{"product_id":"old-imyndunaraflsins","title":"Öld ímyndunaraflsins","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag – geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af smitandi eldmóði, skynsemi og þekkingu. Um leið og hann reifar djúptæk áhrif tæknibyltinga síðustu áratuga á samfélagið og deilir persónulegri reynslu leitast hann við að skýra hvers vegna gervigreind er annað og meira en tækninýjung. \u003ci\u003eÖld ímyndunaraflsins\u003c\/i\u003e er óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eBergur Ebbi er verðlaunaður höfundur sem hefur með skrifum sínum, uppistandi og fyrirlestrum skipað sér í hóp fremstu samfélagsgreinenda okkar og ræðst hér til atlögu við heitasta málefni líðandi stundar. Áður hefur hann fengist við að kryfja samtímann í tveimur bókum, \u003ci\u003eStofuhita\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eSkjáskoti\u003c\/i\u003e, sem báðar vöktu mikla athygli.\u003c\/div\u003e","brand":"Bergur Ebbi","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67724451184944,"sku":"9789979355489","price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Old_imyndunaraflsins_72pt.jpg?v=1788533267","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/old-imyndunaraflsins","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}