{"product_id":"leyndardomur-blau-lestarinnar","title":"Leyndardómur bláu lestarinnar","description":"\u003cdiv\u003eBelgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eÍ lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eSögur fara á kreik um að ókunnugur maður hafi verið á sveimi í lestinni. Það er allt og sumt sem Poirot hefur að byggja á.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eSmám saman kemur í ljós ótrúlegur vefur blekkinga og leyndarmála sem Poirot þarf að greiða úr til að afhjúpa morðingjann.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e„Sérstaklega áhugaverð spennusaga í klassískum anda.“ New York Herald Tribune\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e„Agatha Christie er ódauðleg.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cstrong\u003eAgatha Christie\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e(1890–1976) er vinsælasti skáldsagnahöfundur allra tíma. Aðeins Biblían og verk Shakespeares hafa selst í fleiri eintökum á heimsvísu en bækur Agöthu Christie. Meira en milljarður eintaka hefur selst af bókum hennar á ensku og annar milljarður til í þýðingum á um eitt hundrað tungumál.\u003c\/div\u003e","brand":"Agatha Christie","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50960728686896,"sku":"9789935217844","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Leyndardomur-blau-lestarinnar.jpg?v=1773071766","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/leyndardomur-blau-lestarinnar","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}