{"product_id":"sagan-min-sagan-hennar","title":"Sagan mín, sagan hennar","description":"\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eHvað gerir móðir þegar hún getur ekki bjargað barninu sínu?\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eRósella Mosty hefur lifað margt. Hún missti föður sinn ung að árum, flutti úr landi, byggði upp fjölskyldu, eignaðist börn og barnabörn og taldi sig hafa kynnst bæði gleði og sorg. En ekkert gat búið hana undir það þegar elsta dóttir hennar, Ester Eva, veiktist skyndilega alvarlega aðeins nokkrum mánuðum eftir fæðingu yngri sonar síns. Fljótlega tók við barátta sem engin fjölskylda óskar sér.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eÍ þessari áhrifamiklu sjálfsævisögu leiðir Rósella lesandann inn í heim þar sem von og ótti takast á hvern dag. Hún segir af biðinni eftir svörum, erfiðum ákvörðunum, ástinni sem heldur fólki uppi þegar allt virðist hrynja og þeirri reynslu að standa við hlið barns síns þegar ekkert skiptir lengur máli nema dagurinn í dag.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eEn þetta er ekki aðeins saga um missi. Þetta er líka saga fjölskyldu, skilyrðislausan kærleika, seiglu og þær minningar sem verða dýrmætastar þegar lífið umturnast. Sagan mín, sagan hennar er einlæg og átakanleg frásögn um veruleika sem ekkert foreldri vill þurfa að horfast í augu við – og sýnir um leið þann styrk sem getur sprottið af dýpstu sorg.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\"\u003eSr. Vigfús Bjarni Albertsson ritar formála.\u003c\/div\u003e","brand":"Rósella Mosty","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67767040278832,"sku":"9789935313713","price":7690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Sagan-min-sagan-hennar-frasogn-af-lifi-afollum-og-sorg_kapa-scaled.jpg?v=1789123594","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/sagan-min-sagan-hennar","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}