{"product_id":"ferdalag-helenu","title":"Ferðalag Helenu","description":"\u003cp\u003eÓmótstæðileg saga um ást, von og nýtt upphaf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHelena er í miðjum klíðum að undirbúa fimmtugsafmæli sitt og eiginmannsins, Fredriks, þegar hún kemst að því að hann hefur haldið framhjá henni. Veislan, sem átti að vera hátíð þeirra beggja, verður til þess að hún spyr sig spurningar sem hún hefur aldrei þorað að spyrja áður: Hver er hún þegar hún er ekki lengur eiginkona einhvers?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTil að hugsa sinn gang heldur Helena ein síns liðs í jógaferð til Kerala á Indlandi. Þar kynnist hún Miche, næmum, athugulum og heillandi Frakka. Hann hlustar og reiðist ekki þegar hún er honum ósammála. Með honum upplifir Helena ást án ótta. Samt getur hún varla fengið sig til að segja honum sannleikann – að hún sé enn gift.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndir sólinni í Kerala verður ný Helena til. En valið á milli þess sem var og þess sem gæti orðið er ekki alltaf auðvelt. Hvernig vill hún lifa lífinu það sem eftir er? Hlý og uppörvandi skáldsaga um konu sem brýtur upp upp ævilangt lífsmynstur, um ást sem krefst ekki undirgefni og hugrekkið sem þarf til að lifa í sátt við sjálfan sig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eElín Guðmundsdóttir\u003c\/strong\u003e íslenskaði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eViveca Sten\u003c\/strong\u003e er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkar hennar, Morðin í Sandhamn og Morðin í Åre, hafa slegið í gegn. Ferðalag Helenu er fyrsta ljúflestrarbókin sem Viveca Sten sendir frá sér.\u003c\/p\u003e","brand":"Viveca Sten","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67134529503536,"sku":"9789935332639","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/FerdalagHelenuFRAMAN.jpg?v=1782231770","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/ferdalag-helenu","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}