Þetta er önnur bókin í flokki innbundinna barnabóka um Stjána og stríðnispúkana fimm sem hann fann eitt kvöldið í sokkaskúffunni sinni.

Nú vilja litlu stríðnispúkarnir fara með honum í skólann! Stjáni er ekki viss um að það sé góð hugmynd því hann á í nógum vandræðum með hann Simma, aðal hrekkjusvínið í skólanum.

En kannski geta stríðnispúkarnir hjálpað honum í baráttunni við Simma?