Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Macramé - hnútar og hengi

3,990 ISK

Höfundur Ninna Stefánsdóttir og Íris Dögg Einarsdóttir

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Macramé er einföld, falleg og skemmtileg handavinna sem allir geta lært og notað til að fegra heimili sín.  Það eina sem þarf er áhugi, iðnar hendur, kaðlar og skæri. Í þessari bók er farið yfir undirstöðuhnúta í macramé og sýnt skref fyrir skref hvernig hægt er að hnýta glæsileg vegghengi og dásamleg blómahengi. Einnig er farið í gegnum grunnatriði náttúrulegrar jurtalitunar og veglegur hugmyndakafli gefur innblástur að fjölmörgum macramé-verkefnum.

Í Macramé, hnútar og hengi láta Ninna Stefánsdóttir og Íris Dögg Einarsdóttir ljós sitt skína þar sem Ninna hnýtir hvert hengið af öðru af eindæma ástríðu og Íris fangar verkefnin á undurfallegar ljósmyndir sem prýða bókina. Teikningar af hnútum voru í höndum Rakelar Tómasdóttur sem einnig braut bókina um og hannaði kápu.

 Hér má lesa viðtal við Írisi og Ninnu í Mannlífi

Hér má sjá myndir úr útgáfuhófi bókarinnar hjá Hlín Reykdal


 

Gerð: Innbundin

Síðufjöldi: 104