{"product_id":"andrumsloft","title":"Andrúmsloft","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJoan Goodwin hefur verið gagntekin af stjörnunum frá því hún man eftir sér. Hún lifir kyrrlátu lífi, kennir stjörnufræði og tekur virkan þátt í uppeldi systurdóttur sinnar. Þegar hún svarar auglýsingu frá NASA, þar sem í fyrsta sinn er óskað sérstaklega eftir umsóknum vísindakvenna um geimfaraþjálfun hjá stofnuninni, snýst líf hennar á hvolf.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJoan er valin úr þúsundum umsækjenda og hefur þjálfun hjá geimferðastofnuninni. Nú snýst allt um að vera skipuð í áhöfn og verða ein af fáum útvöldum sem fá að fara út í geim. Hjá NASA kynnist hún fólki sem verður henni fljótt eins og önnur fjölskylda: flugmönnunum Hank og Griff, hinni sérvitru Lydiu, Donnu með gullhjartað og Vanessu Ford,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eflugvélaverkfræðingnum heillandi sem vekur með Joan alveg nýjar tilfinningar. Saman tekst hópurinn á við krefjandi verkefni og fetar ókannaðar slóðir, bæði hið innra og ytra. Joan virðist hafa fengið allt sem hana dreymir um.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞar til í desember 1984, í leiðangri STS-LR9, þegar hið óhugsandi gerist. Andrúmsloft er saga af óbilandi metnaði og dirfsku, af fólki sem þorir að elta drauma sína og hvernig það tekst á við það þegar draumurinn breytist í martröð. Umfram allt er hún hrífandi ástarsaga, eins og Taylor Jenkins Reid einni er lagið.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Taylor Jenkins Reid","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68129162690864,"sku":"9789935579713","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/andrumsloft-1280x2048.webp?v=1792583150","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/andrumsloft","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}