{"product_id":"audna","title":"Auðna","description":"\u003cp\u003eOrð geta lýst heimi, en þau geta líka orðið að efninu sem heimur verður til úr. Í bókinni Auðna málar textinn ekki fullgerðar myndir heldur lætur þær kvikna í huga lesandans. Í gegnum vatn, líkama, form og umbreytingar birtist það sem erfitt er að færa í orð; það sem ýmist verður sýnilegt eða aðeins skynjað. Þannig skapast rými þar sem lesandinn mætir eigin skynjun og tekur þátt í að móta þær myndir sem orðin kalla fram. Lesturinn er því þátttaka ekki inntaka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað sem virðist kyrrt er þegar tekið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eað hreyfast á leiðinni að verða annað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRebekka Rafnsdóttir er fædd árið 1987. Hún vinnur með ólíka miðla, einkum ritlist, kvikmyndir og ljósmyndun. Hún hefur lokið BA-prófi í ritlist og heimspeki frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í ritlist frá The New School í New York. Skrif hennar hafa birst í bókmenntatímaritunum A Public Space og HOW Journal. Árið 2017 varð hún fyrsti handhafi Bette Howland Nonfiction Prize fyrir verkið A Girl on the Hunt. Rebekka hefur einnig starfað við kennslu og stofnaði Cottonwood Reykjavík árið 2021.\u003c\/p\u003e","brand":"Rebekka Rafnsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67984110518576,"sku":"9789935351531","price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/audna.jpg?v=1791565650","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/audna","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}