{"product_id":"hallo-min-fagra","title":"Halló mín fagra","description":"\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eWilliam Waters ólst upp á heimili sem harmleikur hafði breitt þögn yfir. Foreldrar hans gátu varla fengið sig til að líta á hann, hvað þá elska hann. Þegar hann kynnist hinni lífsglöðu og metnaðarfullu Juliu Padavano á fyrsta ári í háskóla er því eins og skyndilega birti til í kringum hann. Juliu fylgir gjörvöll fjölskylda hennar, enda eru hún og systur hennar þrjár óaðskiljanlegar. Hjá Padavano-fjölskyldunni kynnist William áður óþekktri lífsfyllingu; hvert augnablik á heimili þeirra einkennist af hlýju, ást og yndislegri óreiðu.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eEn þá skýtur myrkrið úr fortíð Williams aftur upp kollinum. Það ógnar ekki aðeins vandlega mótuðum framtíðaráformum Juliu heldur einnig þeirri órjúfanlegu tryggð sem bundið hefur systurnar saman. Afleiðingin er skelfilegur klofningur í fjölskyldunni sem markar líf hennar kynslóðum saman.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\n\u003cem\u003eHalló, mín fagra\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer afar áhrifamikil saga um það sem getur gerst þegar við veljum að elska manneskju, ekki þrátt fyrir það hver hún er, heldur einmitt vegna þess.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eIngunn Snædal íslenskaði.\u003c\/div\u003e","brand":"Ann Napolitano","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67772115419440,"sku":"9789935313829","price":5890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/hallo-min-fagra-scaled.jpg?v=1790184648","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/hallo-min-fagra","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}