{"product_id":"aevintyri-freyju-og-frikka-leynifelag-i-lifshaettu","title":"Ævintýri Freyju og Frikka - Leynifélag í lífshættu","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eFreyja og Frikki eru spennt fyrir hátíðum sumarsins á Íslandi með vinum sínum í Leynifélaginu Púkablístrunni. Þau eiga líka von á góðum gestum alla leið frá Alsír en ferðafélagar þeirra frá því á Galapagos, Chiraz og Omar, eru á leið í heimsókn með óvæntar gleðifréttir í farteskinu. Það stefnir því í frábært sumar.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eÞað sem tvíburarnir vita þó ekki er að skuggalegur einstaklingur bruggar launráð og setur að lokum fjölskylduna og vini þeirra í stórkostlega lífshættu. Lögreglunni gengur ekkert að kljást við varginn en getur Leynifélagið Púkablístran hjálpað? Leikurinn berst frá Hafnarfirði til Reykjavíkur með viðkomu í höfuðborg Alsír, Algeirsborg.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eVargurinn skuggalegi er skrefinu á undan og virðist vera að vinna slaginn. Klukkan tifar, tíminn er að renna út og spennan verður óbærileg.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eFelix Bergsson er leikari, útvarpsmaður og rithöfundur. Felix er einnig landskunnur fyrir barnaefni sitt, bæði fyrir sjónvarp og leikhús og sem annar helmingur í dúóinu Gunni og Felix.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eLeynifélag í lífsháska er önnur bókin um Ævintýri Freyju og Frikka sem Drápa gefur út en í fyrra kom út Drottningin af Galapagos. Hann hefur áður sent frá sér Ævintýrið um Augastein.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Felix Bergsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67963814871344,"sku":"9789935563538","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/enn563538.jpg?v=1791560967","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/aevintyri-freyju-og-frikka-leynifelag-i-lifshaettu","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}