{"product_id":"milli-himins-og-her","title":"Milli himins og hér","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cstrong\u003eLjúflestrarbók ársins 2025 í Svíþjóð\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eUm bókina\u003c\/h2\u003e\n\u003cdiv\u003eEftir átta mánuði verður Majlis loksins dáin.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eLoksins er kannski óviðeigandi orðaval. Því í rauninni vill Majlis alls ekki deyja. Allra síst núna þegar Ronja dóttir hennar á von á barni og hún er að verða amma í fyrsta sinn. Nei, það var alls ekki svona sem hún hafði séð fyrir sér ævilokin. En þannig verður það að vera. Þegar Ronja hringir, stuttu eftir fæðingu dóttur sinnar, og ­segir að hún hafi hent svikulum eiginmanni sínum út breytist allt. Majlis ákveður að flytja inn til Ronju í Stokkhólmi og yfirgefa skóga Norður-Svíþjóðar þar sem hún hefur búið allt sitt líf. En hvernig á hún að fá dóttur sína til að sætta sig við hina örlagaríku ákvörðun sem hún hefur tekið? Og hvað gerist ef endalokin verða allt önnur en Majlis ímyndar sér?\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eMilli himins og hér er ljúf og hjartnæm skáldsaga um það sem við höfum ekki stjórn á í lífinu – og það sem verður stundum á vegi okkar þegar við eigum síst von á því. En þetta er líka saga um listina að taka lífinu opnum örmum, jafnvel þegar það tekur á sig óvænta mynd. Því stundum er það einmitt þegar við höldum að sögunni sé lokið sem allt byrjar. Milli himins og hér hefur slegið í gegn í heimalandinu Svíþjóð, hlotið fjölda viðurkenninga og fer nú sigurför um heiminn. \u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eFriðrika Benónýsdóttir íslenskaði.\u003c\/div\u003e","brand":"Cassandra Brunstedt","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67150790295856,"sku":"9789935313591","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/millihiminsogher.jpg?v=1782492003","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/milli-himins-og-her","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}