{"title":"Blóðdropinn","description":"\u003cp\u003eHér finnur þú bækur sem tilnefndar hafa verið til \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eíslensku glæpasagnaverðlaunanna, \u003c\/span\u003eBlóðdropans\u003cspan\u003e.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"fjotrar","title":"Fjötrar","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003e\u003cspan\u003eFjötrar\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e segir frá konu sem finnst látin í klefa sínum í fangelsinu á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar hans rannsaka málið sem reynist hafa ótal þræði og teygja anga sína víða, alla leið til stóra skjálftans um aldamótin þar sem ungur maður hvarf sporlaust. Lögreglan stendur frammi fyrir stórum spurningum og kynnist hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að viðhalda ákveðinni mynd af sér út á við og hvers fjölskyldur eru megnugar til að vernda leyndarmál sín.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFjötrar er eftir Sólveigu Pálsdóttur sem er leikkona og starfaði lengi við leiklist og kennslu í framhaldsskóla áður en hún sneri sér alfarið að ritstörfum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003e\u003cspan\u003eFjötrar\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e er fimmta bók Sólveigar en bækur hennar hafa verið tilnefndar til Blóðdropans, þýddar á þýsku og sem stendur vinna bresk framleiðslufyrirtæki að gerð sjónvarpsþátta eftir síðustu bók hennar, Refnum. Sólveig er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019, fyrst rithöfunda.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e\u003ciframe src=\"https:\/\/www.facebook.com\/plugins\/video.php?href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Fsalka.forlag%2Fvideos%2F2435380373392148%2F\u0026amp;show_text=0\u0026amp;width=560\" width=\"560\" height=\"315\" style=\"border: none; overflow: hidden;\" scrolling=\"no\" frameborder=\"0\" allowtransparency=\"true\" allowfullscreen=\"true\"\u003e\u003c\/iframe\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003ciframe width=\"100%\" height=\"300\" scrolling=\"no\" frameborder=\"no\" allow=\"autoplay\" src=\"https:\/\/w.soundcloud.com\/player\/?url=https%3A\/\/api.soundcloud.com\/playlists\/938706310\u0026amp;color=%23ff5500\u0026amp;auto_play=false\u0026amp;hide_related=false\u0026amp;show_comments=true\u0026amp;show_user=true\u0026amp;show_reposts=false\u0026amp;show_teaser=true\u0026amp;visual=true\"\u003e\u003c\/iframe\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ciframe allowfullscreen=\"\" allow=\"fullscreen\" style=\"border: none; width: 100%; height: 326px;\" src=\"\/\/e.issuu.com\/embed.html?d=fjo_trar_1-3_kafli\u0026amp;u=salkabooks\"\u003e\u003c\/iframe\u003e","brand":"Sólveig Pálsdóttir","offers":[{"title":"Rafbók e-pub","offer_id":31293553508421,"sku":"978935483814","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Rafbók mobi","offer_id":31293553541189,"sku":"978935483815","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Fjötrar innbundin","offer_id":42064095314154,"sku":"9789935483812","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Fjötrar kilja","offer_id":42064101015786,"sku":"9789935483898","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/FJOTRAR_net.jpg?v=1573912846"},{"product_id":"lok-lok-og-laes-kilja","title":"Lok, lok og læs - kilja","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÁ köldu vetrarsíðdegi fer nágranni að huga að fjölskyldu í Hvalfjarðarsveit sem ekki hefur svarað skilaboðum. Fólkið veit ekki aura sinna tal og hefur komið sér fyrir í afdal utan alfaraleiðar. Nágranninn sér ummerki um mannaferðir en enginn svarar þegar hann drepur á dyr. Eftir að hafa litið inn í húsið hrökklast hann aftur út og kallar til lögreglu. Hvað gerðist hjá þessum nýju ábúendum?\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eJafnframt því að fylgjast með rannsókn málsins fær lesandinn að skyggnast inn í líf fjölskyldunnar í aðdraganda þessara voveiflegu atburða þar sem ekki er allt sem sýnist.\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42619276656874,"sku":"9789935301857","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Lok-lok-og-laes-685x1024.jpg?v=1647950364"},{"product_id":"stori-brodir-kilja","title":"Stóri bróðir - kilja","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003csection id=\"book_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eStóri bróðir er saga um hefnd og réttlæti, um kærleika og missi, ofbeldi og gamlar syndir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eSvartklædd vera gengur í skrokk á manni við Rauðavatn og hverfur svo eins og vofa út í nóttina. Enginn veit hver árásarmaðurinn er eða hvað vakir fyrir honum. Stóri bróðir er hörkuspennandi glæpasaga sem heldur lesandanum föngnum frá upphafi til enda.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e\n\u003csection id=\"book_long_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eEmil Þorsteinsson, blaðamaður, telur árásina tengjast öðrum árásum í Reykjavík og að svartklædda veran sitji skipulega um fórnarlömb sín. Rannsókn Emils leiðir í ljós að árásarmaðurinn telur sig ganga erinda þeirra sem eiga um sárt að binda; hann vilji útdeila réttlæti fyrir þeirra hönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eStóri bróðir er spennandi og blóði drifin glæpasaga sem tekur óvæntar vendingar þegar minnst varir.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e","brand":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44245867397424,"sku":"9789935530172","price":4190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/stori_1024x1024_f0c7cfbb-a101-4496-9848-57f9b6c1a135.jpg?v=1672845011"},{"product_id":"reykjavik-kilja","title":"Reykjavík - kilja","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003csection id=\"book_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eÍ ágúst 1956 hverfur ung stúlka, Lára Marteinsdóttir, úr vist í Viðey og eftir það spyrst ekkert til hennar. Áratugum saman hvílir mál Láru þungt á íslensku þjóðinni og engin skýring kemur fram á hvarfi hennar. Í ágúst 1986 fer ungur blaðamaður að grafast fyrir um þetta dularfulla mannshvarf – með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e\n\u003csection id=\"book_long_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eHér bjóða Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir lesendum í ferðalag á vit sumarsins þegar Reykjavík átti 200 ára afmæli, Bylgjan og Stöð 2 voru að fara í loftið og leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs stóð fyrir dyrum. Og þetta sumar komu líka fram óvæntar vísbendingar um afdrif Láru Marteinsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e","brand":"Ragnar Jónasson Katrín Jakobsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45460529250608,"sku":"9789935302878","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/reyk.jpg?v=1687868929"},{"product_id":"blodmeri","title":"Blóðmeri","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eKjartan Ómarsson virðist ósköp venjulegur maður, vel liðinn og viðkunnanlegur. Einn sólríkan dag fer hann í sund en skilar sér aldrei heim aftur. Það kemur öllum í opna skjöldu þegar lík hans finnst í blokkaríbúð sem hann hefur haldið leyndri fyrir konu sinni og kunningjum. Það sem verra er, Kjartan Ómarsson hefur verið myrtur á hrottafenginn hátt og líkami hans tæmdur blóði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eRannsókn málsins fellur í hendur fyrrum knattspyrnukempunnar Rúnu og starfsfélaga hennar Hönnu, nýliðans í rannsóknarlögreglunni. Fyrr en varir standa Rúna og Hanna frammi fyrir óhugnanlegri röð illverka sem leiðir þær sífellt dýpra í fortíð fórnarlamba sem reynist skuggalegri en við fyrstu sýn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eSteindór Ívarsson\u003c\/strong\u003e, höfundur skáldsögunnar \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSálarhlekkir\u003c\/em\u003e, sem hrifið hefur hug og hjörtu ótal lesenda og nýtur ótrúlegra vinsælda, fetar hér nýjar slóðir og færir okkur sína fyrstu glæpasögu. Blóðmeri er æsispennandi morðgáta sem heldur lesendum föngnum frá fyrstu mínútu.\u003c\/p\u003e","brand":"Steindór Ívarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46123198906672,"sku":"9789935311962","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/blodmeri.jpg?v=1692716078"},{"product_id":"heim-fyrir-myrkur","title":"Heim fyrir myrkur","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003carticle id=\"book_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHin 14 ára Marsí skrifast á við strák sem býr hinum megin á landinu. En hún gerir það í nafni systur sinnar. Bréfaskiptunum lýkur með því að þau ákveða að hittast. Marsí kemst ekki til að hitta hann en þar sem þau höfðu mælt sér mót finnst blóðug úlpa systur hennar sem er horfin. Tíu árum síðar hefur þessi óþekkti pennavinur samband á ný.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBækur Evu Bjargar Ægisdóttur koma nú út á um tuttugu tungumálum um allan heim við frábærar undirtektir. The Times valdi Ég sé þig ekki sem bestu glæpasögu júlímánaðar 2023, Financial Times valdi hana sem eina af fimm bestu glæpasögum sumarsins og eina vikuna átti Eva þrjár af 22 mest seldu bókunum í Frakklandi. Þá hlaut Marrið í stiganum Gullrýtinginn í Bretlandi sem besta frumraun ársins. Strákar sem meiða var tilnefnd til Blóðdropans – Íslensku glæpasagnaverðlaunanna 2022.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin vann blóðdropann 2024.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Eva Björg Ægisdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47056723804464,"sku":"9789935303103","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Screenshot2023-11-02at16.20.03.png?v=1698942038"},{"product_id":"madurinn-fra-sao-paulo-kilja","title":"Maðurinn frá Sao Paulo - kilja","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003ci data-mce-fragment=\"1\"\u003eMaðurinn frá São Paulo\u003c\/i\u003e er spennusaga um launmorð, njósnir og nasista á flótta. Þýskur hermaður særist í orrustunni um Rostov í Úkraínu árið 1942. Honum er bjargað við illan leik. Josef Mengele, dauðaengillinn í Auschwitz, flýr Evrópu fjórum árum eftir stríðslok. Árið 1960 rænir ísraelska leyniþjónustan Adolf Eichmann í Buenos Aires. Réttað er yfir honum og hann hengdur í Tel Aviv. Í Reykjavík er leigubílstjóri skotinn í hnakkann árið 1977. Héðinn Vernharðsson rannsakar málið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ þessari annarri bók sinni fléttar \u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eSkúli Sigurðsson\u003c\/strong\u003e skáldskap saman við sögulega atburði og raunverulegar persónur svo úr verður magnaður hildarleikur – sem heldur lesendum í heljargreipum til síðustu síðu. Fyrsta bók Skúla, \u003ca href=\"https:\/\/www.forlagid.is\/vara\/stori-brodir\/\" data-mce-fragment=\"1\" data-mce-href=\"https:\/\/www.forlagid.is\/vara\/stori-brodir\/\"\u003eStóri bróðir\u003c\/a\u003e, hlaut Blóðdropann 2023, íslensku glæpasagnaverðlaunin.\u003c\/p\u003e","brand":"Skúli Sigurðsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47873509425456,"sku":"9789935530509","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/sao-paulo.png?v=1710955318"},{"product_id":"tyndur","title":"Týndur","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögreglan í Reykjavík lýsir eftir Einari Starra Ólafssyni, sjö ára.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinar Starri er 125 sentimetrar á hæð, grannvaxinn, bláeygur, með stuttklippt, dökkskollitað hár. Hann er klæddur í bláa úlpu, gráar buxur og svört gúmmístígvél. Hans hefur verið saknað síðan um klukkan fjögur í gær þegar hann fór frá Dragaskóla og gekk heim á leið, til austurs eftir Norðurdragi. Þau sem gætu hafa orðið hans vör eru beðin um að hafa samband við lögregluna.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHvernig getur sjö ára barn horfið sporlaust á leiðinni heim úr skóla? Einhver hlýtur að vita hvað af honum varð. En hverjir segja satt og hverjir ljúga? Lögreglukonan Hanna María þarf á öllu sínu innsæi og reynslu að halda til að greina þar á milli. Tíminn er naumur, það er komið haust og næturnar orðnar kaldar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin var tilnefnd til Blóðdropans 2025.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Ragnheiður Gestsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48661223506224,"sku":"9789935541796","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Tyndur.png?v=1717674404"},{"product_id":"daudinn-einn-var-vitni","title":"Dauðinn einn var vitni","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cem\u003e„Þetta er kannski ekki fyrir viðkvæma en þetta er alveg svakalega skemmtilegt.“ \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e   - Kolbrún Bergþórsdóttir \/ Kiljan\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eHörður Grímsson á ekki sjö dagana sæla. Hann er að rannsaka ólöglegt verðsamráð stórfyrirtækja en saknar þess að rannsaka alvöru glæpi. Einn daginn heyrir hann undarlega yfirlýsingu óþekkts manns í lokuðu talstöðvarkerfi lögreglunnar. „Eftir þrjá daga mun ég hlaupa af stað. Eftir að ég hleyp af stað hafið þið þrjár klukkustundir til að stöðva mig.“\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEr um hótun eða gabb að ræða?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar sama yfirlýsingin hljómar í talstöðvarkerfinu daginn eftir fær Hörður leyfi til að reyna að komast til botns í þessu dularfulla máli. Hver er að tjá sig á lögreglu­rásinni og hvað vakir fyrir honum? Hörður hefur lítið sem ekkert í höndunum til að byrja með en leggur nótt við dag við rannsóknina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTíminn líður og dagur hinna boðuðu aðgerða rennur brátt upp. Þann dag spáir veðurstofan hamslausum vestanstormi en Hörður óttast að annað og meira en óveður sé í aðsigi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGetur verið að hryðjuverk séu í uppsiglingu á Íslandi?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDauðinn einn var vitni er tólfta bókin um rannsóknarlögreglumanninn sérlundaða Hörð Grímsson, sem hefur fyrir löngu skipað sér í hóp allra vinsælustu skáldsagnapersóna samtímans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eBókin hlaut Blóðdropann árið 2025\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Stefán Máni","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49205613232432,"sku":"9789935312501","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/nn9mk6s3mv67lso9k38gjo5hk9y2.jpg?v=1730320413"},{"product_id":"kvoldid-sem-hun-hvarf","title":"Kvöldið sem hún hvarf","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMannabein\u003c\/strong\u003e finnast á sveitabæ í Hvalfirði þar sem ekki hefur verið búið í hálfa öld. Hver kom þeim þar fyrir, hvers vegna — og hvenær? Ung einstæð móðir flytur á \u003cstrong\u003eAkranes\u003c\/strong\u003e með ungan son sinn og fær leigða kjallaraíbúð hjá eldri manni sem virðist ekki allur þar sem hann er séður.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLögreglukonan Elma\u003c\/strong\u003e, sem aðdáendur Evu Bjargar þekkja úr fyrri bókum hennar, fæst hér við flókið sakamál — um leið og hún grunar Sævar, sambýlismann sinn, um að leyna sig einhverju.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKvöldið sem hún hvarf er margbrotin glæpasaga eftir einn helsta höfund okkar í þeirri grein. Eva Björg Ægisdóttir hlaut \u003cstrong\u003eÍslensku glæpasagnaverðlaunin \u003c\/strong\u003e— \u003cstrong\u003eBlóðdropann\u003c\/strong\u003e fyrir \u003cem\u003eHeim fyrir myrkur.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækur hennar koma nú út við miklar vinsældir bæði austan hafs og vestan. Meðal annars valdi \u003cstrong\u003eFinancial Times\u003c\/strong\u003e \u003cem\u003eStrákar sem meiða\u003c\/em\u003e \u003cstrong\u003eeina af bestu glæpasögum\u003c\/strong\u003e sumarsins 2024.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin var tilnefnd til Blóðdropans árið 2025.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Eva Björg Ægisdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49205697020208,"sku":"9789935303875","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/v0ynwmv7o9yjkfyux6usqefym3az.jpg?v=1730320745"},{"product_id":"dna","title":"DNA","description":"\u003cp\u003eDNA eftir Yrsu Sigurðardóttur er fyrsta bókin um barnasálfræðinginn Freyju og lögreglumanninn Huldar. Hún hlaut Blóðdropann sem besta íslenska glæpasagan og einnig Palle Rosenkrantz-verðlaunin sem besta glæpasagan í Danmörku. Bókin er núna endurútgefin í tilefni af sýningu sjónvarpsseríunnar Reykjavík 112 sem byggð er á DNA.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUng kona er myrt á hryllilegan hátt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRadíóamatör fær sérkennileg skilaboð á öldum ljósvakans sem tengja hann við bæði fórnarlömbin. Þó þekkir hann hvorugt þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eYrsa Sigurðardóttir bregst ekki lesendum sínum með þessari mögnuðu glæpasögu!\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49731211231536,"sku":"9789935304100","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/DNA-Kilja-2025.jpg?v=1745953468"},{"product_id":"eftirfor","title":"Eftirför","description":"\u003ch1 dir=\"ltr\"\u003e📕 Eftirför - íslensk spennusaga eftir Önnu Rún Frímannsdóttur\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cb id=\"docs-internal-guid-f2d684c8-7fff-fc54-85cd-06b164b5494f\"\u003e\u003cspan\u003eEftirför\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e er önnur skáldsaga \u003ca href=\"https:\/\/www.salka.is\/collections\/anna-run-frimannsdottir?_pos=1\u0026amp;_psq=anna\u0026amp;_ss=e\u0026amp;_v=1.0\"\u003eÖnnu Rúnar Frímannsdóttur\u003c\/a\u003e en sú fyrri, \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/www.salka.is\/products\/daudathogn?_pos=1\u0026amp;_psq=Dau%C3%B0a%C3%BE%C3%B6g\u0026amp;_ss=e\u0026amp;_v=1.0\"\u003e\u003cspan\u003eDauðaþögn\u003c\/span\u003e\u003c\/a\u003e\u003cspan\u003e, hlaut frábærar viðtökur lesenda.\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e🧠 Um bókina\u003c\/h2\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞegar fjölskyldufaðirinn Hallur hverfur sporlaust stendur lögreglan ráðþrota gagnvart kaldri slóð. Það er ekkert sem gefur til kynna að hann hafi verið flæktur í neitt misjafnt og langþráð vetrarfrí fjölskyldunnar breytist skyndilega í martröð. Það er engu líkara en að jörðin hafi gleypt hann. Gæti hvarfið tengst dularfullu skilaboðunum sem Selmu, eiginkonu hans, hafa borist að undanförnu?\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eLögfræðingurinn Hrefna er komin í starf hjá lögreglunni og þetta mannshvarf ætlar ekki að reynast auðleyst. Angar þess teygja sig víða og lögreglan þarf að hafa sig alla við í kappi við tímann þar sem hver klukkustund telur.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eTilnefnd til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans, 2025!\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e„Þögnin var nánast áþreifanleg. Það eina sem heyrðist í þröngu og skítugu rýminu var hans eigin andardráttur sem hljómaði skyndilega framandi, eins og hann tilheyrði einhverjum öðrum. Svona var þá tilfinningin að vera bjargarlaus.“\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e✨ Umsagnir\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e„Einstaklega vel heppnuð frumraun í heimi glæpasagnanna, snjall og spennandi krimmi sem tekur óvænta stefnu.“ Ragna Gestsdóttir \/ DV \/ um Dauðaþögn\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e„Ein besta glæpasaga sem ég hef lesið. Anna Rún virðist ætla að tylla sér í hásæti glæpasagnakvenna. Það er mín tilfinning.“\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eGísli Helgason, um Dauðaþögn\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eUmsögn dómnefndar Íslensku glæpasagnaverðlaunanna:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003eTrúverðug og raunsönn lýsing á einelti unglinga og átakanlegum afleiðingum þess með góðri persónusköpun og lifandi frásagnarmáta. Spennandi og vel uppbyggð saga sem heldur lesandanum vel við efnið.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eISBN: \u003cspan data-sheets-root=\"1\"\u003e978-9935-516-87-9\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Anna Rún Frímannsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49932399411504,"sku":"9789935516879","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Eftirfor-kapumynd.png?v=1751377184"},{"product_id":"lif","title":"Líf","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eFjölskyldufaðir finnst látinn á heimili sínu og virðist hafa fallið fyrir eigin hendi. Við krufningu kemur í ljós örlítið frávik sem breytir öllu. Guðrún Ýr Ingimarsdóttir rannsóknarlögreglumaður tekur að sér málið. Hún er eldskörp en líka þrjósk og rekst gjarnan á veggi kerfisins. Í ljós kemur að þetta er aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÞræðirnir liggja inn í heim valda, spillingar og leyndarmála sem einhver er tilbúinn að verja með blóði. Í skuggunum bíður sá sem skilgreinir morð ekki sem glæp, heldur list.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eLíf\u003c\/em\u003e er ófyrirsjáanlegur sálfræðitryllir sem kafar djúpt í myrkustu afkima mannlegs eðlis. Reynir Finndal Grétarsson leiðir lesandann inn í hugarheim þar sem sannleikurinn er aldrei einfaldur og siðferði er afstætt. Lesandinn er orðlaus að lestri loknum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Reynir Finndal Grétarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50234675560752,"sku":"9789935312907","price":7990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Lif.jpg?v=1777465257"},{"product_id":"allar-litlu-lygarnar","title":"Allar litlu lygarnar","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eUng velgengnishjón láta lífið af skotsárum á heimili sínu frá tveimur dætrum, kornabarni og unglingsstúlku. Tuttugu árum síðar leitar sú eldri til sálfræðings. Hvað gerðist á þessu mikla fyrirmyndarheimili? Hvers vegna töldu ýmsir innan lögreglunnar að ekki hefðu öll kurl komið til grafar í málinu?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003e„Í tvo áratugi hefur þetta mál vafist fyrir mér, en aldrei bjóst ég við því að einn daginn yrði ég hluti af sögunni.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUng velgengnishjón láta lífið af skotsárum á heimili sínu frá tveimur dætrum, kornabarni og unglingsstúlku. Tuttugu árum síðar leitar sú eldri til sálfræðings sem sérhæfir sig í áföllum – og þekkir þau reyndar líka á eigin skinni. Hvað gerðist á þessu mikla fyrirmyndarheimili? Hvers vegna töldu ýmsir innan lögreglunnar að ekki hefðu öll kurl komið til grafar í málinu? Og af hverju er sálfræðingurinn með rannsóknargögn úr því í sínum fórum?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEva Björg Ægisdóttir hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir glæpasögur sínar, bæði heima og erlendis, meðal annars unnið Blóðdropann – Íslensku glæpasagnaverðlaunin og Gullrýtinginn í Bretlandi fyrir frumraun ársins. Bækur hennar koma út á yfir tuttugu tungumálum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllar litlu lygarnar er þéttofin glæpasaga með óvæntum vendingum og heldur lesandanum í heljargreipum allt til enda.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Eva Björg Ægisdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50366942708016,"sku":"9789935304469","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/allar-litlu-lygarnar-1326x2048.webp?v=1763216956"},{"product_id":"alfa-kilja","title":"Alfa - kilja","description":"\u003cdiv data-ogsc=\"black\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eHröð og viðburðarík spennusaga úr nálægri framtíð: Árið 2052 hefur Alfa stýrt samfélaginu í aldarfjórðung – gervigreind sem leysir úr öllum málum á sem bestan hátt fyrir alla – og sjö manna teymi situr í Ráðuneytinu og hefur umsjón með að allt gangi smurt.\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv data-ogsc=\"black\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003e\u003cspan\u003eÁ heimili Sabínu og Mekkínar er stór dagur runninn upp. Júlíus sonur þeirra er að verða sextán ára og vígist þar með inn í heim fullorðinna. Þá fær hann grædda í sig örflögu til að tengjast Alfa beint og fær um leið að vita hvað honum er ætlað að fást við í framtíðinni. Birkir bróðir Sabínu er uppreisnarseggur sem vill ekki lúta stjórn Alfa og þarf því að draga fram lífið án allra nútímaþæginda. Þegar hann lætur lífið við undarlegar aðstæður verður ljóst að eitthvað býr undir – einhver olli dauða hans, en hver? Og var það kannski systir hans sem átti að deyja?\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv data-ogsc=\"black\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv data-ogsc=\"black\"\u003eLilja Sigurðardóttir er í essinu sínu í þessari snörpu og hressilegu sögu þar sem hún dregur upp litríkar persónur og kitlandi söguheim, frábrugðinn veröldinni sem við þekkjum. Flest er breytt – en breytingarnar eru ekki að allra skapi.\u003c\/div\u003e","brand":"Lilja Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50770807849264,"sku":"9789979353799","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Alfa_72pt.jpg?v=1760624766"},{"product_id":"lokar-augum-blam-1","title":"Lokar augum blám","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÁ miðju sumri hverfa tveir ungir kajakræðarar sporlaust vestur í Dýrafirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bergur er fluttur á Flateyri og tekur málið að sér, ásamt fyrrverandi samstarfskonu sinni, Rögnu, sem er kölluð vestur. Á sama tíma vinnur par að endurbótum á gömlu \u003c\/span\u003ehúsi á Flateyri. Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þrá þau kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e \u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eLokar\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eaugum\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eblám\u003c\/i\u003e er þriðja bók Margrétar S. Höskuldsdóttur og önnur bókin sem fjallar um lögregluteymið Rögnu og Berg, en sú fyrri,\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eÍ\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003edjúpinu\u003c\/i\u003e, kom út 2024. Þetta er Vestfjarðaglæpasaga í klassískum anda sem fær hárin til að rísa.\u003c\/div\u003e","brand":"Margrét S. Höskuldsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50770818761008,"sku":"9789979229735","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Lokar_augum_blam_72.jpg?v=1759490924"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/collections\/Bloddropinn_Tilnefning_Skuggi_fdf5c261-36a0-4e5a-a980-d3d157e12c23.png?v=1775309057","url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/bloddropinn.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}