{"product_id":"raektadu-gardinn-thinn","title":"Ræktaðu garðinn þinn","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLitrík blóm og angandi kryddjurtir\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞað er einstök tilfinning að gróðursetja plöntur og lauka eða sá fræjum og fylgjast með lífinu taka við sér. Garðyrkja er ekki aðeins leið til að fegra umhverfið eða rækta sér til matar – hún skapar einnig kyrrð, tengingu og gleði í amstri dagsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Ræktaðu garðinn þinn leiðir Vilmundur Hansen lesendur inn í heim sumarblóma, kryddjurta og lauka og sýnir hvernig þessar plöntur þrífast best í heimagörðum. Hann fjallar um val á plöntum, gróðursetningu og umhirðu og útskýrir hvaða aðstæður henta best í íslenskri veðráttu. Hér mætast fegurð og nytjar – vinsælar tegundir jafnt sem áhugaverðar plöntur sem vert er að gefa gaum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er jafnt ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem hafa lengi haft fingurna í moldinni. Með skýrum og aðgengilegum leiðbeiningum sýnir Vilmundur að ræktun þarf hvorki að vera flókin né fullkomin – hún byrjar einfaldlega á því að gefa sér tíma, vinna með árstíðunum og leyfa garðinum að fylgja sínum takti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVilmundur Hansen er garðyrkju- og grasafræðingur sem hefur um árabil miðlað þekkingu sinni í bókum og fjölmiðlum. Von hans er að bókin veiti lesendum innblástur og sjálfstraust – og auki ánægju­stundir í garðinum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Vilmundur Hansen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66529407861040,"sku":"9789935313485","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/RAEKTADU-GARDINN-ThINN.jpg?v=1776260689","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/raektadu-gardinn-thinn","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}