{"product_id":"hus-andanna","title":"Hús andanna","description":"\u003ch1\u003eHús andanna\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003eHeillandi og stórbrotin ættarsaga þar sem litríkar persónur, lífs og liðnar, taka þræði örlaganna í eigin hendur og missa þá á víxl. Clara del Valle, Esteban Trueba, afkomendur þeirra, tengdafólk og nágrannar verða ljóslifandi í leiftrandi skemmtilegri frásögn sem markast af ósviknu suðuramerísku töfraraunsæi. Í þessari undraverðu sagnaveröld eru ættarstolt, yfirskilvitlegir eiginleikar og holdlegar ástríður ráðandi öfl í lífi fólksins sem tekst á við umrót og átök í landi sínu á viðsjárverðum tímum; saga fjölskyldunnar verður þjóðarsaga, fortíðin endurómar í nútíðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin birtist fyrst á spænsku 1982, vakti strax mikla athygli, vann til fjölda verðlauna og var fljótlega þýdd á tugi tungumála. Rómuð íslensk þýðing Thors Vilhjálmssonar kom fyrst út 1987. Isabel Allende er fædd í Chile 1942 en hraktist í útlegð við valdarán hersins 1973 þegar föðurbróðir hennar, Salvador Allende forseti, var myrtur. Hún býr nú í Kaliforníu. Hús andanna var fyrsta skáldsaga hennar og sú sem náð hefur langmestri hylli og útbreiðslu. Sagan var kvikmynduð 1993.\u003c\/p\u003e","brand":"Isabel Allende","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66838356558128,"sku":"9789979535430","price":2590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Hus_andanna.jpg?v=1779384057","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/hus-andanna","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}