{"title":"Íslensk klassík","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eÚrval sígildra verka eftir íslenska höfunda sem hafa markað djúp spor í bókmenntasögu þjóðarinnar. Hér má finna áhrifamiklar sögur, tímalausan skáldskap og bækur sem hafa heillað kynslóðir lesenda með einstökum stíl, sterkum persónum og íslenskum veruleika. Fullkomið fyrir þau sem vilja kynnast helstu perlum íslenskra bókmennta.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"vefarinn-mikli-fra-kasm-ny-ib","title":"Vefarinn mikli frá Kasmír innbundin","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cdiv class=\"post-content\" data-mce-fragment=\"1\" itemprop=\"description\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVefarinn mikli frá Kasmír \u003c\/em\u003eer tímamótaverk sem kom út árið 1927 þegar Halldór Laxness var 25 ára að aldri og vakti gríðarlega athygli og deilur. Sumum þótti sagan of bersögul og óþjóðleg en aðrir fögnuðu henni sem tákni nýrrar tíðar og bjartrar. Næstum jafnfrægur bókinni sjálfri er ritdómur Kristjáns Albertssonar: „Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk sem rís eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenskrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefur eignast nýtt stórskáld – það er blátt áfram skylda vor að viðurkenna það með fögnuði.“ En athyglin beindist þó ekki síður að höfundinum sjálfum. Hann var hneykslunarhella margra, þá eins og oft síðan, líferni hans þótti sérstakt; klausturvist, kaþólska, heimshornaflakk og bóhemlíf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVefarinn mikli frá Kasmír \u003c\/em\u003efjallar um Stein Elliða, ungan gáfumann sem leitar lífsfyllingar og haldbærra sanninda í heimi fullum efasemda. Hugmyndastraumar og upplausnarandi millistríðsáranna koma hér kannski betur fram en í nokkru öðru íslensku ritverki. Halldór sagði í blaðaviðtali um það leyti sem bókin kom út að í sögunni tæki hann til meðferðar allflest hin dýpri áhugaefni sem hugsanlegt væri að valdið gætu ungum manni þessara tíma svefnlausum nóttum. \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Halldór Laxness","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965702521018,"sku":"9789979219507","price":6290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/VefarinnMikliFraKasmir-700x995.jpg?v=1631793485"},{"product_id":"heimsljos-ib-ny","title":"Heimsljós - Innbundin","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eHeimsljós\u003c\/em\u003e er ein þekktasta og ástsælasta skáldsaga Halldórs Laxness, stórvirki sem upphaflega kom út í fjórum bókum á árunum 1937-40. Sagan fjallar um lífshlaup Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, niðursetnings og alþýðuskálds sem aldrei á fullkomna samleið með öðru fólki.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÓlafur er örsnauður, afskiptur og fyrirlitinn: leiksoppur og fótaþurrka þeirra sem einhvers mega sín. Ævi hans er óslitin þrautaganga en stefnan er ætíð skýr – til móts við fegurðina, þar sem engar sorgir búa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eHeimsljós \u003c\/em\u003eer margslungið átakaverk, áhrifaríkt, fyndið, róttækt og kraftmikið.\u003c\/p\u003e","brand":"Halldór Laxness","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965708812474,"sku":"9789979221074","price":7290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Heimsljos-600x934.jpg?v=1629203279"},{"product_id":"islenskur-adall","title":"Íslenskur aðall","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍslenskur aðall\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003egerist sumarið 1912 þegar Þórbergur Þórðarson var rúmlega tvítugur og segir frá misheppnuðum tilraunum hans til að ná sambandi við „elskuna“ sína; stúlkuna sem hann þráir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSumarvinna hans hefst norður í Hrútafirði, skammt frá heimili hennar, svo heldur hann til Siglufjarðar og þaðan til Akureyrar í síld, snýr síðan til baka og endar á hinni frægu framhjágöngu. Í leiðinni kynnist hann hópi af lífsglöðum piltum sem flestir þrá að verða skáld og aðeins tímaspursmál hvenær þeir sigra heiminn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eGrátbrosleg ævintýri þeirra í frásögn Þórbergs hafa skemmt íslenskum lesendum í meira en sjötíu ár.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórbergur Þórðarson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965716971706,"sku":"9789979535669","price":2690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/adall.jpg?v=1629897623"},{"product_id":"fataekt-folk-kilja","title":"Fátækt fólk - kilja","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eFátækt fólk\u003c\/em\u003e, fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, vakti mikla athygli og umtal þegar bókin kom út árið 1976 – fyrir fádæma orðsnilld, persónusköpun og stíl en þó fyrst og fremst fyrir þá sögu sem þar var sögð.  Söguna af fátæku fólki á Íslandi fyrir tíma almannatrygginga; þegar hægt var að taka björgina frá barnmörgu heimili vegna þess að kaupmaðurinn þurfti að fá sitt; þegar litlum börnum var þrælað út í vist hjá vandalausum; þegar sjálfsagt þótti að senda hungrað barn gangandi tvær dagleiðir í vondu veðri til að reyna að fá úttekt í versluninni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eFrásögn Tryggva af uppvexti sínum, móðurmissi og vondum vistum snemma á síðustu öld hefur engu glatað af styrk sínum og töfrum og á ef til vill ennþá brýnna erindi við okkur nú en þegar hún kom fyrst út.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞorleifur Hauksson hafði umsjón með útgáfunni og ritaði formála.\u003c\/p\u003e","brand":"Tryggvi Emilsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965721755834,"sku":"9789979535416","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Fataekt_folk-700x1146.jpg?v=1627045295"},{"product_id":"vogguvisa","title":"Vögguvísa","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVögguvísa\u003c\/em\u003e eftir Elías Mar kom fyrst út árið 1950 og er jafnan talin ein fyrsta Reykjavíkursagan. Bókin er einnig sú fyrsta sem gerir unglingamenningu eftirstríðsáranna að viðfangsefni sínu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBambínó, aðalpersóna sögunnar, lifir og hrærist í fjölda- og neyslumenningu undir bandarískum áhrifum kvikmynda, tónlistar, tísku og fleira. Þá fangar verkið tíðarandann og heim unglingsins vel þar sem líkt er eftir tungutaki þeirra. Höfundur lagðist í viðamikla rannsóknarvinnu á tungutaki reykvískra unglinga og safnaði saman helstu slangurorðum og orðasamböndum úr máli þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSafnið birtist í fyrsta sinn í heilu lagi á prenti í þessari útgáfu. Bókin er gefin út í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og var í brennidepli á lestrarhátíð í október 2012.\u003c\/p\u003e","brand":"Elías Mar","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965926523066,"sku":"9789935908902","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Vogguvisa-660x1024.jpg?v=1631796825"},{"product_id":"sagan-af-blaa-hnettinum","title":"Sagan af bláa hnettinum","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÁ bláum hnetti langt úti í geimnum búa börn sem fullorðnast ekki. Dag nokkurn birtist vera sem umturnar áhyggjulausu lífi þeirra og leiðir þau í háskalega ferð. Hrífandi og margverðlaunað ævintýri skreytt áhrifamiklum litmyndum Áslaugar Jónsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 og „Verðlaun verðlaunanna“ árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntarverðlaunanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSagan af bláa hnettinum\u003c\/em\u003e er ein víðförlasta barnabók síðari ára en hún er m.a. komin út í Bandaríkjunum, Kína, Japan, Grikklandi, Taílandi og Kóreu auk fjölmargra Evrópulanda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSagan hefur síðan unnið til ýmissa annarra verðlauna og tilnefninga. Hún hlaut Vest-Norrænu  barnabókaverðlaunin, pólsku Janusz Korczak- heiðursverðlaunin, tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna og fleira. Leikrit byggt á bókinni vann til verðlauna og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við miklar vinsældir og var að auki sýnt  í Kanada, Finnlandi og Pakistan.\u003c\/p\u003e","brand":"Andri Snær Magnason, Áslaug Jónsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994691027130,"sku":"9789979318927","price":3790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Sagan_af_blaa_hnettinum_prent-700x880.jpg?v=1631554249"},{"product_id":"kristnihald-undir-jokli-kilja","title":"Kristnihald undir Jökli - kilja","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eKristnihald undir Jökli\u003c\/em\u003e er eitt sérstæðasta listaverkið í sagnaskáldskap Halldórs Laxness. Sagan segir frá Umba, umboðsmanni biskups, sem fer að kanna kristnihald undir Jökli. Þar kynnist hann mörgum forvitnilegum persónum: Jóni Prímusi, dr. Godman Sýngmann, Hnallþóru og Úu – konunni sem tekur hann til sín og breiðir yfir hann vængi sína svo hann gleymir öllu öðru.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eKristnihald undir Jökli\u003c\/em\u003e hlaut mikið lof gagnrýnenda og lesenda þegar bókin var fyrst gefin út árið 1968. Halldór kemur enn á óvart með ferskum töfrum listar sinnar, persónulegum viðhorfum og ritsnilld sem virðist ekkert ómáttugt. Kristnihaldið hefur bæði verið sett á svið og kvikmyndað.\u003c\/p\u003e","brand":"Halldór Laxness","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40073084731578,"sku":"9789979212591","price":1690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/kristnihald-1-693x1024.jpg?v=1629991292"},{"product_id":"riddarar-hringstigans","title":"Riddarar hringstigans","description":"\u003cp\u003eSkáldsagan\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eRiddarar hringstigans\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003ehlaut afbragðsviðtökur þegar hún kom út fyrst árið 1982. Hún vann til fyrstu verðlauna í bókmenntasamkeppni sem Almenna Bókafélagið efndi til og hefur síðan verið gefin út víða erlendis. Sagan sem er sú fyrsta í þríleik gerist í Reykjavík á 7. áratug 20. aldar í nýju hverfi, fullu af steypuryki, stillönsum, leyndardómum og börnum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSögumaður er ungur drengur, sannkallað barn í uppátækjum sínum og viðhorfum, en býr þó jafnframt yfir speki öldungsins. Bókin er í senn bráðfyndin og alvöruþrungin, barnsleg og spámannleg og markaði tímamót í íslendskri skáldsagnagerð.\u003c\/p\u003e","brand":"Einar Már Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43457964441834,"sku":"9789979537793","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/riddararhringstigans.jpg?v=1778423540"},{"product_id":"piltur-og-stulka","title":"Piltur og stúlka","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eFá íslensk skáldverk hafa náð annarri eins hylli\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003ehjá þjóðinni og Piltur og stúlka. Þessi\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003erómantíska saga með raunsæisblæ er sprottin úr\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003erammíslenskum veruleika og náðu persónur hennar\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eþvílíkum tökum á landsmönnum að þær lifa sumar\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003ehverjar enn góðu lífi í hugum manna Í hver\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eþekkir t.a.m. ekki Gróu á Leiti?\u003c\/span\u003e","brand":"Jón Thoroddsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46922535928112,"sku":"9789979657163","price":3590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/BJJT1K.jpg?v=1696868262"},{"product_id":"bref-til-laru","title":"Bréf til Láru","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„\u003cem\u003eBréf til Láru\u003c\/em\u003e hefur kannski haft meiri áhrif en nokkur önnur bók, sem rituð hefur verið á íslenska tungu. … Hún verkaði eins og sprenging, sem molaði niður ýmsar villukenningar og úreltar hugmyndir. Fyrir þá, sem sprenging þessi var lausn, var hún gleðiboð – skapur, en [fyrir hina], sem fundu stuðning í villukenningunum og hinum úreltu hugmyndum, var hún hræðileg bók og höfundurinn vitlaus maður.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞannig lýsir Þórbergur Þórðarson bók sinni, \u003cem\u003eBréfi til Láru\u003c\/em\u003e, sem kom fyrst út árið 1924 en oft síðan. Bókin olli miklu fjaðrafoki og deilum en boðaði um leið nýja tíma í íslenskum bókmenntum. Ýmsum sveið undan hárbeitt­um skotum höfundar en þó er það ekki síst stórkostleg sjálfslýsing hans sem gerir \u003cem\u003eBréf til Láru\u003c\/em\u003e að sígildri bók. Óborganlegur húmor Þórbergs nýtur sín til fulls í ádeilum hans og skopi sem hann beinir í allar áttir og ekki síst að sjálfum sér.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta einstæða meistaraverk kemur nú út í nýrri útgáfu á hundrað ára afmæli bókarinnar. Soffía Auður Birgisdóttir ritar inngang og tekur saman ítarlegar skýringar á mönnum og málefnum sem Þórbergur víkur að og opnar nýjum lesendum þannig dyr inn í galskapinn.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Þórbergur Þórðarson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48932812521776,"sku":"9789979352334","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Bref_til_Laru_72.jpg?v=1723130982"},{"product_id":"svartar-fjadrir","title":"Svartar fjaðrir","description":"\u003cp\u003eDavíð Stefánsson (1895–1964) var fæddur á bænum Fagraskógi í Eyjafirði. Hann var um tvítugt þegar ljóð hans í tímaritum vöktu athygli ljóðaunnenda, raunar svo mjög að beðið var þessarar fyrstu bókar hans með óþreyju. Hún kom út rétt fyrir jólin 1919 og olli ekki vonbrigðum. Lengi hafði æska landsins þurft að bæla langanir sínar og þrár en nú var eins og ný öld losaði um alla fjötra og Davíð orðaði í opinskáum, ástríðufullum ljóðum sínum bæði það sem heillaði og skelfdi við nýstárlegt frelsi tilfinninganna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFáar íslenskar ljóðabækur hafa notið annarrar eins hylli og \u003cem\u003eSvartar fjaðrir\u003c\/em\u003e. Frá frumprentun hefur bókin komið út hvað eftir annað, ýmist ein og sér eða í ljóðasöfnum Davíðs, og telst þetta vera 13. útgáfa hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSilja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritaði formála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Davíð Stefánsson lifði í þeirri ljóðlist sem var einsog töluð útúr hjarta þjóðarinnar á enn einum morni þjóðarævinnar; og heldur áfram að lifa þar.“\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e-Halldór Laxness \/ Upphaf mannúðarstefnu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Hafi nokkru sinni leiftrað af eldtungu í íslenskri ljóðlist, þá var það þegar Davíð Stefánsson hóf þar flugið á sínum ‚svörtu fjöðrum‘.“\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e-Jóhannes úr Kötlum \/ TMM\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgefandi: \u003cstrong\u003eFORLAGIÐ\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Davíð Stefánsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49463318479152,"sku":"9789979535539","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Svartar_fjadrir.jpg?v=1737112703"},{"product_id":"snorra-edda-kilja","title":"Snorra Edda - kilja","description":"\u003cp\u003eÍ \u003cem\u003eSnorra-Eddu\u003c\/em\u003e er að finna Prologus, Gylfaginningu, Skáldskaparmál, Háttatal og nafnaþulur, ásamt inngangi eftir Heimi Pálsson og stuttri kynningu á undan hverjum hluta verksins. Lögð hefur verið áhersla á ítarlegar orða- og vísnaskýringar til að mæta þörfum ungs nútímafólks. Nafnaskrá tekur til alls lausa málsins og skrá yfir kenningar og heiti eykur notagildi verksins fyrir áhugamenn um fornan kveðskap.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin tilheyrir ritröðinni Sígild fræði og Heimir Pálsson annaðist útgáfuna.\u003c\/p\u003e","brand":"Snorri Sturluson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49655907811632,"sku":"9789979324256","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/2480-4001-175x272.jpg?v=1743085875"},{"product_id":"myrin","title":"Mýrin","description":"\u003cp\u003eRoskinn maður finnst myrtur í kjallara í Norðurmýri í Reykjavík. Í skrifborði hans er falin gömul ljósmynd af grafreit fjögurra ára stúlkubarns. Að baki býr saga um skelfilega glæpi og óbærileg leyndarmál. Rannsóknarlögregluteymið Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg standa frammi fyrir óvenju flóknu og erfiðu máli sem teygir anga sína inn í myrka fortíð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi áhrifaríka saga, með Erlend rannsóknarlögreglumann í forgrunni, var fjórða bók Arnaldar Indriðasonar og með henni hófst glæstur ferill hans sem metsöluhöfundar en skáldsögur hans nálgast nú þriðja tuginn. \u003cem\u003eMýrin\u003c\/em\u003e hlaut á sínum tíma norrænu glæpasagnaverðlaunin Glerlykilinn og fleiri viðurkenningar, eftir henni var gerð kvikmynd og hún hefur verið þýdd á yfir fjörutíu tungumál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eKatrín Jakobsdóttir\u003c\/strong\u003e skrifar eftirmála þessarar útgáfu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eMýrin\u003c\/em\u003e markaði tímamót þegar hún kom fyrst út árið 2000. Hún var fyrsta íslenska glæpasagan sem komst ofarlega á metsölulista, talaði beint inn í samtímann og hefur haldið gildi sínu í aldarfjórðung. Fáar íslenskar bækur hafa notið meiri hylli lesenda heima og erlendis og sagan er löngu orðin sígild.\u003c\/p\u003e","brand":"Arnaldur Indriðason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50048354451760,"sku":"9789979538448","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Myrin_1400-1300x2048.jpg?v=1755016261"},{"product_id":"astin-fiskanna","title":"Ástin fiskanna","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSamanta og Hans hittast fyrir tilviljun í útlendri borg, skoða saman kastala og skála á bar. Heima á Íslandi rekast þau hvort á annað á ný og eftir koss undir reynitré um miðja sumarnótt verja þau saman óviðjafnanlegum degi fram á kvöld. Hans er á leið í ferðalag en Samanta kýs að fylgja honum ekki – og þar með er öllu lokið, hvort fer sína leið.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e\u003ci\u003e \u003c\/i\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e\u003ci\u003eÁstin fiskanna\u003c\/i\u003e er einstök saga um ást sem ekki fær að dafna. Samanta segir söguna eftir á, þriggja ára sögu um kalda ást sem þó er heitari en heit; á yfirborðinu er frásögnin hárbeitt, kaldhæðin og fyndin en undir niðri harmþrungin og sár. Stíllinn er fágaður og snjall, náttúrulýsingarnar magnaðar og treginn djúpur.\u003ci\u003e \u003c\/i\u003eBókin\u003ci\u003e \u003c\/i\u003evakti verðskuldaða athygli og hlaut mikið lof þegar hún kom fyrst út árið 1993 og þessi heillandi saga hefur alla tíð átt trygga aðdáendur heima og erlendis\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEleonore Gudmundsson íslenskulektor og þýðandi ritar eftirmála.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Steinunn Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50114991030576,"sku":"9789979538523","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Astin_fiskanna_72.jpg?v=1757696618"},{"product_id":"barattan-um-braudid","title":"Baráttan um brauðið","description":"\u003cp\u003e\u003ci data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eFátæku fólki\u003c\/i\u003e, fyrsta bindi æviminninga\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eTryggva Emilssonar\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003everkamanns, var tekið með kostum og kynjum þegar það var endurútgefið árið 2010 og í Morgunblaðinu var fullyrt að bókin væri „ein merkasta og áhrifamesta ævisaga sem skrifuð var hér á landi á 20. öld“.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eBaráttan um brauðið \u003c\/i\u003ehefst árið 1920 þegar Tryggvi er sautján ára og fylgir honum í vinnumennsku, við búskaparhokur, gegnum illskeytta berkla og atvinnuleysi. Þegar íslensk alþýða rís upp gegn smánarkjörum sínum tekur Tryggvi þátt í þeirri baráttu af heilum hug. En aldrei gleymir hann því sem skipti hann mestu: ást á náttúrunni, kærleika til náungans og virðingu fyrir skáldskapnum.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eFátækt fólk \u003c\/i\u003eog \u003ci\u003eBaráttan um brauðið \u003c\/i\u003evoru báðar tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.\u003c\/div\u003e","brand":"Tryggvi Emilsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66838330638640,"sku":"9789979535737","price":4890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Barattan_um_braudid.jpg?v=1779380251"},{"product_id":"salka-valka-rauda-serian","title":"Salka Valka","description":"\u003ch1\u003e\u003cspan\u003eSalka Valka\u003c\/span\u003e\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eeftir Halldór Laxness\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Í þorpinu ræður kaupmaðurinn lögum og lofum en lífsbarátta alþýðunnar er hörð og óvægin. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd – en ávallt leika ást og dauði undir.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eTímalaust meistaraverk\u003c\/h2\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eSalka Valka\u003c\/i\u003e er meðal þekktustu skáldsagna Halldórs Laxness. Hún kom upphaflega út í tveimur bindum 1931–1932 og hefur verið gefin út margoft síðan heima og erlendis.\u003c\/div\u003e","brand":"Halldór Laxness","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66882618425648,"sku":"9789979229995","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/SalkaValka.jpg?v=1780144145"},{"product_id":"sjalfstaett-folk","title":"Sjálfstætt fólk","description":"\u003ch1\u003e\u003cspan\u003eSjálfstætt fólk\u003c\/span\u003e\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eeftir Halldór Laxness\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSaga hins þrjóska einyrkja, Bjarts í Sumarhúsum, og baráttu hans við allt og alla er bæði þjóðleg og alþjóðleg – sígild frásögn af hlutskipti fátæks fólks í hörðum heimi. Magnaðar persónulýsingar og djúpur mannskilningur gera þessa miklu sögu að óviðjafnanlegu bókmenntaverki þar sem leikið er á strengi andstæðra tilfinninga af stakri snilld.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cb id=\"docs-internal-guid-f58b8417-7fff-a170-c281-9832edb8aa28\"\u003eTímalaust meistaraverk\u003c\/b\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eSjálfstætt fólk\u003c\/i\u003e er þekktasta skáldsaga Halldórs Laxness og sú sem víðast hefur ratað. Hún kom fyrst út í tveimur bindum 1934–1935 og hefur verið gefin út margsinnis síðan á ótal tungumálum.\u003c\/div\u003e","brand":"Halldór Laxness","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66882618556720,"sku":"9789979230007","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/SjalfstaettFolk.jpg?v=1780144813"}],"url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/islensk-klassik.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}