{"product_id":"eyja-og-solarsteinninn","title":"Eyja og sólarsteinninn","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEyja vaknar á hverjum morgni til að hlúa að ljósinu í vitanum. Mamma hennar hefur verið í burtu lengur en nokkru sinni áður og í ljós kemur að Eyja er ekki sú eina sem saknar foreldra sinna. Allt fullorðna fólkið á Hrafnsey er horfið. Fótspor við hrygginn benda til þess að einhver hafi stigið fæti þangað sem aldrei má fara.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEyja og sólarsteinninn er ljóðræn og spennandi ævintýrasaga um vináttu, hugrekki og að rata í myrkri – jafnvel þegar ekkert ljós virðist vísa veginn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRagnheiður Harpa Leifsdóttir las allar ævintýrabækur og þjóðsögur sem til voru á skólabókasafninu hennar. Síðan hafa sögur og bækur ofið sér leið inn í líf hennar og störf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHún hefur gefið út fjölda bóka, sett upp leiksýningar og innsetningar og samið verk fyrir útvarp. Ragnheiður Harpa er ein Svikaskálda, en skáldsagan þeirra Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyja og sólarsteinninn er fyrsta barnabók hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMyndhöfundur: Þórey Þöll Hlynsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ragnheiður Harpa Leifsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68341971452208,"sku":"9789935574237","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/eyjaogsolarsteinn.webp?v=1794397917","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/eyja-og-solarsteinninn","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}