{"product_id":"fimmta-barnid","title":"Fimmta barnið","description":"\u003cp\u003eFjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harriet og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus. Harriet berst við að annast nýfætt barnið en stendur frammi fyrir myrkum og undarlegum mótþróa. Óttaslegin spyr hún sjálfa sig hvað það eiginlega sé sem hún hefur fætt í þennan heim …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRagnheiður Jónsdóttir\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eíslenskaði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁhrifarík skáldsaga eftir Nóbelsverðlaunahafann\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eDoris Lessing\u003c\/strong\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Lesið og skjálfið!“ Independent\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Það fer hrollur um mann við lesturinn en það er ómögulegt að leggja bókina frá sér … áhrifum hins undarlega og framandi barns á fjölskylduna er lýst af yfirvegun sem gerir vaxandi hryllinginn enn áhrifameiri.“ Sunday Times\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBreski rithöfundurinn\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eDoris Lessing\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e(1919–2013) hlaut margskonar viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2007. Sjö bóka hennar hafa verið þýddar á íslensku, þar á meðal\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eGrasið syngur (The Grass is Singing)\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eí þýðingu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eBirgis Sigurðssonar\u003c\/strong\u003e,\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eMinningar einnar sem eftir lifði (The Memoirs of a Survivor)\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eí þýðingu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eHjartar Pálssonar\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eÍ góðu hjónabandi (A Proper Marriage)\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eí þýðingu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eFríðu Á. Sigurðardóttur\u003c\/strong\u003e. Af öðrum rómuðum skáldsögum hennar, auk\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eFimmta barnsins\u003c\/em\u003e, má nefna\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eThe Golden Notebook\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eThe Good Terrorist\u003c\/em\u003e. Hún gaf einnig út sjálfsævisögu sína í tveimur bindum,\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eUnder My Skin\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eWalking in the Shade\u003c\/em\u003e.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eDoris Lessing\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003elést 17. nóvember 2013, 94 ára að aldri.\u003c\/p\u003e","brand":"Doris Lessing","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50960885481776,"sku":"9789935330680","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Fimmta-barnid-1288x2048.jpg?v=1773072250","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/fimmta-barnid","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}