{"product_id":"ast-a-prjonunum","title":"Ást á prjónunum","description":"\u003cp\u003eGertie býr með mömmu sinni og ömmu í yndislegum, litlum bæ nyrst í Skotlandi, þar sem fólkið er samheldið og náttúran ægifögur. Það er þó ekki ævintýrum fyrir að fara hjá Gertie. Hún hefur unnið í sömu kjörbúðinni síðan hún lauk skóla og félagslíf hennar snýst aðallega um prjónaklúbb skoðanaglaðra kvenna. Milli þess sem hún fitjar upp á prjónana kryddar Gertie hversdaginn með dagdraumum sem hún dvelur í meira en gott þykir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn skjótt skipast veður í lofti í skosku Hálöndunum. Líf Gertie tekur stakkaskiptum þegar Morag, flugstjóri hjá MacIntyre Air, birtist einn daginn í kjörbúðinni og býður henni starf hjá flugfélaginu. Fyrr en varir er Gertie komin með nýja vinnu, flutt að heiman og gamli draumaprinsinn Struan bliknar í samanburði við norska flugvélamógúlinn Calum Frost. En nýja lífinu fylgja nýjar áskoranir. Tekst Gertie að koma ofan úr skýjaborginni og sýna hvað í henni býr? Stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en dagdraumar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSjálfstætt framhald af\u003cem\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eSkrifað í skýin\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eeftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan, en bækur hennar hafa selst í fimmtán milljónum eintaka og slegið í gegn hjá lesendum á Íslandi.\u003c\/p\u003e","brand":"Jenny Colgan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67254138700080,"sku":"9789935565129","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/astaprjonunum_5a509974-c3cf-4a12-abf8-a7faff3807a4.jpg?v=1783099693","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/ast-a-prjonunum","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}