{"product_id":"drengur-ad-nafni-blue-1","title":"Örlög kringum sveima","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eSagnaþættir um nafnkunnugt fólk fyrr á tíð – uppruna þess og ættartengsl, ástir og átök, vonir og vonbrigði, gleði og sorg. Hér eru raktar sögur fólks sem hvert með sínum hætti markaði spor í lífinu og skildi eftir sig litríkar minningar. Allir eiga sér sögu – og í sögum þeirra sem á undan okkur fóru leynist einnig brot af okkar eigin.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHöfundurinn fetar slóð genginna kynslóða og dregur saman brot úr lífi þeirra: uppruna, ættartengsl, búsetu, skapgerð og örlög. Smám saman raðast púslbitarnir saman og fortíðin tekur á sig skýrari mynd. Þar fléttast saman skráðar heimildir, frásagnir og minningar sem varðveist hafa frá einni kynslóð til annarrar. Úr verður litrík mynd af mannlegu lífi og ólíkum örlögum – og um leið áminning um að enginn fer um heiminn án þess að skilja eftir sig slóð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðfinna Ragnarsdóttir er jarðfræðingur frá Stokkhólmsháskóla og blaðamaður frá Journalisthögskolan í Stokkhólmi. Hún kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í nær þrjá áratugi og var ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Sagnaþætti Guðfinnu, þar sem hún lýsir lífi alþýðufólks víða um land, og minningabókina Á vori lífsins.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Guðfinna Ragnarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68342981558576,"sku":"9789935332837","price":8990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/OrlogkringumsveimaFRAMAN.jpg?v=1794396776","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/drengur-ad-nafni-blue-1","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}