{"product_id":"samningataekni-aritad-eintak","title":"Samningatækni","description":"\u003cp\u003eSamningaviðræður eru hluti af daglegu lífi fólks, hvort sem er í starfi, vegna persónulegra fjármála eða í samskiptum við fjölskyldu og vini. Í þessari bók gefur Aðalsteinn Leifsson hagnýtar ráðleggingar sem byggja á rannsóknum til að hjálpa þér að ná árangri hvort sem þú semur fyrir þig, fjölskylduna eða fyrirtækið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSamningatækni fjallar um hvernig þú getur staðið á þínu þegar tekist er á um eitt atriði eins og verð, hvernig best er stýra viðræðum frá átökum og byggja upp traust og samstarf og hvernig þú getur undirbúið þig og náð árangri í krefjandi aðstæðum. Í bókinni er fjöldi raunverulegra dæma, verkefni sem lesendur geta spreytt sig á og hagnýt ráð fyrir mikilvægar samningaviðræður sem allir standa frammi fyrir á lífsleiðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eRáð Aðalsteins hafa reynst mér ómetanleg; enda hefur hann algera yfirburðaþekkingu á samningaviðræðum og samningagerð. Ég hrífst sérstaklega af áherslu hans á árangur og að auka traust og ná sátt; jafnvel í erfiðum kringumstæðum.\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eBogi Þór Siguroddsson, athafnamaður\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eSamningatæknin sem ég lærði hjá Aðalsteini hefur nýst mér mjög vel, ekki bara í starfi heldur einnig í lífinu sjálfu. Ég fagna þessari bók innilega og á eftir að nota hana mikið og ekki spillir fyrir að hún er afskaplega skemmtileg!\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJóhanna Vigdís Arnardóttir, leikkona og verkefnastjóri\u003c\/p\u003e\n\u003cbr\u003e\n\u003cp\u003eAðalsteinn Leifsson er lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hann hefur kennt samningatækni við góðan orðstír til fjölda ára. Aðalsteinn hefur veitt ráðgjöf og þjálfað stjórnendur og starfsmenn fjölmargra fyrirtækja bæði hér á landi og erlendis í samningatækni.\u003c\/p\u003e","brand":"Aðalsteinn Leifsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":15092789280837,"sku":"9789935483577","price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/products\/samningataekni_net_abb2721b-ab97-4ddd-aa18-e0fec22f851e.jpg?v=1538388797","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/samningataekni-aritad-eintak","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}