom hingað til lands í vinnumennsku eftir síðari heimsstyrjöldina er mjög áhugaverð \/...\/ Um leið og maður les góða bók fræðist maður og verður enn forvitnari um sögu þessa fólks. Ég var verulega sátt eftir lestur bókarinnar sem hélt mér við efnið frá upphafi til enda \/...\/ Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi.ust ein af sterkustu skáldsögum ársins. - Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllan tímann sem ég var að lesa bókina fannst mér eins og hún væri að gerast í dag, einhvernvegin nær höfundur að búa til aðstæður upp í sveit á Íslandi þannig að ég sá algjörlega fyrir mér litla bæinn og var meira að segja farin að ýminda mér hvað það væri hræðilegt ef hann væri undir Eyjafjallajökli. - Bókablogg Kollu af midja.is\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHlustarinn er margbrotin saga, þar sem fortíð og nútíð takast á í lífi tveggja kvenna. \/...\/ Höfundi tekst að heilla lesandann á fyrstu síðum og nær að halda honum alveg til enda. Það sést vel að Ingibjörg hefur lagt mikið upp úr persónusköpun Helgu og Súlu. Hugarheimur og sálarástand persónanna er sett upp á svo raunverulegan hátt að oft á tíðum þurfti ég að minna mig á að um skáldsögu væri að ræða, en ekki ævisögu. \/...\/ Bókin er kröftug og áhugaverð og stefnir saman ólíkum heimum en sýnir þó að allt tengist á einn eða annan hátt. - Snorri Freyr Snorrason, bókagagnrýni af student.is\u003c\/p\u003e","brand":"Ingibjörg Hjartardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425853447,"sku":"9789935418586","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlustarinn_f_net.jpeg?v=1451157271"},{"product_id":"hlustarinn-kilja","title":"Hlustarinn - kilja","description":"\u003cp\u003eÁ meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, hún trúit honumfyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða í staðinn. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart. Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur. Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi. Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e","brand":"Ingibjörg Hjartardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425858823,"sku":"9789935418241","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlustarinn_f_net_096d2987-2e8e-485d-a9b4-d2747e9115db.jpeg?v=1451157273"},{"product_id":"hlyir-faetur","title":"Hlýir fætur","description":"\u003cp\u003eHönnuðir sokkanna eru Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir. Í þessari gullfallegu bók birtast yfir 54 fjölbreyttar uppskriftir að sokkum — í öllum stærðum — fyrir börn og fullorðna. Bókin er prýdd líflegum myndum og aðgengilegum teikningum sem gera fjölbreytt sokkaprjón að leik einum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér eru sokkar sem auðvelt er að prjóna, bæði háir og lágir, einbanda og tvíbanda, allt frá sokkum til að nota í gönguferðir til fínlegri sokka í bæjarferð við stutt pils. Kafli er með einföldum uppskriftum auk ítarlegra leiðbeininga um sokkaprjón. Í bókinni eru þó einnig uppskriftir fyrir lengra komna og svo einnig þá sem vilja spreyta sig á eigin hönnum. Gefnar eru almennar leiðbeiningar bæði ef fylgt er uppskriftum til hins ýtrasta eða ef menn vilja nýta sér hugmyndirnar til að útfæra sína eigin sokka. \u003c\/p\u003e","brand":"Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425860231,"sku":"9789935170866","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlyirfaetur3d.jpeg?v=1451157274"},{"product_id":"hollt-og-hatidlegt","title":"Hollt og hátíðlegt","description":"\u003cp\u003eHollt og hátíðlegt geymir yfir 50 uppskriftir að ljúffengum og hollum hátíðamat. Fiskur, kjöt, grænmetisréttir og eftirréttir sem henta við hátíðleg tækifæri – sumar, vetur, vor og haust. Fjölbreyttur sælkeramatur þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og gefið hugmyndafluginu lausan tauminn. Þetta er handhæg og falleg bók sem gott er að grípa til þegar halda skal veislu og gera sér dagamun, hvort sem veislan er um vetur, sumar, vor eða haust. Hér er sköpunargleði og glæsileiki í fyrirrúmi.\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Jóhannsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425861319,"sku":"9789935170613","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hollt_og_hatidlegt_net.jpeg?v=1451157280"},{"product_id":"hus-skaldanna","title":"Hús skáldanna","description":"\u003cp\u003eÍslendingar eru þekktir fyrir bókmenntaarﬁnn og söfn um skáld eru um allt land: Snorrastofa í Reykholti, Hraun í Öxnadal, Davíðshús, Sigurhæðir og Nonnahús á Akureyri, Skriðuklaustur í Fljótsdal, Þórbergssetur á Hala og Gljúfrasteinn í Mosfellssveit. Auk þess er sýning á miðaldahandritunum í Þjóðmenningarhúsi. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425862599,"sku":"9789935170781","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/skald_isl_NET.jpeg?v=1451157287"},{"product_id":"iceland-360","title":"ICELAND 360°","description":"\u003cp\u003eVilhelm Gunnarsson is a photo-journalist for local newspaper, Fréttablaðið . Since taking up the job in 2003 he has captured moments of history in the making. His specialty is photojournalism and landscape photography and his photos have been featured in some of the better known newspapers, magazines, and televised media around the globe. He has participated in numerous exhibitions and has received recognition for his work, most recent of which he was rewarded for photo of the Year in the category for Environmental Photography by the Icelandic Association of Photojournalists. Vilhelm also manages VG Publication, a publishing company specialising in postcards and calendars. This is his second book published. His first book was published in 2010 in which he featured some of the more memorable moments from the volcanic eruption in Eyjafjallajökull. Vilhelm Gunnarsson´s professional website is www.vilhelmg.com\u003c\/p\u003e","brand":"Vilhelm Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425867975,"sku":"9789935418760","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/360-kapa.jpeg?v=1451157293"},{"product_id":"icelandic-national-costumes","title":"Icelandic National Costumes","description":"\u003cp\u003eÍ Icelandic National Costumes eru sýnishorn af af sparibúningum íslenskra kvenna á fyrri hluta síðustu aldar; upphlut, peysufötum og skautbúningi. Enn í dag eru þessir búningar notaðir við hátíðleg tækifæri og kallast þá þjóðbúningar, enda eru þeir útfærsla á eldri búningum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThis book shows examples of Icelandic women's formal costume from the first half of the 20th century. Known as national costume, these outfits are derived from traditional Icelandic dress, and are still worn today on special occasions. \u003c\/p\u003e","brand":"Hildur Hermóðsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425868615,"sku":"9789935170484","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_National-Costume_cover.jpeg?v=1451157295"},{"product_id":"icelandic-turf-houses","title":"Icelandic Turf Houses","description":"\u003cp\u003eIcleandic Turf Houses geymir sýnishorn af íslenskum torfbæjum frá mismunandi tímum. Íslendingar bjuggu í torfbæjum allt frá landnámi en upp úr 1900 fór annar húsakostur að ryðja sér til rúms. Nú eru einungis uppistandandi örfáir torfbæir sem varðveittir eru af Þjóðminjasafni Íslands, flestir þeirra eru burstarbæir, en það var byggingarlag sem fór að þróast skömmu fyrir aldamótin 1900.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIceland´s turf buildings have an important place in the country´s national heritage, and are unique in the world. From the settlement of Iceland around 900 AD until the early 20th century Icelandic people lived in such buildings. Today only a handful of these turf houses and churches remain. This unique publication showcases some examples of Icelandic turf buildings from various periods in the country´s history. \u003c\/p\u003e","brand":"Hildur Hermóðsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425868935,"sku":"9789935170477","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Turfhouses_cover.jpeg?v=1451157297"},{"product_id":"jolasveinarnir-i-hamrahlid-og-jolabadid","title":"Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Jólabaðið","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bryndís Víglundsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425872007,"sku":"9979768355","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/jolabadid.jpeg?v=1451157309"},{"product_id":"large-turf-houses","title":"Large Turf Houses","description":"\u003cp\u003eNokkrir stórir torfbæir eru enn uppistandandi á Íslandi, ﬂestir á Norðurlandi, og í mörgum þeirra eru byggðasöfn. Þessir eru til umfjöllunar: Glaumbær í Skagaﬁrði, Laufás við Eyjafjörð, Grenjaðarstaður í Aðaldal, Þverá í Laxárdal, Bustarfell í Vopnaﬁrði, Safnbærinn í Skógum, Skálinn á Keldum og Árbær.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllir þessir staðir - og allar þessar byggingar - eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þýðandi er Anna Yates. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum. Hér er bætt úr brýnni þörf því lítið hefur verið um bækur af þessu tagi á markaðnum, áherslan hefur verið á landið og náttúruna. Bækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku. \u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425876743,"sku":"9789935170835","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Torfbaeir_ensk_NET.jpeg?v=1451157331"},{"product_id":"leitin-ad-geislasteininum","title":"Leitin að geislasteininum","description":"\u003cp\u003eGrípandi saga fyrir börn á aldrinum 6-11 ára. Söguhetjurnar, þrír tólf ára krakkar sem voru kynntir til sögunnar í bókinni Varið ykkur á Valahelli, komast aftur í hann krappan fjarri heimaslóðum. Á vegi þeirra verða skuggalegir ferðalangar og dularfullur drengur en spennan tekur völdin þegar fréttist að dýrmætur geislasteinn hefur horfið. Nú reynir á kjark og útsjónarsemi krakkanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIðunn Steinsdóttir sannar hér enn á ný hve vel hún þekkir hugarheim barna. Bókin er skrifuð á léttu máli sem hentar öllum krökkum og ævintýraleg spenna helst frá upphafi til enda.\u003c\/p\u003e","brand":"Iðunn Steinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425877255,"sku":"9789935171269","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Leitin_ad_geislasteininum_kilja.jpeg?v=1451157336"},{"product_id":"lif-eda-daudi","title":"Líf eða dauði","description":"\u003cp\u003eÁ sóðalegum stöðum í Afríku blæðir ótal ungum stúlkum út vegna ólöglegra fóstureyðinga – mörgum eftir nauðgun. Þrjár konur í Svíþjóð hafa tekið til sinna ráða og vinna ötult hjálparstarf, bæði heima og í Afríku. Ein þeirra, Ellen Elg, söguhetja þessarar bókar, lendir hvað eftir annað í lífshættu í viðleitni við að bæta ástandið á staðnum. Ólíklegustu aðilar leggja stein í götu hennar og atburðarásin tekur óvænta stefnu. Karin Alfredsson hefur sjálf unnið í Afríku sem blaðamaður og þekkir aðstæður frá fyrstu hendi. Hér segir hún frá kvennakúgun og baráttu upp á líf og dauða við skilyrði sem fáir Vesturlandabúar geta ímyndað sér. Í þessari spennandi skáldsögu er dauðinn nálægur við hvert fótmál og blóðið rennur. Íslensk þýðing: Jakob S. Jónsson\u003c\/p\u003e","brand":"Karin Alfredsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425878471,"sku":"9789935171238","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Lif_eda_daudi.jpeg?v=1451157345"},{"product_id":"lifsreglurnar-fjorar","title":"Lífsreglurnar fjórar","description":"\u003cp\u003eRáðum við hvernig við lifum – eða lifum við eins og samfélagið segir okkur? Erum við sátt við þær lífsreglur sem við förum eftir?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. Lífsspeki Tolteka-indjána er aldagömul en höfðar enn til fólks því hún byggir á klassískum gildum. Lífsreglurnar fjórar er leiðarvísir að uppljómun og persónulegu frelsi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu, mun hún svo sannarlega bæta það og hjálpa þér að losna við gremju, eigingirni og önnur mein. - Páll Óskar, tónlistarmaður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVertu flekklaus í orði. Talaðu af heilindum. Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota ekki orðið gegn þér eða til að slúðra um aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika. Ekki taka neitt persónulega. Ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna. Það sem aðrir segja og gera er speglun af þeirra eigin veruleika, þeirra eigin hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér, verðurðu ekki lengur fórnarlamb ónauðsynlegrar vanlíðunar. Ekki draga rangar ályktanir. Hafðu hugrekki til þess að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskipti þín við aðra skýr svo þú komist hjá misskilningi og sárindum. Þessi eina lífsregla getur breytt lífi þínu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Don Miguel Ruiz","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425879495,"sku":"768835","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Lifsreglurnar.jpeg?v=1451157346"},{"product_id":"maria-magdalena-vegastjarna-eda-vaendiskona","title":"María Magdalena - Vegastjarna eða vændiskona?","description":"\u003cp\u003eSumir fyrirlíta Maríu Magdalenu, aðrir hafa á henni miklar mætur og hafa jafnvel tekið hana í dýrlingatölu. En hver var María Magdalena? Hvers vegna hvílir svo mikill leyndardómur yfir sögu hennar og hvers vegna hafa svo margir augljóslega lagt mikið á sig til að hylja sporin sem hún markaði. Saga sögunnar um Maríu Magdalenu er á vissan hátt eins og perlufesti. Hver perla er ein saga, einn leyndardómur, eitt bréf eða eitt spor. En samhengið, festin sem perlurnar hanga á, er María Magdalena sjálf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ leiðangri Þórhalls Heimissonar er aðferðum leynilögreglusögunnar beitt til að leita sönnunargagna. Meðal annars er kafað í forn handrit sem ekki hafa komið út á íslensku, eins og Guðspjall Maríu, Filipusarguðspjall, Gullnu sögurnar, Nornahamarinn og fleiri. Ýmsum spurningum er svarað þó margar nýjar vakni eins og í bestu spennusögu. En niðurstaðan er sú að María Magdalena hafi markað dýpri spor en margan grunar.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórhallur Heimisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425883591,"sku":"9789979650713","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mariamagdalena.jpeg?v=1451157366"},{"product_id":"mary-poppins","title":"Mary Poppins","description":"\u003cp\u003eÞeir sem hafa kynnst Mary Poppins vita að hún er engin meðalkona og að hún hefur lag á því að gera heiminn okkar skemmtilegri – og örlítið skringilegri en ella. Íbúarnir í Kirsuberjagötu er til fyrirmyndar í einu og öllu. Kvöld nokkurt í austurblænum birtist skyndilega vel klædd en fremur kuldaleg kona með regnhlíf á tröppunum hjá Banksfjölskyldunni og gerist barnsfóstra þar á bæ. Systkinin Jane og Michael átta sig fljótlega á að Mary Poppins er ólík öllum öðrum barnsfóstrum og fyrr en varir lenda þau í ótrúlegum ævintýrum, svo ekki sé meira sagt … Í nútímasamfélagi þar sem allir eru uppteknir af því að skilgreina sjálfa sig minnir Mary Poppins okkur á að það sem mestu máli skiptir er að vera maður sjálfur og reyna ekki að vera eitthvað annað. Sjálf er hún ekki dæmigerð að neinu leyti, hvorki sem barnfóstra, kennari, vinkona né kvenmaður. Sagan um Mary Poppins er sígild og sívinsæl en loks er hún fáanleg aftur vegna mikillar eftirspurnar. Íslensk þýðing Hallur Hermannsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425884423,"sku":"9789935170651","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mary_Poppins_2012_net.jpeg?v=1451157369"},{"product_id":"memories-from-iceland","title":"Memories from Iceland","description":"\u003cp\u003eUm er að ræða minningabók fyrir erlenda ferðamenn þar sem hægt er að safna saman á einn stað myndum, frásögnum, athugasemdum og persónulegri upplifun. Með þeim hætti varðveitist ferðalagið í stað þess að verða gleymskunni að bráð. Hugmyndina að bókinni á Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta en hann lék bæði með íslenska landsliðinu og liðum í Belgíu og Þýskalandi á áttunda áratugnum. Á meðan á atvinnumennsku hans stóð ferðaðist hann víða en þegar lengra leið frá upplifuninni dofnuðu minningar hans frá ferðalögunum. Það kveikti hugmyndina að þessari bók, minningabók fyrir erlenda ferðamenn sem heimsækja Ísland, þar sem þeir hafa á einum stað fallegar myndir frá vinsælum ferðamannastöðum og persónulega dagbók sem heldur lífi í minningum þeirra frá ferðalaginu.\u003c\/p\u003e","brand":"Lárus Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425888455,"sku":"9789935171306","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Memories_NET.jpeg?v=1451157384"}],"url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/allar-baekur.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}