Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Söngur Akkíllesar

3,690 ISK 2,990 ISK

Höfundur Madeline Miller

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Akkílles er engum líkur. Persónutöfrar hans, vopnfimi og líkamlegt atgervi er slíkt að allt frá Ilíónskviðu Hómers hafa rithöfundar freistast til að spreyta sig á að skapa mynd hans í verkum sínum.

Hér ber þó ekki sjónarhorn Akkíllesar söguna uppi heldur er það Patróklus sem segir frá; ungur lítt þekktur prins sem binst Akkíllesi ævarandi böndum. Þetta er saga þeirra – örlagarík saga um ódauðlega frægð, vináttu, stolt – og síðast en ekki síst ástina.

Guðir og gyðjur, konungar og drottningar, hvíluþrælar og hermenn lifna við á síðunum og lesandi er leiddur inn í goðsagnaveröld þeirra. Hér sameinast sagnfræðin, skáldskapurinn og mögnuð persónusköpun í heillandi bókmenntaverki sem vakið hefur heimsathygli.

Söngur Akkíllesar er fyrsta bók Madeline Miller en hún er fædd í Bandaríkjunum árið 1978, er klassískt menntuð og kennir þar grísku og latínu. Madeline hlaut Orange verðlaunin árið 2012 fyrir Söng Akkíllesar en þau eru veitt fyrir framúrskarandi skáldsögur kvenna af öllum þjóðernum.

Íslensk þýðing: Þórunn Hjartardóttir