Kökugleði Evu
6,990 ISK 2,999 ISK
Höfundur Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Kökugleði Evu hefur að geyma uppskriftir að rúmlega 80 ljúffengum kökum af öllum stærðum og gerðum. Í þessari girnilegu bók má finna kökur fyrir öll tilefni, allt frá smábitakökum að brúðartertum. Öruggt er að veisluborðin munu hreinlega svigna hjá eigendum bókarinnar!
Eva Laufey er annálaður sælkeri og mikil kökukerling, eins og hún orðar það sjálf. Uppskriftirnar í bókinni eru fjölbreyttar, afar aðgengilegar og það er á allra færi að töfra fram dýrðlegu kræsingarnar í henni.
Bókina prýða glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson.
Bollakökur - Súkkulaðikökur - Osta- og skyrkökur - Uppáhaldskökurnar mínar - Tilefniskökur - Bökur og pæ - Smábitakökur og gómsætir bitar
Útgáfuár: 2016
Gerð: Innbundin
Síðufjöldi: 200