{"title":"Ljóð \u0026 smásögur","description":"\u003cp\u003eLjóð og smásögur í útskriftargjöf.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"ljodasafn-gerdur-kristny","title":"Ljóðasafn - Gerður Kristný","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ fyrstu ljóðabók sinni, \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍsfrétt\u003c\/em\u003e, sló Gerður Kristný einkennandi tón þar sem meitlað orðfæri og stuðlar minntu á forna bragarhætti. Knöpp erindi miðluðu sterkum tilfinningum ástar, haturs og söknuðar. Ljóðin hafa verið hryggjarstykkið í rithöfundarferli Gerðar og fyrir þau hefur hún hlotið margvíslegar viðurkenningar. Fyrir ljóðabálkinn \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eBlóðhófni\u003c\/em\u003e, þar sem efnið er sótt í Eddukvæðið Skírnismál, hlaut Gerður Kristný Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLjóðasafnið geymir allar ljóðabækur Gerðar fram til 2014:\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e Ísfrétt, Launkofa, Höggstað, Blóðhófni\u003c\/em\u003e og \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eStrandir\u003c\/em\u003e en sumar þeirra hafa verið ófáanlegar árum saman.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eGuðrún Nordal ritar formála.\u003c\/p\u003e","brand":"Gerður Kristný","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39976290156730,"sku":"9789979334347","price":6290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Ljodasafn-scaled-700x1072.jpg?v=1630338993"},{"product_id":"ljodaurval-johannes-ur-kotlum","title":"Ljóðaúrval - Jóhannes úr Kötlum","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSkáldið Jóhannes úr Kötlum (1899-1972) lifði mikla umbrotatíma í sögu og bókmenntum og ef velja ætti eitt skáld sem fulltrúa 20. aldarinnar á Íslandi yrði það næsta óhjákvæmilega hann. Ekkert íslenskt skáld sýnir eins nákvæmlega þróun ljóðlistarinnar hér á landi og þessi fjölhæfi og afkastamikli höfundur sem færði þjóðinni svo mörg einstæð og áhrifamikil ljóð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eJóhannes úr Kötlum hóf feril sinn sem nýrómantískt skáld en á kreppuárunum var hann í broddi fylkingar róttækra skálda. Í umróti stríðsára og eftirstríðsára gerði hann tilraunir með frjálsa bragarhætti og endurnýjaði form sitt af listfengi og frumleika. Loks náði hann í alþjóðlega róttæka bylgju á sjöunda áratugnum og stóð á nýjum hátindi ferils síns þegar hann féll frá.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ ljóðaúrvali Jóhannesar(2010) eru ljóð úr öllum bókum hans fyrir fullorðna, bæði frumsamin og þýdd, sem gefa breiða mynd af margslungnum ljóðheimi skáldsins. Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritar inngang.\u003c\/p\u003e","brand":"Silja Aðalsteinsdóttir, Jóhannes úr Kötlum","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39976293695674,"sku":"9789979331131","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Johannes_ur_kotlum_175.jpg?v=1630339424"},{"product_id":"jon-ur-vor-ljodasafn","title":"Jón úr Vör - Ljóðasafn","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSkáldið Jón úr Vör (1917-2000) kvaddi sér hljóðs ungur að árum og setti nýjan svip á íslenska ljóðagerð um miðbik 20. aldar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eTvítugur gaf hann út fyrstu ljóðabók sína,\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÉg ber að dyrum\u003c\/em\u003e, en með tímamótaverkinu\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞorpinu\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e(1946) varð hann þjóðkunnur. Eftir það sendi hann frá sér mörg verk og síðasta ljóðabókin,\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eGott er að lifa\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e(1984), var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHann var helsti forkólfur raunsæis, undanfari atómskáldanna og áhrifaskáldið þegar horft er til ljóða þeirra sem síðar komu fram á sjónarsviðið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLjóðasafnið hefur að geyma öll útgefin ljóð Jóns úr Vör. Ferill hans spannaði hálfa öld og bækurnar urðu 12 talsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eAðalsteinn Ásberg Sigurðsson ritar greinargóðan inngang um ævi og störf skáldsins.\u003c\/p\u003e","brand":"Jón úr Vör","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39976296120506,"sku":"9789935401519","price":9845.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/JuV_RITSAFN_2017w.jpg?v=1629907598"},{"product_id":"perlur-ur-ljodum-islenskra-kvenna","title":"Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e„Freistandi er að halda því fram að konur gangi nær sjálfum sér í ljóðum sínum en karlar, yrki oftar og meira um persónulega reynslu en þeir og lífshlutverk sín – að vera dóttir, systir, vinkona, ástkona, eiginkona, móðir, formóðir. Þó var það ekki fyrr en valið í þetta kvennaljóðasafn var langt komið sem sú hugmynd fæddist að láta ljóðin mynda eins konar lífssögu: Byrja á ljóðum um að vera barn, sem síðan yxi upp, yrði unglingsstúlka, kona … Þó að ekki fylli öll ljóðin þessa „konuævi“ gerði ákvörðunin valið oft auðveldara, og ekki veitti af. Konum sem yrkja er ekkert mannlegt óviðkomandi eins og hér má sjá og eftir þær er til efni í mörg og margvísleg ljóðasöfn.“\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eSilja Aðalsteinsdóttir, 1998\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePerlur úr ljóðum íslenskra kvenna voru prentaðar tvisvar, 1998 og 1999, en eru löngu uppseldar. Það hefur orðið að ráði að gera nýja útgáfu og auka við nokkrum ljóðum sem hafa verið ort síðan. Enn var beitt sömu aðferð, leitað að ljóðum þar sem skáldkonur lýsa persónulegri og kynbundinni reynslu.\u003c\/p\u003e","brand":"Silja Aðalsteinsdóttir valdi","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39976301002938,"sku":"9789979536222","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Perlur_kvenna_72.jpg?v=1631104216"},{"product_id":"sogur-og-ljod-asta-sigurdardottir","title":"Sögur og ljóð - Ásta Sigurðardóttir","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e„Ef einhver hefði tekið eftir hvernig þær horfðu á mig, rétt áður en ég fór, hvernig þær litu hver á aðra, þegar þær gengu framhjá mér, hefði hann ályktað: – Þarna er sú seka, – skækjan. Hvernig áttu þær að geta skilið mig?“\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e Ásta Sigurðardóttir (1930–1971) rótaði heldur betur upp í bæjartjörn Reykjavíkur þegar fyrsta smásagan hennar, Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns, birtist í tímaritinu Líf og list 1951. Á næstu árum vakti hver sagan af annarri mikla athygli – Draumurinn , Í hvaða vagni, Gatan í rigningu – og safnið sem kom út 1961 varð sígilt um leið. Smásögur Ástu og dúkristur eru enn ferskar, ögrandi og þrungnar heitum tilfinningum. Þær eru íslensk nútímaklassík. Ásta, leikverk Ólafs Egils Egilssonar, byggt á ævi og skáldskap Ástu Sigurðardóttur, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið 2021.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e„Fyrsta sagan eftir kvenrithöfund sem hefur það að hugsjón að ljóstra upp um karlrembuháttinn í íslensku samfélagi.“ STEINGRÍMUR ST. TH. SIGURÐSSON \/ TMM\u003c\/p\u003e","brand":"Ásta Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40498932875450,"sku":"9789979537502","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/image003.jpg?v=1632404134"},{"product_id":"ljodin-hennar-vigdisar","title":"Ljóðin hennar Vigdísar","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eVart verður fundin meiri ástríðumanneskja þegar kemur að íslenskri tungu og menningu en Vigdís Finnbogadóttir. Vigdís hefur alla tíð verið unnandi ljóðlistar og hér tekur hún saman helstu ljóðin sem hafa fylgt henni frá bernsku til dagsins í dag. Einstök verk listakonunnar Guðbjargar Lindar auðga ljóðlínurnar og mynda skemmtilegt samtal við kvæðin.\u003c\/span\u003e","brand":"Vigdís Finnbogadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43667680624944,"sku":"9789935310163","price":6990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/vigd.jpg?v=1666620406"},{"product_id":"ko-kristin-omarsdottir-ljodasafn","title":"KÓ - Kristín Ómarsdóttir ljóðasafn","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp\u003eÞetta safn geymir fyrstu átta ljóðabækur Kristínar Ómarsdóttur sem flestar hafa verið ófáanlegar um margra ára skeið. Bækurnar í þessu safni komu fyrst út á árunum 1987–2017 og hafa tryggt Kristínu stöðu meðal virtustu skálda þjóðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur ritar eftirmála.\u003c\/p\u003e","brand":"Kristín Ómarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44808638497072,"sku":"9789935485298","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/KristinOmarsdottir_Ljodasafn_Partus_2560x_16ca9401-2bb7-462f-b7c8-2dfe2ca08f86.png?v=1680083354"},{"product_id":"vandamal-vina-minna","title":"Vandamál vina minna","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eVandamál vina minna er fágætlega heilsteypt og meitluð ljóðabók þar sem Harpa Rún Kristjánsdóttir tekst á við það hlutskipti að vera kona, að vera manneskja, að vera vinur ... Myndvísi hennar og traust tök á ljóðmáli leiða til þess að ljóð hennar tjá hughrif og kenndir á óvenju áhrifamikinn hátt og verða lesendum minnisstæð.\u003c\/span\u003e","brand":"Harpa Rún Kristjánsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47026822185264,"sku":"9789935303165","price":4190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Vandamal-vina-minna-FRAMAN.jpg?v=1698941402"},{"product_id":"polstjarnan-fylgir-okkur-heim","title":"Pólstjarnan fylgir okkur heim","description":"\u003cp\u003ePólstjarnan\u003cspan\u003e fylgir okkur heim er magnaður \u003cstrong\u003eljóðaseiður\u003c\/strong\u003e um lífið, dauðann, tímann innra með okkur og veraldarundrið vonina.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003ePólstjarnan fylgir okkur heim, nýjasta ljóðabók \u003cstrong\u003eMargrétar Lóu Jónsdóttur\u003c\/strong\u003e, er komin út hjá Sölku. Margrét hlaut \u003cstrong\u003ebókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar \u003c\/strong\u003efyrir bókina en þau eru \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eveitt ár hvert í minningu skáldsins Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e Í umsögn dómnefndar segir að Pólstjarnan fylgir okkur heim sé magnaður ljóðaseiður um lífið, dauðann, tímann innra með okkur og veraldarundrið vonina. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003ePólstjarnan fylgir okkur heim\u003c\/strong\u003e er fimmtánda ljóðabók Margrétar en hún hefur einnig gefið út eina skáldsögu. Margrét hefur síðustu ár fengist við skáldskap, þýðingar, kennslu og myndlist. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eUmsögn dómnefndar í heild sinni:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cem\u003e\"Ljóðmælandi situr á útikaffihúsi og hugsar um lífið og tilveruna. Minningar leita á hana; minningar um látna ástvini, ljúfsár augnablik úr æsku og ferðalög á fjarlægar slóðir. Úr þessum minningum verður til ljóðrænt vitundarstreymi sem er í senn kjarnyrt og margrætt.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cem\u003ePólstjarnan fylgir okkur heim er vandað og vel uppbyggt handrit með skýrum boga. Um er að ræða samfellda frásögn sem skiptist í mörg stutt, ónefnd ljóð sem saman mynda samhljóm er minnir á sinfóníu eða óhlutbundið kvikmyndaverk. Ljóðmálið er tært og grípandi og í gegnum handritið má finna magnaðar ljóðmyndir sem sitja lengi í huga lesanda að lestri loknum.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cem\u003eHöfundur fetar fimlega einstigið á milli hins pólitíska og persónulega, án þess þó að vera prédikandi og þrátt fyrir að hér sé ort um flóttafólk, stríð og dauða þá liggur í gegnum handritið þráður vonar sem er ekki bara viðeigandi fyrir þá tíma sem við lifum, heldur ef til vill nauðsynlegur. Táknmynd handritsins er Pólstjarnan, leiðarstjarnan sem í aldanna rás hefur vísað mannkyninu veginn um ókunn höf og lönd.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cem\u003eÁ sama hátt og Pólstjarnan vísaði sæförum veginn á öldum áður, vísar hún lesendum veginn í gegnum handrit sem við fyrstu sýn virðist ólínulegt en er þó jafn víðáttumikið og kunnuglegt og stjörnuhiminninn.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cem\u003ePólstjarnan fylgir okkur heim er magnaður ljóðaseiður um lífið, dauðann, tímann innra með okkur og veraldarundrið vonina.\"\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/menning-og-daegurmal\/2024-10-19-fegin-ad-hafa-ekki-gert-ser-grein-fyrir-alvorunni-tha-hugsa-eg-ad-eg-hefdi-ekki-skellt-mer-svona-fljott-i-djupu-laugina-425126\" data-mce-href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/menning-og-daegurmal\/2024-10-19-fegin-ad-hafa-ekki-gert-ser-grein-fyrir-alvorunni-tha-hugsa-eg-ad-eg-hefdi-ekki-skellt-mer-svona-fljott-i-djupu-laugina-425126\"\u003eMargrét Lóa í viðtali við Bara bækur á Rás 1\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"https:\/\/www.mbl.is\/mogginn\/bladid\/innskraning\/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1873292%2F%3Ft%3D946484621\u0026amp;page_name=grein\u0026amp;grein_id=1873292\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\" data-mce-href=\"https:\/\/www.mbl.is\/mogginn\/bladid\/innskraning\/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1873292%2F%3Ft%3D946484621\u0026amp;page_name=grein\u0026amp;grein_id=1873292\"\u003eViðtal við Margréti Lóu í Morgunblaðinu\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÚtgefandi: \u003cstrong\u003eSALKA\u003c\/strong\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Margrét Lóa Jónsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49167207498032,"sku":"9789935516725","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Polstjarnan.jpg?v=1729180479"},{"product_id":"svartar-fjadrir","title":"Svartar fjaðrir","description":"\u003cp\u003eDavíð Stefánsson (1895–1964) var fæddur á bænum Fagraskógi í Eyjafirði. Hann var um tvítugt þegar ljóð hans í tímaritum vöktu athygli ljóðaunnenda, raunar svo mjög að beðið var þessarar fyrstu bókar hans með óþreyju. Hún kom út rétt fyrir jólin 1919 og olli ekki vonbrigðum. Lengi hafði æska landsins þurft að bæla langanir sínar og þrár en nú var eins og ný öld losaði um alla fjötra og Davíð orðaði í opinskáum, ástríðufullum ljóðum sínum bæði það sem heillaði og skelfdi við nýstárlegt frelsi tilfinninganna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFáar íslenskar ljóðabækur hafa notið annarrar eins hylli og \u003cem\u003eSvartar fjaðrir\u003c\/em\u003e. Frá frumprentun hefur bókin komið út hvað eftir annað, ýmist ein og sér eða í ljóðasöfnum Davíðs, og telst þetta vera 13. útgáfa hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSilja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritaði formála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Davíð Stefánsson lifði í þeirri ljóðlist sem var einsog töluð útúr hjarta þjóðarinnar á enn einum morni þjóðarævinnar; og heldur áfram að lifa þar.“\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e-Halldór Laxness \/ Upphaf mannúðarstefnu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Hafi nokkru sinni leiftrað af eldtungu í íslenskri ljóðlist, þá var það þegar Davíð Stefánsson hóf þar flugið á sínum ‚svörtu fjöðrum‘.“\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e-Jóhannes úr Kötlum \/ TMM\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgefandi: \u003cstrong\u003eFORLAGIÐ\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Davíð Stefánsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49463318479152,"sku":"9789979535539","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Svartar_fjadrir.jpg?v=1737112703"},{"product_id":"mara-kemur-i-heimsokn","title":"Mara kemur í heimsókn","description":"\u003cp\u003e\u003cem\u003eMara kemur í heimsókn\u003c\/em\u003e fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNatasha S. er íslenskur rithöfundur af rússneskum uppruna sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir ljóð sín og greinar. Hún sló eftirminnilega í gegn með útgáfu fyrstu ljóðabókar sinnar \u003cem\u003eMáltaka á stríðstímum\u003c\/em\u003e, en fyrir hana hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Natasha hefur einnig verið öflugur talsmaður skálda af erlendum uppruna á Íslandi og ritstýrði ljóðasafninu \u003cem\u003ePólífónía af erlendum uppruna\u003c\/em\u003e og ritgerðasafninu \u003cem\u003eSkáldreka\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Natasha s","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49775348711728,"sku":"9789935322562","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/mara-kemur.jpg?v=1746202746"},{"product_id":"hvalbak","title":"Hvalbak","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003ci data-ogsc=\"\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eHvalbak\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e er önnur ljóðabók Maó Alheimsdóttur. Skáldsaga hennar, \u003c\/span\u003e\u003ci data-ogsc=\"\"\u003eVeðurfregnir\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci data-ogsc=\"\"\u003eog\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci data-ogsc=\"\"\u003ejarðarfarir\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2024 en hún er fyrsta frumsamda sagan sem kemur út á íslensku eftir höfund sem lærði málið á fullorðinsaldri. Einstök ljóðabók þar sem greina má nýtt og ferskt sjónarhorn á íslenska náttúru og tungu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Maó Alheimsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50170991149360,"sku":"9789979353645","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Hvalbak_72.jpg?v=1759161904"},{"product_id":"fyrir-visindin","title":"Fyrir vísindin","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eVísindakonan tekur vinnuna aldrei með sér heim \/ getur ekkert að því gert að sum hús \/ eru í eðli sínu tilraunastofur \/ þakrenna dropamælir \/ þröskuldur loftvog \/ gluggi smásjá \/ glerskápur jarðskjálftamælir. Anna Rós kveður sér hljóðs með vísindalegri nákvæmni í sinni fyrstu ljóðabók. Árið 2025 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir Skeljar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Anna Rós Árnadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50192160031024,"sku":"9789935323200","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Fyrirvisindin.jpg?v=1779888781"},{"product_id":"visindalaesi-7-solmyrkvar-1","title":"Í hæfilegu magni","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eKraftmikil ljóðabók um litríka uppreisn gegn þeim þrönga stakki sem samfélagið sníður konum. Bók sem er of hávær, of fjörug og fjallar um allt of stórar tilfinningar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003ci\u003eÍ hæfilegu magni\u003c\/i\u003e er fyrsta ljóðabók Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur (f. 1992) en hún bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2022 með sögunni\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eGetnaði\u003c\/i\u003e. Saga hennar\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eStúlkan sem skemmdi (næstum\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eþví) jólin\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003evarð hlutskörpust í samkeppninni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2021.\u003c\/div\u003e","brand":"Heiða Vigdís Sigfúsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66557593354544,"sku":"9789979354833","price":5290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Outlook-o3lcdelw.png?v=1776352136"},{"product_id":"urval-smasagna","title":"Úrval smásagna","description":"\u003cp\u003eÚrval smásagna eftir Þórarin Eldjárn inniheldur úrval úr smásögum hans frá árunum 1981 – 2021.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eBókin er þriðja bók í seríu með 100 Kvæðum og Dreymt bert.\u003cbr\u003e \u003cbr\u003eKristján Þórður Hrafnsson valdi sögurnar og ritaði eftirmála. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ eftirmála Kristjáns Þórðar stendur meðal annars:\u003cbr\u003e „Húmor Þórarins Eldjárns ljær mannlífinu sjarma fjölbreytileikans, óreiðunnar og skringilegheitanna. Hann hjálpar okkur að horfast í augu við hið skrýtna í okkur manneskjunum og fáránleikann í tilverunni með bros á vör.“\u003c\/p\u003e","brand":"Þórarinn Eldjárn","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66696105623856,"sku":"9789935988706","price":10490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/KapaUrvalsmasagna.jpg?v=1777464667"},{"product_id":"ljodasafn","title":"Ljóðasafn","description":"\u003cp\u003e„Það ljóðasafn, sem hér er borið fram, er vitnisburður um þá fjölbreytni og dýpt sem einkennt hefur skáldskap Njarðar P. Njarðvík í gegnum áratugi. Hér má finna náttúruljóð, heimspekilegar hugleiðingar, ádeilu, ástarljóð og tilvistarlega íhugun – allt sett fram með þeirri næmni og orðfimi sem aðeins lífsreynt og einlægt skáld býr yfir. ...     Lesendum er hér með boðið að stíga inn ljóðheim „í faðmi tungunnar“ þar sem andartakið og eilífðin mætast í orði sem lýsir, talar til okkar með þögninni og leiðir okkur nær kjarna tilverunnar.“ – Úr inngangi Ólínar Þorvarðardóttur.\u003c\/p\u003e","brand":"Njörður P. Njarðvík","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66874678903088,"sku":"9789935332080","price":8990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/LjodasafnNPN.jpg?v=1779886597"}],"url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/ljod-smasogur.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}