{"product_id":"framtidin-a-ferdinni","title":"Framtíðin á ferðinni","description":"\u003cp\u003eStelpa og strákur hittast óvænt í erlendri borg og verða ástfangin. Þau koma úr ólíkum menningarheimum og átta sig fljótt á því að þeirra bíða margar og erfiðar hindranir eigi heitar tilfinningar að dafna. Ástin er voldugt afl en nær miskunnarlaus veruleikinn að buga hana?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari hugstæðu skáldsögu tekst Þórhildur Ólafsdóttir á við áleitið efni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Sagan talar beint til nútímans þótt höfundur sviðsetji hana í Reykjavík, París og litlu þorpi á Íslandi fyrir hálfri öld. Löngu liðnum tíðaranda er lýst á næman og áhrifaríkan hátt og persónur bókarinnar verða ljóslifandi fyrir augum lesenda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eÓlöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér meðal annars skáldsögu og ljóðabók auk þýðinga á bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66516643021104,"sku":"9789935331335","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/FramtidinaferdinniFRAMAN.jpg?v=1776183436","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/framtidin-a-ferdinni","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}