{"product_id":"heimilishjalpin-leyndarmalid","title":"Heimilishjálpin leyndarmálið","description":"\u003cblockquote\u003e\n\u003cp\u003e \u003cb\u003e„Ekki fara inn í gestaherbergið.“ Skuggi fellur á andlit Douglas Garrick þegar hann snertir hurðina með fingurgómunum. „Konan mín… hún er mjög veik.“ Þegar hann heldur áfram að sýna mér þakíbúðina þeirra hef ég hræðilega tilfinningu fyrir konunni á bak við luktar dyrnar. En ég get ekki átt á hættu að missa þetta starf – ekki ef ég vil halda myrkasta leyndarmálinu mínu öruggu … \u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað er erfitt að finna vinnuveitanda sem spyr ekki of margra spurninga um fortíð mína. Svo ég þakka mínu sæla fyrir að Garrick-hjónin hafa ráðið mig í vinnu við að þrífa glæsilegu þakíbúðina sína og útbúa máltíðir handa þeim. Ég get unnið hérna um tíma, verið róleg þar til ég fæ það sem ég vil.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er næstum því fullkomið. En ég hef enn ekki hitt frú Garrick, eða séð inni í gestaherberginu. Ég er viss um að ég heyri hana gráta. Ég tek eftir blóðblettum í kraganum á hvíta náttsloppnum hennar þegar ég þvæ þvottinn. Einn daginn get ég ekki annað en bankað á dyrnar. Þegar þær opnast og ég sé hvað herbergið geymir breytist allt …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg lofa sjálfri mér. Ég hef gert þetta áður. Ég get verndað frú Garrick á meðan ég geymi mín eigin leyndarmál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eDouglas Garrick hefur gengið of langt. Hann fær að borga fyrir hegðun sína. Þetta er einfaldlega spurning um hversu langt ég er tilbúin að ganga … \u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003cp\u003eÞessi bók er alger sprengja! Átakanlega snúið (en sjálfstætt) framhald af alþjóðlegu metsölubókinni\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eHeimilishjálpin\u003c\/em\u003e, sem kom áður út undir nafninu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eUndir yfirborðinu\u003c\/em\u003e.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eHeimilishjálpin: Leyndarmálið\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003emun halda þér á hlaupum í gegnum blaðsíðurnar langt fram á nótt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin kom áður út undir nafninu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eÞað sem þernan sér\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Freida McFadden","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66931184501040,"sku":"9789935563422","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/02_Heimilishjalpin_Leyndarmalid_KAPA_NYTT_FRONT.jpg?v=1781270388","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/heimilishjalpin-leyndarmalid","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}