{"product_id":"dottir-dyjakongs","title":"Dóttir dýjakóngs","description":"\u003cdiv class=\"row\"\u003e\n\u003cdiv class=\"col-md-12\"\u003e\n\u003cdiv class=\"field field-name-body field-type-text-with-summary field-label-hidden\"\u003e\n\u003cdiv class=\"field-items\"\u003e\n\u003cdiv class=\"field-item even\"\u003e\n\u003cp\u003eUng kona sem búið hefur í foreldrahúsum í litlu þorpi fer alfarin að heiman því hún hefur kynnst manni. En honum fylgir eyðingarmáttur sem verður henni örlagaríkur og birtist á ný í dóttur þeirra og enn síðar dóttursyni.\u003cbr\u003eÁhrifarík skáldsaga um hve fólki reynist erfitt að tengjast og festa rætur á umbrotatímum. Í ljóðrænum myndum er stórra spurninga spurt um vald og svik, sekt og fyrirgefningu, um leitina að merkingu og skilyrðislausri ást.\u003cbr\u003eHeimir Pálsson íslenskaði og ritaði eftirmála.\u003cbr\u003eEftir útkomu þessarar bókar árið 1985 voru Birgittu Trotzig veitt Pilot-verðlaunin svonefndu. Í rökstuðningi dómnefndar sagði: Með töfrandi og seiðandi stíl sínum hefur Birgitta Trotzig víkkað mörk hins ósegjanlega  Þrjátíu og fimm ára höfundarferill hennar nær hámarki í Dóttur dýjakóngs.\u003cbr\u003eRithöfundurinn og skáldið Birgitta Trotzig (19292011) er meðal mikilvægustu rithöfunda Svíþjóðar á síðari hluta tuttugustu aldar. Hún fæddist í Gautaborg, eina barn kennarahjóna. Hún stundaði um hríð nám í bókmenntum en fór síðan að skrifa fyrir blöð og tímarit. Hún giftist listamanninum Ulf Trotzig og bjuggu þau í París á árunum 19551969. Þar snerist hún til kaþólskrar trúar. Birgitta Trotzig var margverðlaunuð fyrir bækur sínar og var kjörin í Sænsku akademíuna árið 1993. Dóttir dýjakóngs er ein þekktasta skáldsaga hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Birgitta Trotzig","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67720553267504,"sku":"9789935332141","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/ugl672.jpg?v=1788370840","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/dottir-dyjakongs","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}