{"title":"Sígildar barnabækur","description":"\u003cp\u003eBarnabækur sem hægt er að lesa aftur og aftur og aftur og aftur.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"litli-prinsinn","title":"Litli prinsinn","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLitli prinsinn kom fyrst út árið 1943 og fór þá strax sigurför um heiminn. Nú er bókin talin meðal sígildra verka og er gefin út aftur og aftur á fjölmörgum þjóðtungum. Þessi einstæða saga á erindi við alla, unga sem gamla. Þar fléttast saman draumur og veruleiki, einfaldleiki og dul, létt gaman og djúp alvara sem vekur stöðugt til umhugsunar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHöfundurinn, Antoine de Saint-Exupéry, fæddist í Lyon í Frakklandi árið 1900 og var kunnur flugmaður og rithöfundur. Flugið heillaði hann, þar sá hann möguleika til að færa saman fólk og þjóðir. Í huga hans var ekkert eins mikilvægt og vinátta og mannskilningur, eins og kemur fram í Litla prinsinum. Skömmu áður en Frakkland var leyst úr ánauð var flugvél Saint-Excupérys skotin niður á könnunarflugi og hann hvarf í djúp Miðjarðarhafsins árið eftir að sagan um litla prinsinn hóf sigurför sína.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLitmyndir við söguna gerði höfundurinn sjálfur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞórarinn Björnsson íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Antoine de Saint-Exupéry","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39965642326202,"sku":"9789979331100","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Litli_prinsinn.jpg?v=1624631947"},{"product_id":"muminalfarnir","title":"Múmínálfarnir stórbók 1 - litlu álfarnir og flóðið mikla, Halastjarnar og Pípuhattur galdrakarlsins","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eLitlu álfarnir og flóðið mikla – Halastjarnan – Pípuhattur galdrakarlsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eAllir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHér birtast tvær af sögunum ástsælu,\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eHalastjarnan\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003eog\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003ePípuhattur galdrakarlsins\u003c\/em\u003e, en jafnframt allra fyrsta sagan af múmínálfunum,\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eLitlu álfarnir og flóðið mikla\u003c\/em\u003e, sem aldrei fyrr hefur komið út á íslensku. Þar segir frá leit múmínsnáðans og mömmu hans að múmínpabba eftir að allt fer á flot. Þau eignast nýja vini og lenda í ótrúlegum ævintýrum sem halda svo áfram í hinum sögunum: Halastjarna stefnir á Múmíndal, múmínsnáðinn og félagar fara í leiðangur upp í Einmanafjöll og eignast fleiri vini – og pípuhattur galdrakarlsins finnst og stefnir öllu í voða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eTove Jansson skrifaði sögurnar um múmínálfana og teiknaði myndirnar. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eHalastjörnunni\u003c\/em\u003e. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSteinunn Briem þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eHalastjörnuna\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003ePípuhatt galdrakarlsins\u003c\/em\u003e. Þórdís Gísladóttir þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eLitlu álfana og flóðið mikla\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Tove Jansson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994572669114,"sku":"9789979339458","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Muminalfarnir_Boksalaverdlaun-1-200x301.jpg?v=1631030840"},{"product_id":"muminalfarnir-2","title":"Múmínálfarnir stórbók 2 - Minnningar múmínpabba, Örlaganóttin, Vetrarundur í Múmíndal","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eMinningar múmínpabba – Örlaganóttin – Vetrarundur í múmíndal\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eAllir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSögurnar um múmínálfana eru sígildar perlur og þessi bók geymir þrjár þeirra. Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku fjórða sagan í bókaflokknum,\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eMinningar múmínpabba\u003c\/em\u003e, þar sem hann segir frá æskuárum sínum og frækilegum ævintýrum á sjó og landi. Einnig eru hér fimmta og sjötta sagan sem hafa lengi verið ófáanlegar. Þær eru\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÖrlaganóttin\u003c\/em\u003e, en þar þarf múmínfjölskyldan að yfirgefa heimili sitt og koma sér fyrir um tíma í gömlu leikhúsi, og\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVetrarundur í múmíndal\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003esem segir frá því þegar múmínsnáðinn vaknar óvænt úr vetrardvala og sér tilveruna í nýju ljósi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eRithöfundurinn, listmálarinn og teiknarinn Tove Jansson skapaði múmínálfana. Hún gerði um þá teiknimyndasögur, leikrit, myndskreyttar barnabækur og skrifaði níu sögubækur. Þær koma nú allar út í réttri röð í veglegum stórbókum. Þórdís Gísladóttir þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eMinningar múmínpabba\u003c\/em\u003e. Steinunn Briem þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÖrlaganóttina\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVetrarundur í múmíndal\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Tove Jansson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994575061178,"sku":"9789979340874","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mumin_storbok2-1200x1806.jpg?v=1631031016"},{"product_id":"muminalfarnir-3","title":"Múmínálfarnir stórbók 3 - Ósýnilega barnið, Eyjan hans Múmínpabba, Seint í nóvember","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eAllir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimynda-sögum, bíómyndum og ekki síst bókum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi bók geymir síðustu þrjár sögurnar um múmínálfana. Sjöunda og áttunda bókin hafa verið ófáanlegar árum saman: smásagnasafnið\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÓsýnilega barnið\u003c\/em\u003e, þar sem margs konar háski steðjar að söguhetjunum, og\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eEyjan hans múmínpabba\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003een þar finnst múmínpabba hann ekki vera til nokkurs gagns lengur svo hann flytur með fjölskylduna á eyðieyju langt úti í hafi. Níunda bókin,\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSeint í nóvember\u003c\/em\u003e, birtist nú í fyrsta skipti á ís­lensku en hún gerist á meðan múmínfjölskyldan er á eyjunni. Þá koma hemúll, fillífjonka, Snúður, kaskurinn Þófti og Skari gamli í múmíndal í leit að múmínfjölskyldunni en finna ýmis­legt dýrmætt í hennar stað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eRithöfundurinn, listmálarinn og teiknarinn Tove Jansson skapaði múmínálfana. Hún gerði um þá teiknimyndasögur, leikrit, myndskreyttar barna­bækur og skrifaði níu sögubækur. Nú eru þær loks allar fáanlegar á íslensku, í veglegum stórbókum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eGuðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÓsýnilega barnið\u003c\/em\u003e, Steinunn Briem þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eEyjuna hans múmín­pabba\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003eog Þórdís Gísladóttir þýddi\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSeint í nóvember.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Tove Jansson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994575323322,"sku":"9789979342243","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mumin_storbok3_72.jpg?v=1631031096"},{"product_id":"brodir-minn-ljonshjarta-ny","title":"Bróðir minn ljónshjarta ný","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eKlassísk bók sem á erindi á hvert heimili.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eJónatan hug­hreyst­ir Kalla bróð­ur sinn sem er dauð­vona og seg­ir hon­um frá Nangijala, þar sem æv­in­týri bíða þeirra sem deyja. Svo fer að Jónatan deyr á und­an en fljót­lega eru þeir bræð­ur sam­ein­að­ir í spenn­andi atburðarás.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003eÞorleifur Hauksson þýddi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgren","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994595082426,"sku":"9789979333005","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/brodir-minn_ljons-700x1040.jpg?v=1626703740"},{"product_id":"lotta-og-bornin-i-skarkalagotu","title":"Lotta og börnin í Skarkalagötu","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSystkinin Lotta, Jónas og Mía María hafa heillað lesendur á öllum aldri áratugum saman og nú eru sögurnar loksins fáanlegar á ný.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ bókinni eru tvær sögur eftir Astrid Lindgren um Lottu; \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eBörnin í Skarkalagötu\u003c\/em\u003e og \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eLotta flytur að heiman\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin er prýdd fjölda mynda eftir Ilon Wikland.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSigrún Árnadóttir þýddi.\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgren","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994596982970,"sku":"9789979342434","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Lotta_og_bornin_AstridLingren_72-700x1079.jpg?v=1630945041"},{"product_id":"a-saltkraku-ny","title":"Á Saltkráku - ný","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003eSögur Astridar Lindgren eru öllum Íslendingum vel kunnar og bækur hennar lesnar spjaldana á milli kynslóð eftir kynslóð.\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSaltkráka er lítil eyja í sænska skerjagarðinum. Dag nokkurn í júní kemur þangað fjölskylda í fyrsta sinn – faðir og fjögur börn hans. Sumarið sem bíður þeirra reynist ólíkt öllu öðru sem þau hafa áður kynnst.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eÁ Saltkráku\u003c\/em\u003e sló í gegn þegar hún var lesin í útvarp seint á 8. áratug síðustu aldar og eftir sögunni hafa verið gerðar vinsælar kvikmyndir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003eSilja Aðalsteinsdóttir þýddi\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994598064314,"sku":"9789979340812","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/A_Saltkraku_72pt.jpg?v=1625931766"},{"product_id":"ronja-raeningjadottir-ny","title":"Ronja ræningjadóttir ný","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ Matthíasarskógi búa grádvergar, rassálfar og nornir, og í kastalanum sem elding klauf í tvennt fyrir löngu hafast við tveir ræningjaflokkar. Þetta eru heimkynni vinanna Ronju og Birkis sem rata í fjölmörg ævintýri saman en lenda þó fyrst í vanda þegar þau þurfa að koma vitinu fyrir tvo þrjóska ræningjahöfðingja.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eRonja ræningjadóttir\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eer sígild saga eftir einn ástsælasta barnabókahöfund allra tíma. Þorleifur Hauksson þýddi.\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgren","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994599538874,"sku":"9789979332992","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Ronja_Raeningjadottir.jpg?v=1778417900"},{"product_id":"lina-langsokkur-allar-sogurnar","title":"Lína langsokkur allar sögurnar","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ meira en hálfa öld hefur Lína langsokkur verið fyrirmynd krakka um víða veröld í ótrúlegum uppátækjum og prakkaraskap. Hún er sterkasta stelpa í heimi og frjáls eins og fuglinn þar sem hún býr alein með sjálfri sér, apa og hesti í skakka húsinu sínu á Sjónarhóli. Þar má gera ýmislegt sér til skemmtunar og ekki má síður hafa gaman af siglingu til suðurhafseyja á sjóræningjaskipinu Æðikollu í fylgd Tomma og Önnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHér birtast allar sögurnar af Línu langsokk í einni stórbók, Lína langsokkur, Lína langsokkur ætlar til sjós og Lína langsokkur í Suðurhöfum, í frábærri þýðingu Sigrúnar Árnadóttur.\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgren","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994599964858,"sku":"9789979334798","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/LinaLangsokkur-scaled-700x1054.jpg?v=1630165350"},{"product_id":"palli-var-einn-i-heiminum","title":"Palli var einn í heiminum","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePalli vaknar einn daginn upp við að engin er til í heiminum nema hann, hann gengur um borgina og gerir allt sem hann langar til að gera því engin getur skammað hann eða þvælst fyrir honum. En er gaman að gera skemmtilega hluti þegar engin er með þér ?\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin kom fyrst út í Kaupmannahöfn árið 1942 og hefur verið gefin út á um 40 tungumálum í miljónum eintaka.\u003c\/p\u003e","brand":"Jens Sigsgaard","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994661568698,"sku":"978807172","price":2690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/001-1200x1856.jpg?v=1631035728"},{"product_id":"lilli-klifurmus-og-hin-dyrin-i-halsaskogi","title":"Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLilli klifurmús er lífsglöð mús sem flakkar um skóginn með gítarinn sinn. Þegar Mikki refur ætlar að éta hann spilar hann bara og syngur þar til refurinn sofnar og Lilla tekst að flýja. En vinur hans, Marteinn skógarmús, er íhugulli og veltir fyrir sér hvers vegna dýrin í skóginum þurfi endilega að éta hvert annað. Hann fær snjalla hugmynd sem hann ber undir konung skógarins, sjálfan bangsapabba.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSaga Thorbjørns Egners Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi kom fyrst út í íslenskri þýðingu Huldu Valtýsdóttur og Kristjáns frá Djúpalæk 1978. Þá þegar var leikritið vel þekkt, var sett upp í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu 1962, sama ár og það var frumflutt í Kaupmannahöfn. Nú kemur sagan út á íslensku í þriðja sinn.\u003c\/p\u003e","brand":"Thorbjörn Egner","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994663108794,"sku":"9789935113306","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Lilli_klifurmus.jpg?v=1630165190"},{"product_id":"folk-og-raeningjar-i-kardemommubae","title":"Fólk og ræningjar í Kardemommubæ","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ Kardemommubæ gengur lífið sinn vanagang undir stjórn Bastíans bæjarfógeta. En í útjaðri bæjarins búa ræningjarnir þrír, Kasper, Jesper og Jónatan, og þeir ræna ekki bara pylsum og brauði – og súkkulaði handa ljóninu – heldur líka sporvagninum og sjálfri Soffíu frænku! Þessi sígilda saga eftir Thorbjörn Egner um fjölskrúðugt mannlífið í Kardemommubæ hefur glatt kynslóðir Íslendinga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin er prýdd litmyndum eftir höfundinn og sögunni fylgir fjöldi sönglaga sem flestir þekkja í frábærri þýðingu Kristjáns frá Djúpalæk.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHulda Valtýsdóttir þýddi söguna.\u003c\/p\u003e","brand":"Thorbjörn Egner","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994663141562,"sku":"9789935290533","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Folkograeningarjar_kardemommubae_72pt-691x1024.jpg?v=1627396771"},{"product_id":"sagan-af-blaa-hnettinum","title":"Sagan af bláa hnettinum","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÁ bláum hnetti langt úti í geimnum búa börn sem fullorðnast ekki. Dag nokkurn birtist vera sem umturnar áhyggjulausu lífi þeirra og leiðir þau í háskalega ferð. Hrífandi og margverðlaunað ævintýri skreytt áhrifamiklum litmyndum Áslaugar Jónsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 og „Verðlaun verðlaunanna“ árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntarverðlaunanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSagan af bláa hnettinum\u003c\/em\u003e er ein víðförlasta barnabók síðari ára en hún er m.a. komin út í Bandaríkjunum, Kína, Japan, Grikklandi, Taílandi og Kóreu auk fjölmargra Evrópulanda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSagan hefur síðan unnið til ýmissa annarra verðlauna og tilnefninga. Hún hlaut Vest-Norrænu  barnabókaverðlaunin, pólsku Janusz Korczak- heiðursverðlaunin, tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna og fleira. Leikrit byggt á bókinni vann til verðlauna og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við miklar vinsældir og var að auki sýnt  í Kanada, Finnlandi og Pakistan.\u003c\/p\u003e","brand":"Andri Snær Magnason, Áslaug Jónsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39994691027130,"sku":"9789979318927","price":3790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Sagan_af_blaa_hnettinum_prent-700x880.jpg?v=1631554249"},{"product_id":"tofralandid","title":"Töfralandið","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir er margverðlaunaður barnabókahöfundur og hafa teikningar hennar og texti hlotið lof jafnt lesenda sem gagnrýnenda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eTöfralandið\u003c\/em\u003e er lofsöngur Bergrúnar um bækur, því hún veit að bækurnar geyma það besta – og þú sérð það líka um leið og þú lest það!\u003c\/p\u003e","brand":"Bergrún Íris Sævarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40383133089978,"sku":"9789935519818","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Tofralandid.png?v=1631723608"},{"product_id":"lif-og-fjor-i-olatagardi","title":"Líf og fjör í Ólátagarði","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÍ Ólátagarði búa sjö kátir krakkar. Þau ganga í skóla og hjálpa til heima við en aðallega leika þau sér – úti og inni allan ársins hring. Hér segir frá því þegar krakkarnir halda barnadag fyrir minnsta barnið, hvernig þau fagna vorinu með skvampi í pollum og vorbáli og hvernig Ólátagarðsfjölskyldurnar halda jólin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eLíf og fjör í Ólátagarði\u003c\/em\u003e geymir þrjár sögur í vandaðri þýðingu Sigrúnar Árnadóttur: \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eBarnadagur í Ólátagarði, Vor í Ólátagarði\u003c\/em\u003e og \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eJól í Ólátagarði\u003c\/em\u003e. Sögurnar byggir Astrid Lindgren á æskuminningum sínum og hafa þær, ásamt fallegum myndum Ilon Wikland, glatt börn og foreldra um allan heim áratugum saman. Bókin kom fyrst út í íslenskri þýðingu árið 2007 og hefur verið uppseld hjá útgefenda frá árinu 2010 en er nú loksins fáanleg aftur.\u003c\/p\u003e","brand":"Astrid Lindgren, Ilon Wikland myndir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42763166875882,"sku":"9789979328384","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Lif_og_fjor_i_Olatagardi_72pt-827x1024.jpg?v=1650646834"},{"product_id":"eg-vil-lika-eignast-systkin","title":"Ég vil líka eignast systkin","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003ePétur langar í lítið systkini. Aldrei þessu vant þarf hann ekki að rella lengi. En þegar Lena litla fæðist er Pétur ekki alveg viss lengur. Hann hefði kannski frekar átt að biðja um þríhjól. Yndisleg saga sem hefur skemmt og yljað stækkandi fjölskyldum í áratugi. Einstakar myndir Ilon Wikland gæða frásögnina töfrum.\u003c\/span\u003e","brand":"Astrid Lindgren","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45055450120496,"sku":"9789979350019","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/a2eg5ty6t6ga84itycu13e51sbao.jpg?v=1683452471"},{"product_id":"visnabokin-ny","title":"Vísnabókin - ný","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFáar bækur hafa fylgt íslenskum börnum lengur en\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eVísnabókin\u003c\/em\u003e; sígilt safn Símonar Jóh. Ágústssonar af kvæðum sem höfða til barna, prýtt bráðskemmtilegum teikningum Halldórs Péturssonar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin kom fyrst út árið 1946 en með tímanum var aukið við hana bæði vísum og teikningum sem hafðar eru með í þessari nýju og gullfallegu útgáfu.\u003c\/p\u003e","brand":"Símon Jóh. Ágústsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45081953796400,"sku":"9789979105671","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Visnabokin_72.jpg?v=1683636860"},{"product_id":"gummi-tarsan","title":"Gúmmí-Tarsan","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað er ekki alltaf auðvelt að vera lítill, sérstaklega ef maður fær aldrei að vera í friði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eGúmmí–Tarsan\u003c\/em\u003e heitir réttu nafni Ívar Ólsen og er bæði lítill og mjór. Honum gengur illa að læra að lesa og hann kann ekki að spila fótbolta eins og stóru strákarnir. En svo hittir Ívar Ólsen ósvikna galdranorn og allt í einu getur hann óskað sér hvers sem hann vill. Að minnsta kosti í einn dag …\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eGúmmí–Tarsan \u003c\/em\u003eeftir Ole Lund Kirkegaard er bráðskemmtileg saga sem notið hefur fádæma vinsælda meðal íslenskra barna og er nú loks fáanleg að nýju.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞuríður Baxter íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Ole Lund Kirkegaard","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46566677807408,"sku":"9789935294210","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Gummi-Tarsan_72.jpg?v=1693999728"},{"product_id":"blomin-a-thakinu","title":"Blómin á þakinu","description":"\u003cp\u003e Gunnjóna ákveður að flytja úr sveitinni sinni. Hana langar að upplifa hvernig er að búa í borg. Í blokkinni sem hún flytur í býr forvitinn krakki  sem fylgist með því hvernig henni gengur að aðlagast borgarlífinu. Það gerir hún á sinn hátt og á endanum er borgaríbúðin orðin nógu sveitaleg til að henni líði vel þar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBlómin á þakinu kom fyrst út árið 1985 og er löngu orðin sígild.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Ingibjörg Sigurðardóttir og Brian Pilkington","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48932786536752,"sku":"9789979334217","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Blomin_a_thakinu_icelandic.jpg?v=1723130896"},{"product_id":"benjamin-dufa-ny","title":"Benjamín dúfa","description":"\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta var ekki bara leikur. Á bak við þessa búninga og þessi vopn var heilagur tilgangur, ákvörðun sem ekki varð haggað: Gegn ranglæti, með réttlæti.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞeir Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa stofna riddarareglu Rauða drekans og eiga viðburðarí kt sumar í vændum. Dagarnir í Hverfinu verða sem ótrúlegt ævintýri, þar til brestir koma í vináttuna og kaldur veruleik[1]inn breytir lífi þeirra til frambúðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSagan um Benjamín dúfu hefur haft djúpstæð áhrif á lesendur af ólíkum kynslóðum enda ein vinsælasta barnabók sem komið hefur út á Íslandi. Fyrir hana hlaut Friðrik Erlingsson meðal annars Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1992. Bókin hefur komið út á fjölda tungumála og árið 1995 var gerð kvikmynd eftir sögunni sem sýnd hefur verið víða um lönd og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Friðrik Erlingsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48932816519472,"sku":"9789979228707","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Benjamin_dufa_72.jpg?v=1723131254"},{"product_id":"litli-prinsinn-kilja","title":"Litli prinsinn - kilja","description":"\u003cp\u003eNý þýðing Arndísar Lóu Magnúsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Maður sér ekki skýrt nema með hjartanu. Það mikilvægasta er ósýnilegt augunum.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLitli prinsinn er sígild og ástsæl saga um flugmann sem brotlendir í eyðimörk og hittir þar lítinn prins frá ókunnugri plánetu. Prinsinn segir honum frá ferð sinni um alheiminn, öllum sem hann hefur hitt og öllu því sem hann hefur lært um lífið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLitli prinsinn er ein vinsælasta bók í heimi. Hún hefur komið út á yfir 250 tungumálum og selst í meira en 200 milljónum eintaka. Þessi ljóðræna og heimspekilega saga, um einmanaleika, ástina, lífið og dauðann, er ógleymanleg lestrarupplifun fyrir bæði börn og fullorðna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAntoine de Saint-Exupéry (1900–1944) var rithöfundur og flugmaður. Hans þekktasta verk er Litli prinsinn sem kom fyrst út árið 1943. Antoine de Saint-Exupéry hvarf sporlaust ári síðar í síðustu flugferð sinni yfir hernumdu Frakklandi.\u003c\/p\u003e","brand":"Antoine de Saint-Exupéry","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49198830879024,"sku":"9789935322142","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Litli-prinsinn-kapa-benennennennedikt.webp?v=1730319313"},{"product_id":"prinsessur-og-prakkarar-20-aevintyri-h-c-andersen","title":"Prinsessur og prakkarar - 20 ævintýri H.C. Andersen","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eHans Christian Andersen (18051875) er þekktasti rithöfundur Dana fyrr og síðar og verk hans hafa verið þýdd og lesin fyrir börn um allan heim. Ævintýri hans eru þó langt frá því að vera eingöngu ætluð börnum  í þeim má finna ýmis siðferðisleg álitamál, flóknar spurningar um tilvist mannsins og listrænan frásagnarhátt sem höfðar til lesenda á öllum aldri.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eHér birtast nýjar þýðingar Kristjáns Jóhanns Jónssonar bókmenntafræðings á 20 ævintýrum H.C. Andersen, allt frá Eldfærunum til Snædrottningarinnar. Kristján ritar einnig eftirmála þar sem hann fjallar um höfundinn og áhrif hans á bókmenntasöguna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"H. C. Andersen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50204042789168,"sku":"9789979353485","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/jpv353485.jpg?v=1760535768"},{"product_id":"aevintyri-lisu-i-undralandi","title":"Ævintýri Lísu í Undralandi","description":"\u003cp\u003eEinstaklega falleg og vönduð útgáfa á sígildri sögu Lewis Carroll með teikningum eftir hina virtu japönsku listakonu Yayoi Kusama.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eÆvintýri Lísu í Undralandi\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003ekom fyrst út á frummálinu árið 1865 og hefur verið ófáanleg á íslensku um árabil.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSannkallað listaverk.\u003c\/p\u003e","brand":"Lewis Carroll","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66750171709744,"sku":"9789935938213","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Lisa-i-undra.jpg?v=1778418153"},{"product_id":"eg-vil-ekki-fara-ad-hatta","title":"Ég vil ekki fara að hátta","description":"\u003ch1\u003e\u003cspan\u003eÉg vil ekki fara að hátta\u003c\/span\u003e\u003c\/h1\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eUm bókina\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans segir honum að fara í rúmið vill hann frekar byggja úr kubbum, teikna eða hoppa ofan af eldhúsborði. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu sem býr í íbúðinni fyrir ofan. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann séð í gegnum holt og hæðir og fylgst með háttatíma dýranna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003eÞessi sígilda saga Astridar Lindgren, með myndum eftir Ilon Wikland, er nú loks fáanleg á ný. Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi.\u003c\/div\u003e","brand":"Astrid Lindgren og Ilon Wikland","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66838358622512,"sku":"9789979354857","price":5290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/egvilekkifaraadhatta.jpg?v=1779385531"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/collections\/LinaLangsokkur-scaled-700x1054.jpg?v=1778419165","url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/sigildar-barnabaekur.oembed","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}