Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Stóra alifuglabókin

2,990 ISK

Höfundur Úlfar Finnbjörnsson

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Úlfar Finnbjörnsson er fjölhæfur listamaður þegar kemur að eldamennsku. Hann hefur rekið veitingastaði, verið í kokkalandsliðinu, séð um sjónvarpsþætti og skrifað bækur. Til dæmis má nefna Stóru bókina um villibráð sem hlaut frábærar viðtökur og tilnefningu til hinna virtu Gourmand verðlauna sem besta villibráðarbók heims 2011. Í þessari glæsilegu bók má finna sælkerauppskriftir að öllum þeim tegundum alifugla sem ræktaðar eru hér á landi. 

Hér er kjúklingur, kalkúnn, önd, gæs, dúfa og silkihæna í hversdags- og sparibúningi, ásamt gómsætu meðlæti, kryddpæklum og fyllingum, að ógleymdum skref fyrir skref myndum þar sem Úlfar kennir handtökin við verkun og nýtingu. Hér er komin ein ítarlegasta og fjölbreyttasta matreiðslubók sem gefin hefur verið út hér á landi og staðfestir hún einnig hversu mikill listamaður Úlli í raun og veru er. Ljósmyndir Karls Peterssonar setja síðan punktinn yfir i-ið. Úlli hefur svo sannarlega farið á flug með þessari glæsilegu bók sem ætti að nýtast öllum í eldhúsinu, jafnt áhugafólki sem fagfólki. Guðrún Hrund Sigurðardóttir