{"product_id":"gonguleidir-vid-natturuperlur-islands","title":"Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eGönguleiðir við náttúruperlur Íslands hefur að geyma leiðarlýsingar hátt í 50 stuttra gönguleiða í námunda við þekkta áfangastaði í íslenskri náttúru. Oft má auðveldlega og á stuttum tíma færa sig frá fjölförnum stöðum og finna kyrrðina á göngu á fáfarnari slóðum rétt við náttúruperlur landsins. Það er á færi flestra að ganga leiðirnar í bókinni enda eru þær flestar stuttar og auðvelt er að koma þeim inn í ferðadagskrána. Leiðirnar eru fjölbreyttar og liggja um fjöll og gil, að fallegum fossum og sögulegum minjum, meðfram ám og vötnum og um fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eJónas Guðmundsson er leiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur óteljandi stundum á ferð um náttúru Íslands. Hann er höfundur þriggja metsölubóka um gönguleiðir vítt og breitt um land. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eGönguleiðir við náttúruperlur Íslands er ómissandi ferðafélagi þegar leggja skal land undir fót. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Jónas Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66915249783088,"sku":"9789935574107","price":6990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Gonguleidir-natturuperlur-Kapumynd.png?v=1780935466","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/gonguleidir-vid-natturuperlur-islands","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}