{"product_id":"hardjaxlinn-ljufi-aevisaga-ola-thordar","title":"Harðjaxlinn ljúfi - ævisaga Óla Þórðar","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eMesti harðjaxl íslenskrar fótboltasögu tekur til máls! Frá fjörugri barnæsku á Neðri-Skaga, til viðureigna við bestu knattspyrnumenn heims hefur Óli Þórðar farið sínar eigin leiðir af einurð, heiðarleika og óbilandi keppnisskapi, jafnt innan vallar sem utan. „Ósvikin, beinskeytt og bráðskemmtileg saga!“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari einstöku ævisögu segir Óli frá knattspyrnuferlinum sem leikmaður og þjálfari, sigrunum, vonbrigðunum, fórnunum og því sem hefði getað orðið. Ótrúlegar sögur úr boltanum eru á hverju strái en jafnframt veitir hann einlæga og hispurslausa innsýn í líf sitt og fjölskyldu sinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSöguna auðga jafnframt litrík viðtöl við fjölmarga samferðamenn Óla.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Óli er heilsteypt manneskja og frábær karakter, skemmtilegur orðhákur og alltaf rífandi kjaft.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsmaður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Uppgjöf og aumingjaskapur eru ekki til í orðabók Óla Þórðar. En örfá blótsyrði!“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Það er langt síðan ég hef haft jafngaman að ævisögu íþróttamanns. Ég hló stundum upphátt, t.d. þegar Óla þótti nóg um „óhemjuskapinn“ hjá konu sinni á fæðingardeildinni og fór að líkja sársaukanum við barnsburðinn við einhver fótameiðsli sem hann spilaði í gegnum! Kannski líkaði mér bókin líka svona vel vegna þess að ég hef alltaf borið ótakmarkaða virðingu fyrir dugnaði. Og af honum var nóg hjá Óla og hans ætt. Líklega fullmikið. Síðan er bókin einhvern veginn sönn. Sýnir Óla vissulega sem harðjaxl, sem hann var, en samt ber öllum saman um gott hjartalag hans.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓlafur Garðarsson hrl. og umboðsmaður knattspyrnumanna\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cblockquote class=\"medium citation\"\u003e\n\u003cp\u003e„Óli Þórðar er heilsteypt manneskja og frábær karakter, skemmtilegur orðhákur og alltaf rífandi kjaft!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“\u003c\/p\u003e\n\u003ccite\u003eGuðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsmaður\u003c\/cite\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003cblockquote class=\"medium citation\"\u003e\n\u003cp\u003e„Uppgjöf og aumingjaskapur er ekki til í hans orðabók. En örfá blótsyrði!“\u003c\/p\u003e\n\u003ccite\u003eÞorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður\u003c\/cite\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003cblockquote class=\"medium citation\"\u003e\n\u003cp\u003e„Það er langt síðan ég hef haft jafngaman að ævisögu íþróttamanns. Ég hló stundum upphátt, eins og þegar Óla þótti nóg um „óhemjuskapinn“ hjá konu sinni á fæðingardeildinni og fór að líkja sársaukanum við barnsburðinn við einhver fótameiðsli sem hann spilaði í gegnum! Kannski líkaði mér bókin líka svona vel vegna þess að ég hef alltaf borið ótakmarkaða virðingu fyrir dugnaði og af honum var nóg hjá Óla og hans ætt. Bókin sýnir Óla vissulega sem harðjaxl en samt ber öllum saman um gott hjartalag hans.“\u003c\/p\u003e\n\u003ccite\u003eÓlafur Garðarsson, hrl. og umboðsmaður knattspyrnumanna\u003c\/cite\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e","brand":"Hjörtur J. Hjartarson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68278482043184,"sku":"9789935313799","price":8290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/hardjaxl.webp?v=1794399036","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/hardjaxlinn-ljufi-aevisaga-ola-thordar","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}