{"product_id":"litlar-konur-1","title":"Litlar konur","description":"\u003cp\u003e\u003cem\u003eLitlar konur (Little Women)\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eeftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinstaklega hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLouisa May Alcott (1832–1888) var þekktur feministi á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eLitlar konur\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Þegar hún var spurð að því af hverju hún hefði aldrei gengið í hjónaband gaf hún þá skýringu að hún hefði orðið ástfangin af fjölmörgum fallegum stúlkum en aldrei haft snefil af áhuga á körlum. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.\u003c\/p\u003e","brand":"Louisa May Alcott","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50960951214384,"sku":"9789935331151","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Litlar_konur.jpg?v=1773072854","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/litlar-konur-1","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}