Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Tarot-kvöld 16. febrúar

9,900 ISK

Höfundur Salka

TAROT-KVÖLD SÖLKU FIMMTUDAGINN 16. FEBRÚAR

Verið velkomin á tarot-kvöld Sölku þar sem nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim. 

Innifalið í verðinu er handbók um tarot, falleg tarot-spil, léttvínsglas (eða óáfengur drykkur) og að sjálfsögðu kennslan. Pláss er fyrir 18 manns á námskeiðinu.

* þeir sem þegar eiga Tarot-bókina og spilin fá bókina Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt í staðinn *

Námskeiðið fer fram fimmtudagskvöldið 16. febrúar kl. 20 í bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík. Áætlað er að námskeiðið standi til kl. 22. 

Verið hjartanlega velkomin!