{"product_id":"fleipur-sogur","title":"Fleipur sögur","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEr ástæða til að leiðrétta heillandi konu sem heldur að maður sé Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur? Hvað gerist þegar sóprandíva í kirkjukór gerist talibani tónlistarinnar? Hvernig þekkti jólasveinninn litla héraskinnið í kvæðinu? Óvenjulegt og bráðskemmtilegt sagnasafn.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHvernig stendur á því að Mannsi í Hvammi heldur sinni engilbjörtu sópranrödd?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessu óvenjulega og bráðskemmtilega sagnasafni stíga fram ýmsar óvæntar persónur, sumar kunnuglegar, og kveða sér hljóðs. Beinskeytt írónía er gegnumgangandi og kemur oft flatt upp á lesanda, því höfundur er fundvís á grátbroslegar aðstæður og mannlega veikleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞórunn Guðmundsdóttir hefur lengst af starfað sem söngkona og tónlistarkennari. Hún hefur skrifað fjölmörg leikrit og söngleiki auk þess sem sönglög hennar hafa verið prentuð. Á undanförnum árum hefur hún getið sér gott orð sem höfundur ópera sem hafa verið fluttar af sviðslistahópunum Animato og Hnoðra í norðri.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Þórunn Guðmundsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68220364259632,"sku":"9789935304872","price":7990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/fleipur.webp?v=1793374554","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/fleipur-sogur","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}