{"product_id":"kvenskorungar-a-grand-hotel","title":"Kvenskörungar á Grand hótel","description":"\u003cdiv\u003eÁ Grand Hôtel í hjarta Stokkhólms fléttast saman líf, draumar og örlög kvenna sem neita að láta sér segjast þegar kemur að því að taka pláss. \u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e1901. Hótelið stendur á tímamótum – og það gera konurnar sem þar starfa líka. Þær eiga allar sína ólíku fortíð en eiga það sameiginlegt að vilja skapa sér framtíð í heimi sem er ekki endilega tilbúinn að gefa þeim tækifæri. Hin unga Ottilia fær starf á hótelinu og skilur fjölskyldu sína eftir í sveitinni full vonar um nýtt líf. En á bak við glæsileikann og lúxusinn reynist grimmur veruleiki: hótelið er gjaldþrota. Til að snúa stöðunni við er Wilhelmina Skogh skipuð framkvæmdastjóri. Þegar karlarnir á hótelinu gera uppreisn gegn nýja yfirmanninum bregður Wilhelmina á það ráð að velja saman hóp kvenna til að halda hótelinu opnu. Saman takast þær á við ástir, svik og samfélagslegar skorður en þegar leyndarmál fortíðarinnar koma upp á yfirborðið reynir á traustið og hverju þær eru tilbúnar að fórna. \u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eKvenskörungar á Grand Hôtel er fyrsta bókin í grípandi og rómantískum bókaflokki Ruth Kvarnström-Jones sem hefur farið sigurför um öll Norðurlönd og víða í Evrópu. \u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eValgerður Bjarnadóttir þýddi\u003c\/div\u003e","brand":"Ruth Kvarnström-Jones","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67000581652784,"sku":"9789935323408","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Kvenskorungar.png?v=1781628845","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/kvenskorungar-a-grand-hotel","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}