{"product_id":"dagur-i-juni","title":"Dagur í júní","description":"\u003cp\u003eVidar er kennari og lentur í öngstræti í lífinu. Hann hefur verið sendur í leyfi sakaður um brot í starfi og ver dögunum í einsemd. Þegar hann finnur gamalt símanúmer sem áður tilheyrði sumarhúsi fjölskyldunnar ákveður hann að hringja og löngu látinn faðir hans svarar, dag einn í fortíðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er óskiljanlegt. Vidar hringir aftur. Og aftur. Alltaf er sami fortíðardagurinn í sumarhúsinu og hann talar við foreldra sína, systur og sjálfan sig átta ára. Það er eitthvað við þennan dag sem hann verður að fá að vita og í gegnum símtölin kortleggur hann hverja stund þar til hann rekst á vegg; það er eyða í deginum, svarthol. En um leið sækir nútíminn að: Getur verið að hann hafi beitt barn ofbeldi? Og af hverju er líka eyða í minni hans í tengslum við atvikið í skólanum?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDagur í júní er einstaklega mögnuð og grípandi saga um það sem mótar fólk í barnæsku átakanleg frásögn um áföll og ástleysi. Sögur Alex Schulmans um börn og brotnar fjölskyldur hafa farið víða og ein þeirra, skáldsagan Eftir lifendurnir, kom út á íslensku árið 2021.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSunna Dís Másdóttir þýddi.\u003c\/p\u003e","brand":"Alex Schulman","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67394389344560,"sku":"9789979353997","price":4890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/jpv353997.jpg?v=1784819652","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/dagur-i-juni","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}