{"product_id":"bananasafnid","title":"Bananasafnið","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eBananar eru mest seldu ávextir á Íslandi, en Pálmi veit álíka mikið um banana og flest okkar – sama sem ekki neitt. Hann er nýfluttur í blokk þar sem hann þekkir engan og honum leiðist óskaplega. Þegar foreldrar hans gefa honum framandi túkanfugl hressist Pálmi við, allt þar til fuglinn sleppur út í hrímkalt skammdegið.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÍ leit sinni að túkaninum berst Pálma óvæntur liðsauki, Fífa, og saman leggja þau í ævintýrlegan björgunarleiðangur sem leiðir þau undir snjóinn og inn í stórmerkilegt bananasafn. Vissir þú að banani er ber? Að það eru til bláir bananar og rauðir? Að apar eru í raun hrifnari af vínberjum en banönum? En það er eitthvað bogið við þessa undirheima ...\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eTjörnina\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eEldgos\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Rán Flygenring","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68227226960176,"sku":"9789935565181","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/bananasafnid.webp?v=1793463361","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/bananasafnid","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}