{"title":"Heitustu bækurnar akkúrat núna","description":"","products":[{"product_id":"umrot","title":"Umrót","description":"\u003cdiv id=\"m_8435461114642038735gmail-book_description\"\u003e\n\u003ch2\u003eUm bókina\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eÞegar Rakel missir stjórnina á vel skipulögðu lífi sínu ákveður hún að fara í sjálfskipaða útlegð í Andalúsíu. Þar þarf hún að horfast í augu við sjálfa sig og drauga fortíðar sem hún hefur grafið djúpt. Rakel er áttavillt en smátt og smátt lærir hún að feta þröngar götur á framandi slóðum. Stærsta áskorun Rakelar er þó að kynnast sjálfri sér.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"m_8435461114642038735gmail-book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHver er hún þegar hún er ekki lengur farsæll forstjóri? Á sólbökuðum strætum Granada hefur Rakel nægan tíma til að hugsa. Hafði skylduræknin verið að drepa hana? Gæti umrótið verið lán í óláni?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUmrót er saga konu sem stendur á tímamótum og þarf að líta um farinn veg og sættast við fortíðina til að geta lifað lífinu til fulls.\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUm höfund\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eUmrót er fjórða skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur en fyrri bækur hennar hafa fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og lesenda. Frásagnarstíll Árelíu er líflegur og skemmtilegur og hrífur lesendur með sér á nýjar slóðir.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Árelía Eydís Guðmundsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66886276677936,"sku":"9789935574091","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Umrot-Kapumynd.png?v=1780324153"},{"product_id":"gonguleidir-vid-natturuperlur-islands","title":"Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eGönguleiðir við náttúruperlur Íslands hefur að geyma leiðarlýsingar hátt í 50 stuttra gönguleiða í námunda við þekkta áfangastaði í íslenskri náttúru. Oft má auðveldlega og á stuttum tíma færa sig frá fjölförnum stöðum og finna kyrrðina á göngu á fáfarnari slóðum rétt við náttúruperlur landsins. Það er á færi flestra að ganga leiðirnar í bókinni enda eru þær flestar stuttar og auðvelt er að koma þeim inn í ferðadagskrána. Leiðirnar eru fjölbreyttar og liggja um fjöll og gil, að fallegum fossum og sögulegum minjum, meðfram ám og vötnum og um fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eJónas Guðmundsson er leiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur óteljandi stundum á ferð um náttúru Íslands. Hann er höfundur þriggja metsölubóka um gönguleiðir vítt og breitt um land. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eGönguleiðir við náttúruperlur Íslands er ómissandi ferðafélagi þegar leggja skal land undir fót. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Jónas Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66915249783088,"sku":"9789935574107","price":6990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Gonguleidir-natturuperlur-Kapumynd.png?v=1780935466"},{"product_id":"heimilishjalpin-leyndarmalid","title":"Heimilishjálpin leyndarmálið","description":"\u003cblockquote\u003e\n\u003cp\u003e \u003cb\u003e„Ekki fara inn í gestaherbergið.“ Skuggi fellur á andlit Douglas Garrick þegar hann snertir hurðina með fingurgómunum. „Konan mín… hún er mjög veik.“ Þegar hann heldur áfram að sýna mér þakíbúðina þeirra hef ég hræðilega tilfinningu fyrir konunni á bak við luktar dyrnar. En ég get ekki átt á hættu að missa þetta starf – ekki ef ég vil halda myrkasta leyndarmálinu mínu öruggu … \u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað er erfitt að finna vinnuveitanda sem spyr ekki of margra spurninga um fortíð mína. Svo ég þakka mínu sæla fyrir að Garrick-hjónin hafa ráðið mig í vinnu við að þrífa glæsilegu þakíbúðina sína og útbúa máltíðir handa þeim. Ég get unnið hérna um tíma, verið róleg þar til ég fæ það sem ég vil.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er næstum því fullkomið. En ég hef enn ekki hitt frú Garrick, eða séð inni í gestaherberginu. Ég er viss um að ég heyri hana gráta. Ég tek eftir blóðblettum í kraganum á hvíta náttsloppnum hennar þegar ég þvæ þvottinn. Einn daginn get ég ekki annað en bankað á dyrnar. Þegar þær opnast og ég sé hvað herbergið geymir breytist allt …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg lofa sjálfri mér. Ég hef gert þetta áður. Ég get verndað frú Garrick á meðan ég geymi mín eigin leyndarmál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eDouglas Garrick hefur gengið of langt. Hann fær að borga fyrir hegðun sína. Þetta er einfaldlega spurning um hversu langt ég er tilbúin að ganga … \u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003cp\u003eÞessi bók er alger sprengja! Átakanlega snúið (en sjálfstætt) framhald af alþjóðlegu metsölubókinni\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eHeimilishjálpin\u003c\/em\u003e, sem kom áður út undir nafninu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eUndir yfirborðinu\u003c\/em\u003e.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eHeimilishjálpin: Leyndarmálið\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003emun halda þér á hlaupum í gegnum blaðsíðurnar langt fram á nótt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin kom áður út undir nafninu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eÞað sem þernan sér\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Freida McFadden","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66931184501040,"sku":"9789935563422","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/02_Heimilishjalpin_Leyndarmalid_KAPA_NYTT_FRONT.jpg?v=1781270388"},{"product_id":"fuglamal","title":"Fuglamál","description":"\u003cdiv\u003e\u003cspan\u003eÍda er ekkert venjulegt barn. Hún hagar sér undarlega, talar tungum og á ósýnilegan vin, fuglinn Pótó. Brynja er sannfærð um að dóttir hennar sé andsetin og eftir því sem áhyggjur hennar aukast fara yfirnáttúrulegir atburðir að trufla veruleikaskynjun þeirra beggja. Meðan Hafliði vinnur að myndlistarsýningu með hópi flóttamanna leitar Brynja allra leiða til að fá skýringu á hegðun dóttur þeirra, og hvað það þýðir að vera foreldri.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003e\u003cspan\u003eFuglamál\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e er samtímasaga með hryllingsívafi um ást og aktívisma, listir og barneignir en f\u003c\/span\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003ey\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003erst og fremst allt hið óvænta og vandasama við móðurhlutverkið.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eMarta María Jónsdóttir er myndlistarmaður og rithöfundur. Hún er með meistarapróf í ritlist frá Háskóla Íslands og í myndlist frá Goldsmiths, University of London. Marta hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningu í Sverrissal í Hafnarborg. Fuglamál er hennar fyrsta skáldsaga.\u003c\/div\u003e","brand":"Marta María Jónsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67000542396720,"sku":"9789935323439","price":5390.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Fuglamal.png?v=1781627801"},{"product_id":"aumingi-mella-syndari-og-heilagur-andi","title":"Aumingi, mella, syndari og heilagur andi","description":"\u003cdiv\u003eNæstversti dagur í lífi Sölku Álfheiðar var viku fyrir sjö ára afmælið hennar, það var dagurinn sem Guð hætti að tala við hana. Versti dagurinn var dagurinn sem mamma hennar dó.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eTil að gera veröldina rökrétta aftur býr Salka til lista. Einn þeirra er Guðslistinn, þar sem hún telur til allar ástæðurnar sem gætu búið að baki því að Guð yfirgaf hana. Var hún syndari? Aumingi? Hún á enn eftir að finna út hvað mella er, en samkvæmt samtölum fullorðna fólksins gætu öll þessi atriði orðið til þess að Guð hætti að tala við mann.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eSagan er áhrifarík og segir frá lífi í skugga geðsjúkdóma og ráðaleysi samfélags sem grípur ekki í taumana fyrr en það er um seinan.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eBókin er fyrsta skáldsaga Lilju Óskar Snorradóttur sem vakti verðskuldaða athygli fyrir sjálfsævisögulega bók sína, Heimsins besti dagur í helvíti.\u003c\/div\u003e","brand":"Lilja Ósk Snorradóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67012625662256,"sku":"9789935574121","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/AMSogheilagurandi-Kapumynd.png?v=1781881045"}],"url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/heitustu-baekurnar-akkurat-nuna.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}