{"product_id":"bustadirnir","title":"Bústaðirnir","description":"\u003cp\u003eÍÍ dimmum skógum sænsku Smálandanna, á bökkum stöðuvatns sem nefnist Råsjön-, er gamalt sumarbústaðahverfi. Eitt sinn var þar fjölmenni á sumrin, fólk synti áhyggjulaust í vatninu, baðaði sig í sólinni og dvaldi úti á björtum sumarnóttum. En nú standa litlu rauðu bústaðirnir auðir og yfirgefnir, enginn kemur þangað lengur til dvalar. Nema Pernilla Stål. Hún kemur á hverju hausti til að sefa óróann sem hefur grafið um sig innra með henni frá því hún upplifði dauðsföllin þarna á unglingsaldri. En þetta haust er Pernilla ekki einsömul ...\u003cbr\u003eHrollvekjandi spennusaga þar sem skuggar fortíðar og gamlar sagnir öðlast líf.\u003cbr\u003eElín Guðmundsdóttir íslenskaði.\u003cbr\u003eÖland-sagnabálkur sænska verðlaunahöfundarins Johans Theorin hefur farið sigurför um heiminn og verið þýddur á fjölda tungumála. Bústaðirnir er sjálfstæð glæpasaga eftir Theorin, rétt eins og Hælið sem fékk frábærar viðtökur íslenskra lesenda.\u003cbr\u003e„Johan Theorin er meistari í að skapa andrúmsloft óvissu og spennu.“ Ölandsbladet\u003cbr\u003e„Í þessari bók gerir Theorin meira úr hinu yfirnáttúrulega en í fyrri bókum. Það er erfitt verk, en honum tekst að gera það á aðdáunarverðan og snjallan hátt.“ Kapprakt.se\u003c\/p\u003e","brand":"Johan Theorin","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66934265348400,"sku":"9789935331212","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/BustadirnirFRAMAN.jpg?v=1781269039","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/bustadirnir","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}