{"product_id":"landamaeralaus","title":"Landamæralaus","description":"\u003cp\u003eYfirgefin bifreið við vegkant hverfur hægt sjónum eftir því sem fannfergið eykst. Inni í bílnum er svar við flókinni morðgátu sem enn er óleyst.\u003cbr\u003eHópur fólks hefur tekið sig saman á netinu um að vinna saman að því að leysa óleyst sakamál. Stjórnandi hópsins hefur samband við Wisting lögregluforingja vegna rannsóknar á morði á áströlskum bakpokaferðalanga í Noregi. Einn virkasti meðlimur hópsins, Astria, kveðst vera norsk. Þegar hún skýrir frá því að hún sé við það að leysa málið, hverfur hún af netinu og enginn í hópnum hefur heyrt frá henni síðan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁn þess að ætla sér það laðast Wisting að þessari óhefðbundnu rannsókn. En vísbendingarnar reynast margar og óljóst hvert þær leiða …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilnefning til Petrona-verðlaunanna sem besta norræna glæpasagan í Bretlandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMetsöluhöfundurinn\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eJørn Lier Horst\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e(1970) var háttsettur rannsóknalögreglumaður í Noregi en frá 2023 hefur hann einvörðungu sinnt ritstörfum. Bækur hans um William Wisting hafa selst í milljónum eintaka. Þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og vinsælar sjónvarpsþáttaraðir hafa verið gerðar eftir þeim.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMagnús Þór Hafsteinsson\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eíslenskaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Jørn Lier Horst","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50960555770160,"sku":"9789935331168","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Landamaeralaus.jpg?v=1773071598","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/landamaeralaus","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}