{"product_id":"lesbiur-oskast","title":"Lesbíur óskast","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu sem er í rúst. Hún kann ekki að elda, hefur ekki efni á víni með matnum og efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu. Svo kann hún ekkert að tala við lesbíur.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÍ bókinni fylgjum við Hlín í gegnum skrautlegt matarboð þar sem hún mátar sig við lesbíuheiminn og horfist í augu við eigin fordóma. Í framhaldinu reynir hún að koma lífi sínu á réttan kjöl og skoðar fortíð sína út frá nýju sjónarhorni.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHingað til hefur Hlín lifað samkvæmt hinu gagnkynhneigða viðmiði án þess að hugsa út í hvað hún raunverulega vill. Núna stendur hún frammi fyrir nýjum áskorunum og þarf að læra að hlusta á sjálfa sig. Samhliða því sem Hlín skoðar fortíð sína og fyrri sambönd sekkur hún dýpra og dýpra, heimsmynd hennar hrynur, kvíðinn tekur yfir og skömmin flýtur upp á yfirborðið.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Elísabet Thoroddsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68200131690800,"sku":"9789935579690","price":7790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/lesbiuroskast.webp?v=1793199092","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/lesbiur-oskast","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}