{"title":"Uppselt - allt","description":"","products":[{"product_id":"akall-til-mannkyns","title":"Ákall til mannkyns","description":"\u003cp\u003eÁKALL TIL MANNKYNS – Sjálfbærni, lýðheilsa, bætt loftslag. Um framtíð matvæla og landbúnaðar Á okkar dögum er ræktun og viðhald fjölbreytninnar ekki munaður heldur forsenda þess að við lifum af. Vandana Shiva, hugsuður og baráttukona á sviði sjálfbærrar þróunar, umhverfis- og mannréttinda- mála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHún hélt áhrifamikinn fyrirlestur í Reyjavík þann 29. ágúst 2011. Stefnuyfirlýsing um framtíð matvæla og Stefnuyfirlýsing um loftslagsbreytingar og framtíð matvælaöryggis er heiti á tveimur skýrslum sem birtast í þessari bók og vakið hafa fólk víða um lönd til vistvænni vitundar. Efnið er tekið saman í kjölfar rannsókna sem koma okkur öllum við og er í raun ákall um samstöðu. Það sýnir ekki aðeins hvað farið hefur úrskeiðis í umgengni okkar við jörðina heldur skýrir frá stórkostlegum verkefnum sem gætu bókstaflega bjargað heiminum – ef við leggjumst öll á eitt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVandana Shiva er einn þeirra fræðimanna sem tók saman þessar skýrslur. Hún er heimsþekkt baráttukona á sviði umhverfis- og mannréttindamála, ötull talsmaður lífræns landbúnaðar og einn atkvæðamesti gagnrýnandi erfðabreytinga á nytjaplöntum. Hún hefur beitt sér gegn því að fjölþjóðleg iðnaðarfyrirtæki nái yfirráðum yfir matvælaframleiðslu og vatnsbúskap í heiminum. Einnig hefur hún barist fyrir kvenréttindum og bent á hættuna sem fylgir því að staðbundin þekking glatist vegna hnattrænna áhrifa og sóunar á náttúruauðlindum. Hugsum upp á nýtt …• sjálfbærni • lýðheilsa • grenndarlýðræði • lífrænn landbúnaður • fæðukílómetrar • líffræðilegur fjölbreytileiki … og gerum jörðina að betri stað\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425813959,"sku":"9789935170057","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Akall_til_mannkyns_endurprent.jpeg?v=1451157124"},{"product_id":"atta-steinhus","title":"Átta steinhús","description":"\u003cp\u003eÁ seinni hluta 18. aldar lét danska stjórnin byggja átta vönduð steinhús á Íslandi, fjögur íbúðarhús fyrir embættismenn sína og fjórar kirkjur. Þau voru teiknuð af fremstu arkitektum Dana og gegna enn mikilvægu hlutverki: Stjórnarráðshúsið í Reykjavík, Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja, Nesstofa við Seltjörn, Hóladómkirkja í Hjaltadal, Landakirkja á Heimaey, Bessastaðastofa og Bessastaðakirkja. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425815175,"sku":"9789935170804","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Steinhus_isl_NET.jpeg?v=1451157132"},{"product_id":"borda-bidja-elska","title":"Borða, biðja, elska","description":"\u003cp\u003eElizabeth Gilbert var um þrítugt og líf hennar nákvæmlega eins og það „átti\" að vera. Hún var í góðri vinnu, átti fallegt heimili og mann sem vildi stofna fjölskyldu. Þrátt fyrir það voru einmanaleiki og þunglyndi hennar nánustu félagar. Eftir erfiðan skilnað og eldheitt en stormasamt ástarsamband ákveður Liz að fara út í heim í leit að sjálfri sér. Fyrst liggur leiðin til Ítalíu þar sem hún nýtur þess að borða góðan mat - og mikið af honum. Á Indlandi leggur hún síðan stund á andlega íhugun og finnur innri ró með því að skrúbba steingólf. Að lokum endar Liz ferðalag sitt á Balí í Indónesíu þar sem tannlaus töfralæknir hjálpar henni að öðlast jafnvægi milli holdlegra og andlegra hugðarefna og þá loksins finnur hún hamingjuna. Hún er orðin sú sem hún vill vera. Borða, biðja, elska er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er að mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eElizabeth Gilbert fer með okkur í pílagrímsferð og kryddar hana með þeim húmor, töfrum og innsæi sem aðeins skapast þegar heiðarleg sjálfsskoðun og ritsnilld fara saman. - Jack Kornfield\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað þarf engan flugmið til að leggja upp í andlega ferð sem þessa. Töfrandi og heiðarleg saga sem allir verða að lesa. - Oprah Winfrey\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVefsíða Gilbert: http:\/\/www.elizabethgilbert.com\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLofuð er sjálfstætt framhald af Borða, biðja, elska\u003c\/p\u003e","brand":"Elizabeth Gilbert","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425822855,"sku":"9789935418364","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Borda_bidja_kapa_NY.jpeg?v=1451157141"},{"product_id":"brekkan","title":"Brekkan","description":"\u003cp\u003eBrekkan er frumraun norska höfundarins Carls Frode Tiller. Hún vakti mikla athygli og vann til fjölmargra verðlauna. Leikgerð sögunnar var sett upp í norska þjóðleikhúsinu árið 2004 og hlaut verkið fádæma vinsældir. Kristian Guttesen þýddi, en þýðingin var tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna 2007.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„En sensasjonell debut“ – Frumraun á heimsmælikvarða! Ida Berntsen - Dagbladet, Noregi. „En fantastisk roman“ – Stórkostlegur skáldskapur! Lars Bjødstrup - Kommakongen.dk, Danmörku. Carl Frode Tiller er upprennandi stjarna norskra bókmennta. - Jón Atli Jónasson „Her pyntes ikke på noget. Romanen er klar og præcis, sproget formidabelt.“ – Hér er ekkert verið að skreyta eða hlaða um of … sagan er afburða vel skrifuð og hnitmiðuð. Orðfærið er beitt og ógnvekjandi. Gitte S. Larsen - Kirkebladet, Danmörku.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425823303,"sku":"768886","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Brekkan.jpeg?v=1451157145"},{"product_id":"candida-sveppasyking","title":"Candida sveppasýking","description":"\u003cp\u003eHér fjalla Hallgrímur Þ. Magnússon, læknir, og Guðrún G. Bergmann, höfundur sjálfræktarbóka, á einfaldan og auðskiljanlegan hátt um það hvað candida sveppasýking er, helstu einkenni, hversu skaðleg hún geti verið líkamanum og hvernig hægt sé að öðlast góða heilsu á ný. Bæði hafa þau persónulega reynslu af þessum kvilla, en líka víðtæka fagþekkingu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHallgrímur Þ. Magnúson var sérfræðingur í deyfingar- og svæfingalækningum, auk þess sem hann lagði stund á kínverskar nálastungulækningar. Hann var einstaklega fróður um innihaldsefni fæðunnar og þau áhrif sem fæðan hefur á líkamsstarfemina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún G. Bergmann hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsurækt og einnig þýtt bækur um sömu málefni. Hún hefur látið mikið til sín taka í baráttu fyrir “grænum” lífsstíl og bættri umgengni við náttúruna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Candida er fjallað um fæðusamsetningu, á hvaða tíma sólarhrings helstu líffæri okkar starfa, hvernig best sé að takast á við breyttan lífsstíl, og margt fleira sem vekur okkur til vitundar um þá staðreynd að við sjálf getum stórlega bætt líðan okkar ef við veljum að borða hollari mat, þekkja líkamsstarfsemina betur og lifa heilbrigðu lífi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi bók kom upphaflega út árið 1995 og var svo endurprentuð 1997 og 1999. Vegna mikillar eftirspurnar er hún nú gefin út aftur en í þetta skipti betrumbætt og endurskrifuð í ljósi ýmissa nýrra rannsókna um þennan algenga en leynda kvilla. \u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún G. Bergmann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425824583,"sku":"9789935418630","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Candida.jpeg?v=1451157149"},{"product_id":"einn-plus-einn","title":"Einn plús einn","description":"\u003cp\u003eÓvænt ástarsaga sem kemur skemmtilega á óvart. Einstæð móðir Jess, einstæð tveggja barna móðir í tveimur störfum, gerir sitt besta dag eftir dag. En það getur verið erfitt að berjast endalaust upp á eigin spýtur og stundum þegar öll sund virðast lokuð tekur fólk vafasama áhættu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinstök fjölskylda Tanza, hin hæfileikaríka en sérstaka dóttir Jess, er snillingur að fást við tölur, en án fjárhagsaðstoðar mun hún aldrei fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Og Nicky, stjúpsonur Jess, er að bugast undan einelti. Stundum líður Jess eins og það sé engin von.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓkunnugur milljónamæringur, maður að nafni Ed Nicholls flækist óvænt inn í líf Jess en hann á meira en nóg með sín eigin vandamál á ýmsum vígstöðvum. Skyldi honum nú loks takast að gera eitthvað rétt?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓvænt ástarsaga Einn plús einn er hrífandi og ómótstæðileg ástarsaga um tvær ráðvilltar sálir sem hittast við óvenjulegar aðstæður. Þetta er þriðja bókin á íslensku eftir Jojo Moyes, þennan vinsæla metsöluhöfund.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHerdís Magnea Hübner íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425830023,"sku":"9789935171511","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Einn_plus_einn_NET.jpeg?v=1451157172"},{"product_id":"eliasarbok","title":"Elíasarbók","description":"\u003cp\u003eKúnstugt væri … að safna saman í eitt handrit ýmsum þeim yrkingum sem hrotið hafa úr penna manns fyrr og síðar … það væri andskotalaust af minni hálfu eftir að ég er dauður … Flest eru þetta hálfkæringsvísur, paródíur og útúrsnúningar, en sumt líka háalvarlegt. Elías Mar (1924-2007)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elíasar Mar. Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bókmenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins. Mörkin milli raunveruleika og skáldskapar eru stundum óskýr en sögusviðið, hvort sem það er Reykjavík eða borg úti í heimi, stendur lesanda ljóslifandi fyrir sjónum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePersónurnar eru margar ógleymanlegar, þær spretta fram í fjölbreytileika sínum og auðga safn íslenskra mannlýsinga. Endurminningar, skáldastælingar, ástarsögur og ljóð, mannlýsingar, háðkvæði og heimspeki; hvar sem borið er niður leiftrar textinn af einskærri sköpunargleði og Elíasi sjálfum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorsteinn Antonsson tók saman.\u003c\/p\u003e","brand":"Elías Mar","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425831303,"sku":"9789935170217","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eliasarbok.jpeg?v=1451157182"},{"product_id":"eyru-busters","title":"Eyru Busters","description":"\u003cp\u003eÁrum saman hefur Eva hlúð að rósunum sínum, hún veit af reynslu að sambandið við blómin er mun auðveldara en tengslin við fjölskylduna. Á miðjum aldri fær hún dagbók að gjöf og finnur sig knúna til að skrifa um veröld sem hún hefur lagt sig fram um að gleyma: Um bernskuna hjá fallegri en sjálfhverfri móður sem gerði líf hennar að helvíti. Eva er aðeins sjö ára þegar hún tekur ákvörðun. Hún ætlar sér að lifa af. Stríðið innan veggja heimilisins krefst herkænsku og skipulagningar og öll uppvaxtarárin stundar Eva markvissa þjálfun fyrir lokaorrustuna. Meðal annars þarf hún að sigrast á hræðslunni við Buster sem að lokum er þó sá sem alltaf hlustar. Hún kynnist ástinni sextán ára gömul og öðlast í kjölfarið meiri trú á hið góða. En kringumstæðurnar haga því þannig að hún getur ekki flúið ákvörðun sína frá barnæsku. Nú, fjörutíu árum síðar, virðist allt ætla að komast upp fyrir einskæra tilviljun. Gömul sár eru rifin upp og hið sama gildir um rósirnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaria Ernestam er ein áhugaverðasta og virtasta sænska skáldkona nútímans. Stíll hennar þykir með eindæmum sérstakur og er jafnvel til orðatiltæki meðal sænskra blaðamanna og gagnrýnenda en þeir segja að stíllinn sé „ernestamískur” (Ernestamian), en þá er átt við að stíllinn sé alvarlegur með svörtum humor í bland.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyru Busters hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er þegar búið að selja kvikmyndaréttinn að sögunni og einnig að fyrstu sögunni, Caipirinha med Döden.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTungutak Ernestam er ljóðrænt, óheflað, myrkt og leiftrandi fagurt. Uppsala nya tidning\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur sýnir slíkt öryggi í stíl og byggingu að jaðrar við fullkomnun. Dagens nyheter\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e...dásamleg eins og dökkt súkkulaði. Nerikes allehanda\u003c\/p\u003e","brand":"Maria Ernestam","offers":[{"title":"Kilja","offer_id":12425832647,"sku":"9789935418487","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/EyruBursters.jpeg?v=1451157190"},{"product_id":"eg-skal-vera-dugleg","title":"Ég skal vera dugleg","description":"\u003cp\u003eÁ einlægan hátt lýsir Lovísa María líðan sinni innan veggja sjúkrahússins og þeim heimi sem þar var, heimi sem einkenndist jafnt af æðruleysi og örvæntingu – sorgum og sigrum. Hún segir frá söknuðinum, framandleikanum og kynnum sínum af börnum og gömlu fólki sem hún tengdist órjúfanlegum böndum. Sumir náðu sér og kvöddu með bros á vör – aðrir kvöddu þetta líf. Lóa Maja fékk bót meina sinna en gleymir aldrei Tóta og öllum hinum sem kenndu henni að meta hinar margvíslegu hliðar mannlífsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni eru ljósmyndir frá æskuárum höfundarins og teikningar eftir systur hennar, Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur.\u003c\/p\u003e","brand":"Lovísa María Sigurgeirsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425834631,"sku":"9789979650768","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Eg_skal_vera_dugleg.jpeg?v=1451157199"},{"product_id":"focus-auf-island","title":"Focus auf Island","description":"\u003cp\u003eFocus auf Island er á þýsku og er markvisst skrifuð fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um náttúru og landslag Ísland. Rafn hefur tekið íslenskar landslagsmyndir síðan 1955 og þær prýða allt frá bæklingum, póstkortum, dagatölum og frímerkjum. Árið 1998 vann hann sér til frægðar að 32 myndir eftir hann skreyttu kaffirjóma-fernur sem dreifðar voru á flugvöllum, hótelum og veitingastöðum vítt og breitt um Evrópu. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar bæði hérlendis og erlendis og unnið til verðlauna í ljósmyndakeppnum. Ari Trausti ritar texta við allar myndirnar og reynir að þýða flest örnefni og útskýra söguleg og landfræðileg merkilegheit viðkomandi staðar. Svona ferðast þeir mátar hringinn í kringum og að afkimum Íslands og varla er til sú þúfa sem ekki er nafngreind.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFotos: Rafn Hafnfjörð Text: Ari Trausti Guðmundsson Der umfassende Landesführer erläutert das Wesentliche der Geschichte, Natur und Geologie aller Landesteile und gibt Informationen zu den möglichen Aktivitäten. Focus auf Island hilft bei der Wahl: • Wohin zu fahren • Was zu erforschen Focus auf Island enthält: • Straßenkarte und Ortsplan • Erklärungen der Ortsnamen • 600 qualitative Fotos • Informativen Text • Index Eine wertvolle Erinnerung an eine unvergessliche Reise. Rafn Hafnfjörð (1928 -2011) war schon seit 1955 in Island als Fotograf tätig. Seine Fotos sind in zahlreichen Reisebroschüren, auf Postkarten, Kalendern, Briefmarken und Webseiten erschienen. 1998 schmückten 32 Fotos die Verpackungen von Kaffeesahne, die in 20 Millionen Exemplaren auf Flughäfen, in Hotels und Restaurants in ganz Europa verteilt wurden. Im Jahre 2008 wurden 36 Fotos als Motiv für ein Memory-Spiel von Ravensburg auserwählt. Rafn Hafnfjörð legte in seiner fotografischen Arbeit besonderen Schwerpunkt auf Landschaft und Freizeitaktivitäten wie Angeln. Der isländische Pavillion auf der Weltausstellung in Montreal 1967 war mit Fotos von Rafn Hafnfjörð dekoriert. Seine Fotografien haben an zahlreichen Ausstellungen im Ausland Beachtung gefunden. Im Jahre 1979 stellte er seine fotografische Arbeit in einer privaten Ausstellung in der Kunstgalerie von Reykjavík aus und im Jahre 2004 im Kulturzentrum Hafnarborg in Hafnarfjörður. 1990 wurde er mit dem ersten Preis für die beste fotografische Islandwerbung ausgezeichnet. Der Wettbewerb war vom Isländischen Fremdenverkehrsamt in Zusammenarbeit mit dem Europäischen Tourismusverband ausgeschrieben worden. Ari Trausti Guðmundsson (geb. 1948 in Reykjavík) hat über 20 Büchertitel über Geologie, Vulkanologie, Astronomie, Umweltschutz und Bergwandern geschrieben. Väterlicherseits ist er isländischer Abstammung und mütterlicherseits Deutsch-Österreicher. Seine Ausbildung als Geophysiker hat er in Norwegen und Island absolviert. In Island ist Ari Trausti nicht nur als Schriftsteller, sondern auch aus Radiound Fernsehsendungen bekannt. Er ist ein bekannter Bergsteiger, hat Exkursionen in die Arktik unternommen und ist Mitglied im Explorer Club. Er hat zu zahlreichen wissenschaftlichen Ausstellungen Beitrag geleistet. Ari Trausti hat seit 1970 ebenfalls Gedichte und Kurzgeschichten geschrieben, die in Zeitschriften und Anthologien veröffentlicht wurden. Im Jahre 2002 wurde er mit dem Laxness Literaturpreis für seine Kurzgeschichtensammlung Vegalínur ausgezeichnet. Drei Gedichtsbände erschienen 2004, 2006 und 2008 und der Roman Land þagnarinnar im Jahre 2007. Ari Trausti erhielt 1998 den Aurelio Pecei Preis (Italien), 1999 den Ehrenliteraturpreis für Sachbücher der isländischen Bibliotheken und wurde 2001 für den Isländischen Literaturpreis nominiert. Im Jahre 2007 wurde er mit dem Preis des Isländischen Forschungsinstitutes (Rannís) ür seine Öffentlichkeitsarbeit im Dienste der Wissenschaft ausgezeichnet.\u003c\/p\u003e","brand":"Ari Trausti Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425840007,"sku":"9789935170453","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Focus-thyskaNET.jpeg?v=1451157221"},{"product_id":"faedubyltingin","title":"Fæðubyltingin","description":"\u003cp\u003eSólveig losnaði við 168 kíló. Kennet gat hætt að nota tíu lyf af tólf sem hann hafði þurft að taka daglega. Barn sem þjáðist af alvarlegri flogaveiki hætti að fá köst. Tilfellum sem þessum fjölgar jafnt og þétt. Síðustu áratugi hafa ráðleggingar um heilnæmt mataræði einkennst af efasemdum um hollustu fitu í matvælum. Margir hafa því sneitt hjá henni sem mest þeir mega en hafa hvorki orðið heilbrigðari né grennri. Hér rekur höfundur slóð helstu fæðukenninga sem við höfum fetað í átt til betri heilsu, allt frá upphafi vega. Hann mælir sérstaklega með ákveðnu mataræði sem hefur loksins aftur fengið uppreisn æru eftir að hafa dvalið í skugga fituhræðslunnar um langa hríð. Mataræði breytir nú lífi fólks á umtalsverðan hátt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eANDREAS EENFELDT heldur úti einu stærsta og vinsælasta heilsubloggi Svíþjóðar, www.kostdoktorn.se, sem fær yfir fimmtíu þúsund heimsóknir á degi hverjum. Í Fæðubyltingunni hefur hann tekið saman fróðleik um „góð“ kolvetni og fituríkt fæði. Hann svarar líka algengum spurningum, gefur ráð sem virka og bendir á hugmyndir að uppskriftum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAndreas Eenfeldt er ungur sænskur læknir, þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og tala tæpitungulaust. Afraksturinn er stórskemmtileg og rökföst metsölubók sem vakið hefur athygli víða um heim. Þetta er sannkölluð fæðubylting – viltu vera með? Vísindalega rökstudd bók, skrifuð af lækni sem hefur sjálfur reynslu af því að vinna með of þungum einstaklingum. – Fredrik Nyström, prófessor í lyflækningum\u003c\/p\u003e","brand":"Andreas Eenfeldt","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425845959,"sku":"9789935171207","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Faedubyltingin.jpeg?v=1451157234"},{"product_id":"graent-graent-og-meira-graent","title":"Grænt, grænt og meira grænt","description":"\u003cp\u003eÍ Grænt, grænt og meira grænt eru ýmsar ráðleggingar og fróðleiksmolar auk ótal uppskrifta sem munu sannarlega koma þér á bragðið! Ljúffengir og auðveldir drykkir sem dekra við líkamann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGott er að grípa til dæmis spínat, agúrku, sítrónu, kókosvatn og hollustuskot á borð við engiferrót eða lárperu, og blanda ljúffengan drykk, stútfullan af vítamínum, steinefnum, trefjum, ómega-fitusýrum og jafnvel prótíni. Taka svo drykkinn með og njóta hollustunnar þegar best hentar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hver hitaeining í grænu blaðgrænmeti inniheldur meira af næringarefnum en hitaeiningar annarra fæðutegunda.“ – Frank Lipman, læknir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKatrine van Wyk er norsk en flutti ung til New York til að stunda fyrirsætustörf. Hún hefur lært heildræna heilsuþjálfun og starfar sem næringarráðgjafi, einnig er hún jógakennari og heilsuráðgjafi hjá MindBodyGreen.com. Hún er meðal þeirra sem búa til uppskriftir fyrir vinsælu Equinox-safabarina í London og Toronto.\u003c\/p\u003e","brand":"Katrine van Wyk","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425849863,"sku":"9789935171276","price":999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Graent_graent.jpeg?v=1451157252"},{"product_id":"heilsujurtabiblian","title":"Heilsujurtabiblían","description":"\u003cp\u003eKynntu þér hefðbundnar jurtaremedíur gegn hversdagslegum kvillum. Í þessari fróðlegu handbók er fjallað um ýmsar jurtir sem geta haft góð áhrif á heilsuna. Margar þeirra má nota gegn algengum kvillum svo sem kvefi, húðvandamálum, lélegri blóðrás, magakveisu, streitu eða jafnvel svefnleysi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEf við kynnum okkur lækningamátt jurtanna og hvernig þær geta bætt heilsu okkar og vellíðan getum við gengið skrefinu lengra og lagað okkar eigin græðandi tinktúrur, seyði, olíur, smyrsli, krem, síróp og edik. Með því að lifa í takt við náttúruna og nýta sér það sem hún hefur upp á að bjóða blómstrar líkami okkar, hugur og sál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNanna Gunnarsdóttir íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Jade Britton","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425851527,"sku":"9789935170873","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Heilsujurtabiblian_CoverNET.jpeg?v=1451157261"},{"product_id":"hin-morgu-andlit-kristninnar","title":"Hin mörgu andlit kristninnar","description":"\u003cp\u003eHin mörgu andlit kristninnar er byggð á sviðpaðri hugmynd og bók Þórhalls, Hin mörgu andlit trúarbragðanna sem kom út 2005 og fjallaði um öll trúarbrögð heimsins - en nú tekur höfundur fyrir kristna trú og sögu eins og nafnið ber með sér. Í bókinni skoðar höfundur trúna frá ýmsum hliðum og gerir upp samskipti sín við kirkjuna. Bókin skiptist í fimm hluta; í fyrsta hluta er Biblían skoðuð, næsti hluti snýr að sögu kristninnar, í þriðja hluta er beint sjónum að kirkjuárinu, uppruna og sögu daganna og siðferðislegum átakamálum í samtímanum. Í fjórða hluta er farið í gegnum trúarjátninguna og í fimmta og síðasta kaflanum fjallar höfundur um dulræna reynslu sína, spíritisma og hið yfirskilvitlega. Í þessari sjöundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun, kenningar og átök þeirra sem aðhyllast kristna trú, allt frá Egyptalandi hinu forna til Íslands í dag. Þetta er stórbrotin saga um marga mikilvæga sögulega þætti; blóðug átök krossferðanna fá hér sitt rými, musterisriddarar og múslímar, kristin talnaspeki og táknfræði, biblíurannsóknir og dagar kirkjuársins svo fátt eitt sé talið. Einnig rekur höfundur reynslu sína af dulrænum atburðum, rannsóknum á nær-dauða-reynslu og spíritisma og veltir upp spurningum um líf eftir dauðann. Bókin er spennandi lesning um sögulegar staðreyndir sem hér eru færðar í aðgengilegan búning fyrir alla sem vilja vita meira um bakgrunn sinn. Auk þess gefa persónulegar hugleiðingar höfundarins bókinni aukna vídd.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórhallur Heimisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425852999,"sku":"9789935170576","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hin_morgu_andlit_kristn_net.jpeg?v=1451157266"},{"product_id":"hlustarinn-innbundin","title":"Hlustarinn - innbundin","description":"\u003cp\u003eÁrið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, trúað fyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða frá. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\/...\/ Saga þýska verkafólksins sem kom hingað til lands í vinnumennsku eftir síðari heimsstyrjöldina er mjög áhugaverð \/...\/ Um leið og maður les góða bók fræðist maður og verður enn forvitnari um sögu þessa fólks. Ég var verulega sátt eftir lestur bókarinnar sem hélt mér við efnið frá upphafi til enda \/...\/ Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi.ust ein af sterkustu skáldsögum ársins. - Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllan tímann sem ég var að lesa bókina fannst mér eins og hún væri að gerast í dag, einhvernvegin nær höfundur að búa til aðstæður upp í sveit á Íslandi þannig að ég sá algjörlega fyrir mér litla bæinn og var meira að segja farin að ýminda mér hvað það væri hræðilegt ef hann væri undir Eyjafjallajökli. - Bókablogg Kollu af midja.is\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHlustarinn er margbrotin saga, þar sem fortíð og nútíð takast á í lífi tveggja kvenna. \/...\/ Höfundi tekst að heilla lesandann á fyrstu síðum og nær að halda honum alveg til enda. Það sést vel að Ingibjörg hefur lagt mikið upp úr persónusköpun Helgu og Súlu. Hugarheimur og sálarástand persónanna er sett upp á svo raunverulegan hátt að oft á tíðum þurfti ég að minna mig á að um skáldsögu væri að ræða, en ekki ævisögu. \/...\/ Bókin er kröftug og áhugaverð og stefnir saman ólíkum heimum en sýnir þó að allt tengist á einn eða annan hátt. - Snorri Freyr Snorrason, bókagagnrýni af student.is\u003c\/p\u003e","brand":"Ingibjörg Hjartardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425853447,"sku":"9789935418586","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlustarinn_f_net.jpeg?v=1451157271"},{"product_id":"hlustarinn-kilja","title":"Hlustarinn - kilja","description":"\u003cp\u003eÁ meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, hún trúit honumfyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða í staðinn. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart. Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur. Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi. Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e","brand":"Ingibjörg Hjartardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425858823,"sku":"9789935418241","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlustarinn_f_net_096d2987-2e8e-485d-a9b4-d2747e9115db.jpeg?v=1451157273"},{"product_id":"hlyir-faetur","title":"Hlýir fætur","description":"\u003cp\u003eHönnuðir sokkanna eru Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir. Í þessari gullfallegu bók birtast yfir 54 fjölbreyttar uppskriftir að sokkum — í öllum stærðum — fyrir börn og fullorðna. Bókin er prýdd líflegum myndum og aðgengilegum teikningum sem gera fjölbreytt sokkaprjón að leik einum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér eru sokkar sem auðvelt er að prjóna, bæði háir og lágir, einbanda og tvíbanda, allt frá sokkum til að nota í gönguferðir til fínlegri sokka í bæjarferð við stutt pils. Kafli er með einföldum uppskriftum auk ítarlegra leiðbeininga um sokkaprjón. Í bókinni eru þó einnig uppskriftir fyrir lengra komna og svo einnig þá sem vilja spreyta sig á eigin hönnum. Gefnar eru almennar leiðbeiningar bæði ef fylgt er uppskriftum til hins ýtrasta eða ef menn vilja nýta sér hugmyndirnar til að útfæra sína eigin sokka. \u003c\/p\u003e","brand":"Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425860231,"sku":"9789935170866","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hlyirfaetur3d.jpeg?v=1451157274"},{"product_id":"hus-skaldanna","title":"Hús skáldanna","description":"\u003cp\u003eÍslendingar eru þekktir fyrir bókmenntaarﬁnn og söfn um skáld eru um allt land: Snorrastofa í Reykholti, Hraun í Öxnadal, Davíðshús, Sigurhæðir og Nonnahús á Akureyri, Skriðuklaustur í Fljótsdal, Þórbergssetur á Hala og Gljúfrasteinn í Mosfellssveit. Auk þess er sýning á miðaldahandritunum í Þjóðmenningarhúsi. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425862599,"sku":"9789935170781","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/skald_isl_NET.jpeg?v=1451157287"},{"product_id":"iceland-360","title":"ICELAND 360°","description":"\u003cp\u003eVilhelm Gunnarsson is a photo-journalist for local newspaper, Fréttablaðið . Since taking up the job in 2003 he has captured moments of history in the making. His specialty is photojournalism and landscape photography and his photos have been featured in some of the better known newspapers, magazines, and televised media around the globe. He has participated in numerous exhibitions and has received recognition for his work, most recent of which he was rewarded for photo of the Year in the category for Environmental Photography by the Icelandic Association of Photojournalists. Vilhelm also manages VG Publication, a publishing company specialising in postcards and calendars. This is his second book published. His first book was published in 2010 in which he featured some of the more memorable moments from the volcanic eruption in Eyjafjallajökull. Vilhelm Gunnarsson´s professional website is www.vilhelmg.com\u003c\/p\u003e","brand":"Vilhelm Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425867975,"sku":"9789935418760","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/360-kapa.jpeg?v=1451157293"},{"product_id":"icelandic-national-costumes","title":"Icelandic National Costumes","description":"\u003cp\u003eÍ Icelandic National Costumes eru sýnishorn af af sparibúningum íslenskra kvenna á fyrri hluta síðustu aldar; upphlut, peysufötum og skautbúningi. Enn í dag eru þessir búningar notaðir við hátíðleg tækifæri og kallast þá þjóðbúningar, enda eru þeir útfærsla á eldri búningum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThis book shows examples of Icelandic women's formal costume from the first half of the 20th century. Known as national costume, these outfits are derived from traditional Icelandic dress, and are still worn today on special occasions. \u003c\/p\u003e","brand":"Hildur Hermóðsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425868615,"sku":"9789935170484","price":499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_National-Costume_cover.jpeg?v=1451157295"},{"product_id":"icelandic-turf-houses","title":"Icelandic Turf Houses","description":"\u003cp\u003eIcleandic Turf Houses geymir sýnishorn af íslenskum torfbæjum frá mismunandi tímum. Íslendingar bjuggu í torfbæjum allt frá landnámi en upp úr 1900 fór annar húsakostur að ryðja sér til rúms. Nú eru einungis uppistandandi örfáir torfbæir sem varðveittir eru af Þjóðminjasafni Íslands, flestir þeirra eru burstarbæir, en það var byggingarlag sem fór að þróast skömmu fyrir aldamótin 1900.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIceland´s turf buildings have an important place in the country´s national heritage, and are unique in the world. From the settlement of Iceland around 900 AD until the early 20th century Icelandic people lived in such buildings. Today only a handful of these turf houses and churches remain. This unique publication showcases some examples of Icelandic turf buildings from various periods in the country´s history. \u003c\/p\u003e","brand":"Hildur Hermóðsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425868935,"sku":"9789935170477","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Turfhouses_cover.jpeg?v=1451157297"},{"product_id":"leitin-ad-geislasteininum","title":"Leitin að geislasteininum","description":"\u003cp\u003eGrípandi saga fyrir börn á aldrinum 6-11 ára. Söguhetjurnar, þrír tólf ára krakkar sem voru kynntir til sögunnar í bókinni Varið ykkur á Valahelli, komast aftur í hann krappan fjarri heimaslóðum. Á vegi þeirra verða skuggalegir ferðalangar og dularfullur drengur en spennan tekur völdin þegar fréttist að dýrmætur geislasteinn hefur horfið. Nú reynir á kjark og útsjónarsemi krakkanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIðunn Steinsdóttir sannar hér enn á ný hve vel hún þekkir hugarheim barna. Bókin er skrifuð á léttu máli sem hentar öllum krökkum og ævintýraleg spenna helst frá upphafi til enda.\u003c\/p\u003e","brand":"Iðunn Steinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425877255,"sku":"9789935171269","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Leitin_ad_geislasteininum_kilja.jpeg?v=1451157336"},{"product_id":"maria-magdalena-vegastjarna-eda-vaendiskona","title":"María Magdalena - Vegastjarna eða vændiskona?","description":"\u003cp\u003eSumir fyrirlíta Maríu Magdalenu, aðrir hafa á henni miklar mætur og hafa jafnvel tekið hana í dýrlingatölu. En hver var María Magdalena? Hvers vegna hvílir svo mikill leyndardómur yfir sögu hennar og hvers vegna hafa svo margir augljóslega lagt mikið á sig til að hylja sporin sem hún markaði. Saga sögunnar um Maríu Magdalenu er á vissan hátt eins og perlufesti. Hver perla er ein saga, einn leyndardómur, eitt bréf eða eitt spor. En samhengið, festin sem perlurnar hanga á, er María Magdalena sjálf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ leiðangri Þórhalls Heimissonar er aðferðum leynilögreglusögunnar beitt til að leita sönnunargagna. Meðal annars er kafað í forn handrit sem ekki hafa komið út á íslensku, eins og Guðspjall Maríu, Filipusarguðspjall, Gullnu sögurnar, Nornahamarinn og fleiri. Ýmsum spurningum er svarað þó margar nýjar vakni eins og í bestu spennusögu. En niðurstaðan er sú að María Magdalena hafi markað dýpri spor en margan grunar.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórhallur Heimisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425883591,"sku":"9789979650713","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mariamagdalena.jpeg?v=1451157366"},{"product_id":"mary-poppins","title":"Mary Poppins","description":"\u003cp\u003eÞeir sem hafa kynnst Mary Poppins vita að hún er engin meðalkona og að hún hefur lag á því að gera heiminn okkar skemmtilegri – og örlítið skringilegri en ella. Íbúarnir í Kirsuberjagötu er til fyrirmyndar í einu og öllu. Kvöld nokkurt í austurblænum birtist skyndilega vel klædd en fremur kuldaleg kona með regnhlíf á tröppunum hjá Banksfjölskyldunni og gerist barnsfóstra þar á bæ. Systkinin Jane og Michael átta sig fljótlega á að Mary Poppins er ólík öllum öðrum barnsfóstrum og fyrr en varir lenda þau í ótrúlegum ævintýrum, svo ekki sé meira sagt … Í nútímasamfélagi þar sem allir eru uppteknir af því að skilgreina sjálfa sig minnir Mary Poppins okkur á að það sem mestu máli skiptir er að vera maður sjálfur og reyna ekki að vera eitthvað annað. Sjálf er hún ekki dæmigerð að neinu leyti, hvorki sem barnfóstra, kennari, vinkona né kvenmaður. Sagan um Mary Poppins er sígild og sívinsæl en loks er hún fáanleg aftur vegna mikillar eftirspurnar. Íslensk þýðing Hallur Hermannsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425884423,"sku":"9789935170651","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Mary_Poppins_2012_net.jpeg?v=1451157369"},{"product_id":"safarikt-lif","title":"Safaríkt líf","description":"\u003cp\u003eÍ bókinni Safaríkt líf – ljúffengir heilsudrykkir eftir Þorbjörgu Hafsteinsdóttur er að finna 68 uppskriftir af ljúffengum heilsudrykkjum; þeytingum, hristingum og grænum söfum sem eru stútfullar af hollustu við öll tækifæri. Hér eru girnilegir og gómsætir þeytingar af ýmsu tagi sem dekra við kroppinn og fríska húðina. Nóg er líka af grænum drykkjum sem styrkja ónæmiskerfið og auka brennslu. Suma safana er hægt að fá sér milli mála og aðrir koma hæglega í stað máltíðar. Markmiðið er alltaf það sama: Að bæta orku og heilbrigði. Njóttu – og líf þitt verður safaríkara! Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt og næringarþerapisti. Í yfir tuttugu ár hefur hún rannsakað mataræði og nútímalífsstíl og sérhæft sig í fræðum sem fyrirbyggja ótímabæra öldrun. Safaríkt líf er fjórða bók Þorbjargar á íslensku en þær fyrri hafa náð miklum vinsældum, bæði erlendis og hér heima.\u003c\/p\u003e","brand":"Þorbjörg Hafsteinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425901255,"sku":"9789935170392","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_SAFARIKT_LIF.jpeg?v=1451157439"},{"product_id":"skip-mitt-braut-vid-afrikustrond","title":"Skip mitt braut við Afrikuströnd","description":"\u003cp\u003eSonarsonur Fjólu, Georg Davíð Mileris, skráði. Fjóla var sautján ára Reykjavíkurmær þegar Litháinn ungi Vladimir sigraði hjarta hennar, eftir að hafa stungið sér til sunds af þýsku fraktskipi árið 1939 við upphaf seinni heimsstyrjaldar og synt til hafnar á Íslandi. Vladimir var ofurhugi og virtist hafa níu líf eins og kötturinn. Hann lenti í miklum mannraunum í stríðinu, lifði af Hekluslysið eftir að hafa verið á fleka í tíu daga í Atlantshafi og margoft bjargaðist hann úr miklum háska á elleftu stundu. Fjóla fylgdi honum út í örbirgð og óvissu til Bretlands og sigldu þau síðan ásamt þremur börnum sínum til Afríku þar sem skip þeirra strandaði. Í hinu fjarlæga landi hófu þau nýtt líf og stofnuðu heimili sem þau áttu í 45 ár, en oft dvaldi hugurinn „heima“. Við leiðarlok vill Fjóla hvíla lúin bein á Íslandi, vitur og lífsreynd en sátt, þó afkomendur hennar og ættingjar séu eins og frækorn fífunnar; hjá Guði eða dreifð um víða veröld. \u003c\/p\u003e","brand":"Georg Davíð Mileris","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425904007,"sku":"9789935170149","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Skip_mitt_midstaerd.jpeg?v=1451157453"},{"product_id":"smararnir","title":"Smárarnir","description":"\u003cp\u003eKrakkarnir herma eftir Smára og stríða honum þegar hann segist heita Þmári. Hann ætlar að reyna að finna fjögurra laufa smára og óska sér að hann geti sagt s. Nú er eftir að vita hvernig það gengur. Karitas Pálsdóttir myndskreytti.\u003c\/p\u003e","brand":"Þórður Helgason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425909063,"sku":"9789979650225","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Smarar.jpeg?v=1451157467"},{"product_id":"solskinsbarn","title":"Sólskinsbarn","description":"\u003cp\u003eSólskinsbarn gefur hlýlega og raunsæja mynd af veröld barna í dag. Þetta er tilvalin bók fyrir litla lestrarhesta því hún er með stóru letri og fallegum teikningum eftir Jean Antoine Posocco. Þessi bráðskemmtilega saga er fyrsta bók Huldu Ólafsdóttur en hún hefur skrifað fjölmörg leikrit og leikstýrt áhugaleikhópum. \u003c\/p\u003e","brand":"Hulda Ólafsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425909959,"sku":"768975","price":2290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/solskinsbarn.jpeg?v=1451157476"},{"product_id":"stora-alifuglabokin","title":"Stóra alifuglabókin","description":"\u003cp\u003eÚlfar Finnbjörnsson er fjölhæfur listamaður þegar kemur að eldamennsku. Hann hefur rekið veitingastaði, verið í kokkalandsliðinu, séð um sjónvarpsþætti og skrifað bækur. Til dæmis má nefna Stóru bókina um villibráð sem hlaut frábærar viðtökur og tilnefningu til hinna virtu Gourmand verðlauna sem besta villibráðarbók heims 2011. Í þessari glæsilegu bók má finna sælkerauppskriftir að öllum þeim tegundum alifugla sem ræktaðar eru hér á landi. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér er kjúklingur, kalkúnn, önd, gæs, dúfa og silkihæna í hversdags- og sparibúningi, ásamt gómsætu meðlæti, kryddpæklum og fyllingum, að ógleymdum skref fyrir skref myndum þar sem Úlfar kennir handtökin við verkun og nýtingu. Hér er komin ein ítarlegasta og fjölbreyttasta matreiðslubók sem gefin hefur verið út hér á landi og staðfestir hún einnig hversu mikill listamaður Úlli í raun og veru er. Ljósmyndir Karls Peterssonar setja síðan punktinn yfir i-ið. Úlli hefur svo sannarlega farið á flug með þessari glæsilegu bók sem ætti að nýtast öllum í eldhúsinu, jafnt áhugafólki sem fagfólki. Guðrún Hrund Sigurðardóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfar Finnbjörnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425911047,"sku":"9789935171429","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_Stora_Alifugla.jpeg?v=1451157483"},{"product_id":"storu-torfbaeirnir","title":"Stóru torfbæirnir","description":"\u003cp\u003eNokkrir stórir torfbæir eru enn uppistandandi á Íslandi, ﬂestir á Norðurlandi, og í mörgum þeirra eru byggðasöfn. Þessir eru til umfjöllunar: Glaumbær í Skagaﬁrði, Laufás við Eyjafjörð, Grenjaðarstaður í Aðaldal, Þverá í Laxárdal, Bustarfell í Vopnaﬁrði, Safnbærinn í Skógum, Skálinn á Keldum og Árbær. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku. á kápurnar til að lesa um hinar bækurnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425911175,"sku":"9789935170828","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Torfbaeir_isl_NET.jpeg?v=1451157484"},{"product_id":"staerd-veraldar-lesid-i-taknmal-islenskra-launsagna","title":"Stærð veraldar - lesið í táknmál íslenskra launsagna","description":"\u003cp\u003eHeimur mannsins var í raun spegilmynd stjarnhiminsins, bundinn helstu kennileitum í landinu, megináttum og sólargangi. Heimsmyndin var heilög en um leið hagnýtt sólúr sem hægt var að treysta. Ekki er einungis hægt að nota aðferðina sem mælistiku á hið ævaforna sólúr sem Einar Pálsson uppgötvaði á Íslandi heldur hafa rannsóknir Péturs Halldórssonar leitt í ljós að sömu viðmiðanir voru notaðar um víða veröld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Almennt séð túlka ég hugmyndir og vinnu þeirra Einars Pálssonar, Ernest McClains og Péturs Halldórssonar sem lifandi tákn þess að við - mannkyn - séum að vakna til dýpri skilnings á kjarna þess andlega hugmyndaheims sem forfeður okkar skynjuðu og felldu í dulrænt og trúarlegt myndmál. - Gunnar Tómasson, hagfræðingur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er einnig fáanleg á ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Pétur Halldórsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425911559,"sku":"9979650001","price":999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/staerd_verald.jpeg?v=1451157488"},{"product_id":"sultur-allt-arid","title":"Sultur allt árið","description":"\u003cp\u003eHér áður fyrr einskorðaðist sultugerð að mestu við haustið sem er uppskera berja og rabarbara. Nú er öldin önnur og hér leiðir Sigurveig Káradóttir, matgæðingur og eigandi \u003ca href=\"https:\/\/www.facebook.com\/Matarkistan-38453689754\/\"\u003eMatarkistunnar\u003c\/a\u003e, okkur um heim sultugerðar þar sem hráefnið er fjölbreytt og hægt að sulta allan ársins hring. Henni verður allt úr öllu; hvort sem um er að ræða banana, gulrætur, gojiber, eða bláberin okkar góðu. Í bókinni er ekki eingöngu að finna hinar hefðbundnu sultur heldur ýmislegt annað sem hentar nútímalegum og heilsusamlegum matarháttum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftirnar eru einfaldar og upplagðar til að kóróna aðalmáltíðina, brauðmetið eða kökuna. \u003c\/p\u003e","brand":"Sigurveig Káradóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425911687,"sku":"9789935170040","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Sultur_kapa.jpeg?v=1451157491"},{"product_id":"sylvia-og-drekinn","title":"Sylvía og drekinn","description":"\u003cp\u003e- En ætli stelpur ráði ekki líka við dreka? Það kemur í ljós í þessari bráðskemmtilegu sögu. Sara Rojo Pérez myndskreytti. Kristín Birgisdóttir íslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Lawrence Schimel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425912007,"sku":"9789979650218","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/sylviaogdrekin.jpeg?v=1451157494"},{"product_id":"songur-akkillesar","title":"Söngur Akkíllesar","description":"\u003cp\u003eAkkílles er engum líkur. Persónutöfrar hans, vopnfimi og líkamlegt atgervi er slíkt að allt frá Ilíónskviðu Hómers hafa rithöfundar freistast til að spreyta sig á að skapa mynd hans í verkum sínum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér ber þó ekki sjónarhorn Akkíllesar söguna uppi heldur er það Patróklus sem segir frá; ungur lítt þekktur prins sem binst Akkíllesi ævarandi böndum. Þetta er saga þeirra – örlagarík saga um ódauðlega frægð, vináttu, stolt – og síðast en ekki síst ástina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðir og gyðjur, konungar og drottningar, hvíluþrælar og hermenn lifna við á síðunum og lesandi er leiddur inn í goðsagnaveröld þeirra. Hér sameinast sagnfræðin, skáldskapurinn og mögnuð persónusköpun í heillandi bókmenntaverki sem vakið hefur heimsathygli.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSöngur Akkíllesar er fyrsta bók Madeline Miller en hún er fædd í Bandaríkjunum árið 1978, er klassískt menntuð og kennir þar grísku og latínu. Madeline hlaut Orange verðlaunin árið 2012 fyrir Söng Akkíllesar en þau eru veitt fyrir framúrskarandi skáldsögur kvenna af öllum þjóðernum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍslensk þýðing: Þórunn Hjartardóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Madeline Miller","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425913031,"sku":"9789935171030","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Akkilles.jpeg?v=1451157506"},{"product_id":"tarot-nutid-og-framtid","title":"Tarot - nútíð og framtíð","description":"\u003cp\u003eTarotspilin voru fyrst þekkt í Suður-Evrópu og sögð hafa borist milli landa með sígaunum á ferðum þeirra en óljóst er um uppruna þeirra. Vitað er að Tarotspilin voru til á miðöldum og mikið notuð sem spáspil og ef til vill líka sem fjárhættuspil.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið notkun Tarotspila sjáum við okkar innri mann í nýju ljósi. Þau eru okkur hvorki hliðholl né andstæð en senda boð og ráðleggingar. Hvort eða hvernig við nýtum okkur skilaboð þeirra er undir okkur sjálfum komið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð byrjendum og því er saga spilanna stuttlega rakin og getið um eldri meistara í fræðunum. Spilunum er lýst, merking þeirra túlkuð og að lokum sýndar einfaldar lagnir með fáum spilum sem auðvelt og fljótlegt er að lesa úr þegar búið er að læra táknin. Þegar leiknin eykst má leggja spilin á ýmsa vegu og nota fleiri spil, jafnvel allan stokkinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAthugið að spil fylgja ekki bókinni, en lesa má úr öllum hefðbundnum spilum með bókinni.\u003c\/p\u003e","brand":"Hera Karlsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425913159,"sku":"9789979650546","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Tarot.jpeg?v=1451157509"},{"product_id":"the-icelandic-woman","title":"Icelandic Woman","description":"\u003cp\u003eBókin er hugsuð fyrir erlenda ferðamenn sem er full af fróðleik og upplýsingum um íslensku konuna jafnt í máli sem myndum. Bókin hefur bæði afþreyingar- og upplýsingagildi þar sem staðreyndir um íslensku kvenþjóðina eru settar fram á skemmtilegan og áhugaverðan hátt. Tæpt er á sögulegum atriðum, athygli vakin á konum sem allir verða að kannast við, fjallað um staði á Íslandi sem eru eingöngu fyrir konur, íslensk fegrunarráð tíunduð, farið yfir kjör og stöðu íslenskra kvenna, svo fátt eitt sé nefnt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEfnisatriði bókarinnar eru valin með það í huga að úr verði áhugaverð lesning fyrir erlenda gesti sem veiti þeim innsýn í hver hin íslenska kona er í raun og veru.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er fimmta bókin sem Snæfríður Ingadóttir og Þorvaldur Örn vinna saman að en þau kynntust á DV fyrir 15 árum þegar Snæfríður starfaði þar sem blaðamaður og Þorvaldur sem ljósmyndari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞeirra fyrri bækur eru: Opið hús - menning og matur á Íslandi nútímans, 50 crazy things to do in Iceland, 50 crazy romantic things to do in Iceland og 50 crazy things to taste in Iceland. Bókin er á ensku. Snæfríður Ingadóttir hefur starfað við hina ýmsu fjölmiðla síðastliðin 15 ár, nú síðast sem fréttamaður RÚV á Norðurlandi. Auk þess að sinna greinaskrifum, dagskrárgerð og barnauppeldi, framleiðir hún Tannstrá, tannstöngla úr íslenskum stráum Þorvaldur Örn (ÞÖK) hefur starfað sem ljósmyndari í 22 ár. Fyrst hjá DV og síðan hjá Morgunblaðinu en hefur síðustu ár starfað sem sjálfstæður heimilda- og fréttaljósmyndari. Þorvaldur var formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands í áratug, hefur haldið fjölmargar ljósmyndasýningar bæði hér heima og erlendis og hlotið mörg verðlaun fyrir myndir sínar. Sjá nánar á: www.thorvaldurorn.com\u003c\/p\u003e","brand":"Snæfríður Ingadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425913863,"sku":"9789935170934","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/IcelandicWoman.jpeg?v=1451157515"},{"product_id":"torfkirkjur-a-islandi","title":"Torfkirkjur á Íslandi","description":"\u003cp\u003eUpprunalegar torfkirkjur sem enn standa á Íslandi eru aðeins ﬁmm og sú sjötta er sett saman úr viðum eldri kirkju. Þær eru með því merkasta í íslenskri byggingarlist: Víðimýrarkirkja í Skagaﬁrði, Grafarkirkja á Höfðaströnd, Saurbæjarkirkja í Eyjaﬁrði, Hofskirkja í Öræfum og Bænhúsið á Núpsstað auk Árbæjar- kirkju í Reykjavík. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, ritar formála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425915847,"sku":"9789935170842","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Torfkirkj_isl_NET.jpeg?v=1451157531"},{"product_id":"turf-churches","title":"Turf Churches","description":"\u003cp\u003eUpprunalegar torfkirkjur sem enn standa á Íslandi eru aðeins ﬁmm og sú sjötta er sett saman úr viðum eldri kirkju. Þær eru með því merkasta í íslenskri byggingarlist: Víðimýrarkirkja í Skagaﬁrði, Grafarkirkja á Höfðaströnd, Saurbæjarkirkja í Eyjaﬁrði, Hofskirkja í Öræfum og Bænhúsið á Núpsstað auk Árbæjar- kirkju í Reykjavík. Allir þessir staðir - og allar þessar byggingar - eru hluti af íslenskum menningararﬁ og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði. Höfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þýðandi er Anna Yates. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, ritar formála. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum. Hér er bætt úr brýnni þörf því lítið hefur verið um bækur af þessu tagi á markaðnum, áherslan hefur verið á landið og náttúruna. Bækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku. Smelltu á kápurnar til að lesa um hinar bækurnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Björn G. Björnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425916167,"sku":"9789935170859","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Torfkirkj_ensk_NET.jpeg?v=1451157537"},{"product_id":"tvofalt-prjon","title":"Tvöfalt prjón","description":"\u003cp\u003eGlæsileg bók fyrir alla prjónara og sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Með þessari tækni er hægt að nota flíkina báðum megin – tvær flíkur í einni! 40 fjölbreyttar uppskriftir; peysur, sokkar, vettlingar, treflar, húfur, hólkar, sjöl, teppi og margt fleira. Tvöfalt prjón er þekkt víða um heim en hefur lítið verið kynnt hér á landi. Hvert stykki er prjónað með tveimur hliðum á sama tíma og því hægt að snúa flíkinni á báða vegu. Með þessari tækni er hægt að prjóna nánast hvað sem er; peysur, sokka, vettlinga, trefla, húfur, hólka, sjöl, teppi og svo framvegis. Hér má finna 40 fjölbreyttar uppskriftir, auk ítarlegs leiðbeiningakafla um þessa sérstöku prjónaaðferð. Höfundur vinnur með gömul íslensk munstur í bland við færeysk munstur og útkoman er glæsileg.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún María Guðmundsdóttir hefur haldið fjölda prjónanámskeiða á undanförnum árum og meðal annars kennt tvöfalt prjón. Áhugi á þessari prjónaaðferð fer mjög vaxandi og er þetta fyrsta bókin sem kemur út um þetta efni á íslensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún María Guðmundsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425916295,"sku":"9789935171382","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Tvofal_prjon.jpeg?v=1451157538"},{"product_id":"velkominn-thorri","title":"Velkominn Þorri","description":"\u003cp\u003eÍ hugum margra Íslendinga tengist þorrinn svartamyrkri, viðsjálum veðrum og gömlum mat. Eftir að þær stöllur, Ragnhildur Gísladóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir, kynntu sér þorrahefðina, fannst þeim tilvalið að gera henni hærra undir höfði og útfæra á nútímavísu. Bókin Velkominn Þorri kynnir nýstárlegar leiðir til að gera sér dagamun í kalda mánuðinum sem kenndur er við vetrarvættinn Þorra. Þar er einnig að finna margvíslegan fróðleik um þorrann og matarvenjur Íslendinga ásamt viðtölum við fólk sem átt hefur þátt í að skapa og viðhalda þorrahefðinni. Það er sárt til þess að hugsa að þekkingin og sérstaðan sem lýtur að íslenskri matarhefð gleymist. Með því að líta um öxl og skoða aðstæður og vinnulag forveranna, varpa höfundar ljósi á dugnað og harðfylgi genginna kynslóða sem speglast skýrt í matarmenningu þjóðarinnar. Velkominn Þorri inniheldur einnig uppskriftir úr Kvennafræðaranum og Einfalda matreiðsluvasakverinu fyrir heldri manna húsfreyjur. Þær Ragnhildur og Steinunn stíga svo skrefinu lengra og benda á ýmsar skemmtilegar og nýstárlegar leiðir til að halda þorra með viðeigandi föndri og þorraskrauti sem flikkar heldur betur upp á híbýlin og þorraborðhaldið. Til að auka enn á stemmninguna birtast í bókinni í fyrsta skipti nótur fyrir tvö ný þorralög eftir Ragnhildi við texta Steinunnar. Ljósmyndir tók Sigurjón Ragnar Sigurjónsson, Margrét Laxness sá um umbrot og hönnun. \u003c\/p\u003e","brand":"Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425917447,"sku":"9789935418203","price":1690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/NET_thorriFramhlid.jpeg?v=1451157555"},{"product_id":"visindin-ad-baki-rikidaemi","title":"Vísindin að baki ríkidæmi","description":"\u003cp\u003eHöfundurinn, Wallace D. Wattles, bendir á að við eigum ekki að stunda samkeppni heldur eigi einstklingurinn að miðla öðrum af sínum skapandi krafti, hveta til dáða og opna nýjar leiðir til að bæta veröldina. Þrátt fyrir að bókin sé að nálgast 100 ára aldur hafa vinsældir hennar sjaldan verið meiri en nú, enda á hinn uppörvandi boðskapur fullt erindi. Hún opnar nýjar víddir og kveikir hugmyndir sem við vitum ekki að leynast innra með okkur. Jón Lárusson þýddi og skrifaði inngang í íslenska útgáfu bókarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta er yndisleg, tímalaus bók sem opnar leiðina að takmarkinu sem þú þráir Eftir að hafa lesið hana muntu átta þig á að staða, menntun, gáfur eða staðsetning skipta ekki máli heldur getur hver sem er beitt hugaraflinu til að laða að sér ríkidæmi.“ - Rhonda Byrne höfundur Leyndarmálsins.\u003c\/p\u003e","brand":"Wallace D. Wattles","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425918663,"sku":"9789979650607","price":999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Visindin.jpeg?v=1451157564"},{"product_id":"thessi-kona","title":"Þessi kona","description":"\u003cp\u003eHver er sinnar gæfu smiður. Kannski þarftu ekki á hjálp að halda, þú þarft bara að vita að þú stendur ekki einn. Með þessum orðum hefst Þessi kona sem hefur að geyma æviminningar Guðríðar B. Helgadóttur. Í bókinni segir hún frá lífshlaupi sínu, baráttumálum og listsköpun. Brugðið er upp skyndimyndum í máli og myndum á ýmsum tímum. Þannig varpar bókin í senn ljósi á umbrotasama tíma í samfélaginu og líf einstaklings sem fetar sig áfram á vegi gæfunnar.\u003c\/p\u003e","brand":"í máli og myndum frá 1921-","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425919239,"sku":"9789979708636","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Tessi-kona_kapa.jpeg?v=1451157572"},{"product_id":"thetta-eru-minir-einkastadir","title":"Þetta eru mínir einkastaðir","description":"\u003cp\u003eÞetta eru mínir einkastaðir er auðveld aflestrar, letrið er stórt, texti allur í vísnaformi og myndskreytingar allar í höndum barna; einfaldar og litríkar myndir. Frábært innlegg í forvarnarvinnu með börnum. Bókin hvetur einnig börn til að vera óhrædd við að segja frá að misnotkun hafi hún átt sér stað. Löngu tímabær bók fyrir yngstu kynslóðina, forledra hennar og alla þá sem annast og kenna börnum. Bókin er gefin út af Blátt áfram en Salka sér um dreifingu.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka Bókaútgáfa","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425919303,"sku":"9789978702405","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/einkastadir.jpeg?v=1451157573"},{"product_id":"aetigardurinn","title":"Ætigarðurinn","description":"\u003cp\u003eListakonan Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri allan ársins hring. Hér leiðir hún okkur á vit náttúru og sýnir fram á hve ánægjulegt er að lifa í sambýli við hana. Í bókinni eru girnilegar uppskriftir og áhugaverðar frásagnir um lífið, lækningar og hugmyndafræði ræktunar. Ætigarðurinn er gagnlegt uppflettirit en jafnframt skemmtileg saga höfundar sem hefur aflað sér viðamikillar þekkingar á þeirri menningu sem tengist ræktun - bæði á Íslandi og víða um heim. Ætigarðurinn - himneskt kver sem er hafsjór af fróðleik og innblæstri, svo skemmtilega og lifandi skrifað að þegar ég tók mér bókina í hönd þá fór ég þangað ... - Sólveig Eiríksdóttir Þetta er yndisleg bók. Hún bæði jarðtengir mann og lyftir manni á andlegt plan. Jafnvel þó maður hafi ekki nokkurn áhuga á garðyrkju eða hollustu er þetta dásamleg lesning. Hún hjálpar manni við að vera manneskja. - Unnur Jökulsdóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Hildur Hákonardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12425919815,"sku":"9979-768-47-9","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/ati_gardurinn.jpeg?v=1451157579"},{"product_id":"eldum-sjalf","title":"Eldum sjálf","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEldum sjálf er matreiðslubók með uppskriftum fyrir börn á aldrinum 4-10 ára. Við val á uppskriftum var lögð áhersla á að hafa fá hráefni og tækjum og tólum var stillt í hóf. Eldum sjálf var valin ein af bestu matreiðslubókum heims árið 2017. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinfaldleikinn var hafður að leiðarljósi við val á uppskriftum í bókina svo allir í fjölskyldunni geti átt ánægjulega stund í eldhúsinu. Öll skrefin eru sýnd myndrænt þannig að börn þurfa ekki að kunna að lesa til að geta eldað þá rétti sem eru í bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftirnar í bókinni samanstanda af réttum sem hentugt er að snæða eftir skóla, með kaffinu og í kvöldmatinn. Þannig eru uppskriftirnar fjölbreyttar og hægt að nota við mismunandi aðstæður. T.d. er uppskrift að sígildum heimilismat, plokkfiski sem er bæði hollur og góður matur fyrir alla fjölskylduna. Einnig er bakkelsi á borð við pönnukökur og múffur í bókinni þannig að börnin geta aðstoðað við undirbúning afmæli og annarra kökuboða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEldum sjálf var gerð með mikilli hjálp frá 18 krökkum sem spreyttu sig á öllum uppskriftunum fyrir framan ljósmyndara og tókst vel til. Maturinn var eldaður frá grunni og var hvert skref í undirbúningnum fest á filmu. Með því að elda með Eldum sjálf læra börn að fara eftir uppskriftum og fylgja þeim skref fyrir skref.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftirnar í bókinni eru valdar af Dögg Hjaltalín, Þorbjörg Helga Ólafsdóttir sá um útlit bókarinnar og Birgir Ísleifur Gunnarsson sá um myndatöku. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuár: 2018\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGerð: Spjöld á gormi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSíðufjöldi: 38\u003c\/p\u003e","brand":"Salka","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":14833629383,"sku":"9789935476104","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/eldum-sjalf.jpg?v=1454974557"},{"product_id":"larus-eignast-systkini","title":"Lárus eignast systkini","description":"\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLárus eignast systkini eftir Eddu Láru Lúðvígsdóttur fjallar um hvernig það er að verða stóri bróðir eða stóra systir allt frá því að litla barnið er væntanlegt og eftir að það er komið í heiminn.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLárus eignast systkini er fyrsta bók Eddu Láru Lúðvígsdóttur. Það hefur verið draumur Eddu Láru að gefa út bók og þetta efni er henni afar hugleikið þar sem hún er móðir tveggja drengja. Með útgáfu þessarar fallegu sögu vill Edda Lára vera fyrirmynd fyrir syni sína og sýna þeim að með dugnaði og trú á sjálfum sér geta draumar ræst.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLárus eignast systkini er tilvalin fyrir börn sem eru að verða eldri systkini og gefur foreldrum og öðrum tækifæri til að ræða áskoranirnar sem því stóra og skemmtilega hlutverki fylgir.\u003c\/p\u003e","brand":"Edda Lára Lúðvígsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":14833683143,"sku":"9789935476111","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Larus_1.jpg?v=1454974772"},{"product_id":"hugraen-taekni-og-andlegu-logmalin-10","title":"Hugræn tækni","description":"\u003cp\u003eAndlegu lögmálin tíu eru lyklar að hugsunum okkar. Með þeim getum við stjórnað eigin huga og beint honum í jákvæðari farveg. Í þessari bók er lögmálunum lýst og lesandanum gefin góð ráð til að tileinka sér þau.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn höfundur lætur okkur ekki einungis lyklana í té heldur líka tæknina til að nota þá. Til að mannshugurinn virki þarf hugbúnaðurinn að vera í lagi! Grípum gæfuna, uppfærum hugbúnaðinn og tileinkum okkur adlegu lögmálin tíu. Bók sem virkar!\u003c\/p\u003e","brand":"Barbara Berger","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":14973745927,"sku":"9789979768913","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/Hugraen-taekni-og-andlegu-logmalin-tiu-175x287.jpg?v=1455284816"},{"product_id":"eldhus-graenkerans","title":"Eldhús grænkerans","description":"\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003c\/span\u003eEldhús grænkerans inniheldur um 120 uppskriftir að ljúffengum grænmetisréttum fyrir öll tilefni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEldhús grænkerans er fyrsta íslenska matreiðslubók sinnar tegundar en réttirnir henta öllum og er tilvalin fyrir þau sem vilja meiri fjölbreytni í eldamennsku sinni og auka vægi grænmetisrétta á matarborði fjölskyldunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003eÍ bókinni er sérstakur kafli um veganhráefni fyrir þau sem eru græn í gegn og flesta réttina má gera vegan á einfaldan hátt. Að auki má finna fjölda góðra ráða um nýtingu og mikil áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir hráefninu og gera mat úr því öllu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003eÚtgáfuár: 2016\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003eGerð: Innbundin, opinn kjölur\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003eSíðufjöldi: 132\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-weight: 400;\"\u003e\u003ciframe width=\"560\" height=\"315\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/-KSXnzCLuyQ\" frameborder=\"0\" allow=\"autoplay; encrypted-media\" allowfullscreen=\"\"\u003e\u003c\/iframe\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Katrín Rut Bessadóttir og Rut Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":34139670535,"sku":"9789935483195","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/ELDHUS_GRAENKERANS_NET.jpg?v=1479287963"},{"product_id":"haenur-eru-hermikrakur","title":"Hænur eru hermikrákur","description":"\u003cp\u003eÞegar fólkið í litlu sjávarplássi vantar egg til matseldar, leysa þau vandann með því að ná sér í fáeinar hænur. En ef hænurnar hætta að verpa eggjum verður að finna útsmogin úrræði til að leysa vandann. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bruce McMillan og Gunnella","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41933938451,"sku":"DM 10254","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/haenur-eru-hermikrakur.jpg?v=1493040614"},{"product_id":"fjolskyldan-min","title":"Fjölskyldan mín","description":"\u003cp\u003eFriðjón er fimm ára leikskólastrákur sem veit fátt skemmtilegra en að leika sér við vini sína. Dag einn er haldinn fjölskyldudagur og þá komast krakkarnir að því hversu fjölbreyttar fjölskyldur þeirra eru. Til að mynda á Friðjón tvær mömmur, sumir eiga stjúpforeldra, aðrir tala annað tungumál við foreldra sína og svo mætti lengi telja. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjölskyldan mín er skemmtileg bók sem opnar umræðu um ólík fjölskylduform og fagnar fjölbreytileikanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjölskyldan mín er fyrsta bók Ástu Rúnar Valgerðardóttur, sálfræðings. Lára Garðarsdóttir, handhafi barnabókaverðlauna IBBY, er höfundur mynda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMarkmiðið með útgáfu bókarinnar er að fagna þeim fjölbreytileika sem finna má í fjölskyldum nútímans og fræða börn um ólík fjölskylduform í gegnum skemmtilega og lifandi sögu sem gerist í umhverfi sem börnin þekkja. Bókin opnar umræðu á milli barna og foreldra um lífið og tilveruna á leikskólanum og heima fyrir. Efnið er Ástu Rún afar hugleikið en hún er gift konu og þær eiga saman son á leikskólaaldri.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuár: 2017\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGerð: Innbundin\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSíðufjöldi: 38\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.visir.is\/g\/2017171029893\/mikilvaegt-ad-born-laeri-ad-fjolskyldur-geta-verid-alls-konar\" target=\"_blank\" title=\"Fjölskyldan mín\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003eHér má lesa viðtal við Ástu Rún á Vísi.\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.dv.is\/folk\/2017\/10\/21\/mer-finnst-vid-venjuleg-fjolskylda\/\" target=\"_blank\" title=\"Viðtal við Ástu Rún\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003eHér má lesa viðtal við Ástu Rún í DV.\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"https:\/\/gayiceland.is\/2017\/new-childrens-book-features-two-mom-family\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003eHér má lesa umfjöllun Gay Iceland \u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.ruv.is\/spila\/ras-1\/utvarp-krakka-ruv\/20180403\"\u003eHér má hlusta á viðtal við Ástu Rún í Útvarpi KrakkaRÚV\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Ásta Rún Valgerðardóttir og Lára Garðarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53042555027,"sku":"9789935483409","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/fjolskyldanMin_minni-2.jpg?v=1508453688"}],"url":"https:\/\/www.salka.is\/collections\/uppselt-allt.oembed?page=122","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}