{"product_id":"blodberg-kilja","title":"Blóðberg - kilja","description":"\u003cp\u003eÁrið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns. Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞóra Karítas Árnadóttir er sjálfstætt starfandi leikstjóri og framleiðandi. Hún sendi árið 2015 frá sér sannsöguna Mörk  saga mömmu sem hlaut góðar viðtökur lesenda og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Blóðberg, sem kom fyrst út árið 2020, er fyrsta skáldsaga hennar.\u003c\/p\u003e","brand":"Þóra Karítas Árnadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68278465200432,"sku":"9789979355953","price":4890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/blodberg.webp?v=1794399247","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/blodberg-kilja","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}