{"product_id":"evropsku-jarnfakarnir","title":"Evrópsku Járnfákarnir","description":"\u003cblockquote type=\"cite\"\u003e\n\u003cdiv dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cdiv\u003eMótorhjólið hefur í meira en öld verið tákn frelsis og ævintýraþrár. Um leið endurspeglar heillandi saga þess tækniframfarir og breytta tíma. Í þessari bók er rakin saga evrópskra mótorhjóla hér á landi – frá fyrstu hjólunum sem ruddu sér leið um íslenska vegi til þeirra fjölbreyttu gerða sem síðar urðu hluti af samfélaginu. Fyrsta heimsókn til landsins á vélknúnu ökutæki átti sér stað þegar Englendingurinn L.W. Spencer þeysti um héruð á Rover-mótorhjóli árið 1913. Innflutningur hófst svo fyrir alvöru nokkrum árum síðar þegar Ísland varð fullvalda ríki og landinn flutti inn mótorhjól með tíðari ferðum fiskiskipa. Koma breska hersins hafði sín áhrif og eftir seinna stríð bárust hingað fleiri form mótorhjóla, eins og skellinöðrur og vespur ýmiss konar. Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er þekktur fyrir þekkingu sína á mótorhjólum en áhugi hans á eldri mótorhjólum kviknaði þegar hann fékk til varðveislu nokkrar sögulegar ljósmyndir frá Hilmari Lútherssyni fyrir meira en 30 árum. Hilmar lést snemma árs 2025 og tileinkar höfundur honum verkið enda sagði Hilmar alltaf „breskt er best“ þegar kom að mótorhjólum. Árið 2022 kom út bókin Ameríska goðsögnin, sem vakti mikla athygli og fékk afar góðar viðtökur. Í þessari veglegu bók beinist kastljósið að evrópsku mótorhjólunum og áhrifum þeirra á íslenska mótorhjólasögu.\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e","brand":"Njáll Gunnlaugsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67491797958960,"sku":"9789935313263","price":11190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Evropskujarnfakarnir-SagaevropskramotorhjolaaIslandi_kapa.jpg?v=1786443993","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/evropsku-jarnfakarnir","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}