Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Að telja upp í milljón

2,990 ISK

Höfundur Anna Hafþórsdóttir

Daginn sem kærastinn yfirgefur Rakel fer tilvera hennar á hvolf. Áfallið er mikið því Rakel, sem ólst upp við erfiðar aðstæður, hefur ekkert samband við fjölskyldu sína og á fáa vini. En þegar hún óttast að vera að missa tökin fær hún óvænta heimsókn.

Að telja upp í milljón er áhrifarík saga um flókin fjölskyldutengsl, áföll og samskiptaleysi en líka um ástina og lífið. Þetta er fyrsta skáldsaga Önnu Hafþórsdóttur sem áður hefur sent frá sér bæði smásögur og ljóð. Sagan er önnur tveggja bóka sem báru sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir, árið 2021.