{"product_id":"koreustridid-1950-1954","title":"Kóreustríðið: 1950-1953","description":"\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003csection id=\"book_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eHinn 25. júní 1950 hófust ein blóðugustu stríðsátök 20. aldar þegar kommúnistastjórnin í Norður-Kórea réðst inn í Suður-Kóreu. Rauða-Kína og Sovétríkin studdu Norður-Kóreu gegn fjölþjóðlegu herliði lýðræðisþjóða sem barðist undir fána Sameinuðu þjóðanna. Í þrjú ár rambaði heimsbyggðin á barmi þriðju heimsstyrjaldar.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e\n\u003csection id=\"book_long_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eGrimmilegur hernaðurinn varðaði veginn að síðari hernaðarátökum kalda stríðsins í Víetnam og Kambódíu. Áhrifin urðu meðal annars þau að bandarískt herlið sneri aftur til Íslands 1951 eftir nokkurra missera fjarveru frá lokum síðari heimsstyrjaldar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eÍ þessari mögnuðu bók dregur Max Hastings upp eftirminnilega mynd af því hvernig þátttakendur í Kóreustríðinu, jafnt hermenn sem óbreyttir borgarar og stjórnmálamenn, upplifðu átökin og gerir glögga grein fyrir uppruna þeirra, framvindu og afleiðingum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eGlæsileg og hrífandi bók sem hlýtur að teljast – jafnvel miðað við þann háa mælikvarða sem Max Hastings hefur sett – meistaraverk.“ – Michael Howard prófessor\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Glæsilegt afreksverk – tour-de-force.“ ― Times Literary Supplement\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Besta sagnfræðiverkið um átökin í Kóreu.“ – Guardian\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Framúrskarandi og afar læsilegt sagnfræðiverk eftir meistarann á þessu sviði.“ – Daily Mail\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Með þessari bók skipar Max Hastings sér í fremstu röð sagnfræðinga sem fjalla um hernaðarsögu.“ – New York Times\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Sanngjarnt og djúpviturt uppgjör.“ – Kirkus Review\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Það tekur enginn Max Hastings fram í hernaðarsagnfræði.“ – Stephen E. Ambrose prófessor\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e„Fyrsta flokks bók eftir frábæran sagnfræðing.“ – Time\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eMax Hastings er einn þekktasti blaðamaður og rithöfundur Bretlands. Hann ritstýrði um langt skeið dagblöðunum Evening Standard og Daily Telegraph. Hann gat sér fyrst orð fyrir blaðamennsku sína með skrifum frá átakasvæðum víða um heim. Hann er höfundur hátt í þrjátíu bóka og fjalla flestar þeirra um stríðsátök. Hann hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir bækur sínar og blaðamennsku og er félagi í Royal Society of Literature, heiðursfélagi King's College í London og var aðlaður árið 2002.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/section\u003e","brand":"Max Hastings","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67873286881584,"sku":"9789935330642","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/nsibg6co4wk1rnoejr3bvgt4c0m3.jpg?v=1667927862","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/koreustridid-1950-1954","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}