{"product_id":"gleym-mer-ei","title":"Gleym mér ei","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÁ hrekkjavökukvöldi, undir stjörnubjörtum himni, er ekið á sjö ára stúlku á reiðhjóli. Bílstjórinn flýr af vettvangi og síðan er eins og jörðin gleypi hann. Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson lofar foreldrum stúlkunnar að hann muni finna þann seka, sama hvað það kosti. „Mögnuð spenna frá meistara íslensku glæpasögunnar“ \/ Gunna Dís, fjölmiðlakona\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÁrin líða og Hörður glímir við önnur krefjandi sakamál, sem og áskoranir í einkalífinu. Sambúð hans og Bíbíar er enginn dans á rósum. Jafnvel einföld fyrirmæli um að fara út í búð og kaupa kóríander reynast Herði ofviða og honum tekst á sinn einstaka hátt að klúðra einföldustu hlutum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn hann gleymir aldrei loforðinu og stúlkunni sem dó.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar tíminn virðist vera að renna út og öll sund að lokast fara þræðir loks að tengjast og myndin að skýrast.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn er það of seint?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHvaða verð greiðir sá sem flýr eigin samvisku? Eða sá sem neitar að sleppa takinu á gömlu sakamáli?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eGleym mér ei\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer fjórtánda bókin í hinni geysivinsælu glæpaseríu Stefáns Mána um sérlundaða lögreglumanninn Hörð Grímsson. Mögnuð spennusaga um samvisku, sekt og loforð sem verður að efna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hörður Grímsson er með eftirminnilegustu og skemmtilegust karakterum í íslenska glæpasagnaheiminum og þótt víðar væri leitað.“ \/ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Stefán Máni er meistari stemningar og nístandi spennu.“ \/ Óttarr Proppé, bóksali og tónlistarmaður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ég elska Hörð Grímsson, hann er dásamleg týpa.“ \/ Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Stefán Máni","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68136515305776,"sku":"9789935313805","price":7990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/gleymmerei.webp?v=1792587596","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/gleym-mer-ei","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}