{"product_id":"sigurdur-hansen-i-kakalaskala-nokkur-aevintyri-ur-lifi","title":"Sigurður Hansen í Kakalaskála - Nokkur ævintýri úr lífi","description":"\u003cdiv class=\"book-description mb-5 bt-5 overflow-hidden\"\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eSigurður Hansen í Kringlumýri í Skagafirði er orðinn hálfgerð goðsögn í lifanda lífi. Á efri árum sviðsetti hann Haugsnesbardaga, mannskæðustu átök Íslandssögunnar, í túnfætinum heima með yfir þúsund grjóthnullungum – og opnaði síðan menningarsetur tengt Sturlungu í stórum skála sem áður hýsti minkarækt. En hver er Sigurður Hansen?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHér fljúga vísur, hér er Siggi nánast farinn fram af þverhnípi á ýtu í blindbyl, hann bjargast naumlega eftir að hafa steypst niður laxastiga, hér segir af smalamennsku í Austurdal í Skagafirði, íslenskum hestum og hreindýrum í Lapplandi, það er dreypt á Kakala „sem mér tekst einhvernveginn stundum að verða mér úti um …“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinar Kárason skrifar sögu Sigurðar Hansen af alkunnri sagnagleði. Þótt Einar sé Reykvíkingur af vestfirskum ættum finnst honum að leiðarlokum „líka vera kominn vottur af Skagfirðingi í sálina.“\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003caside id=\"book-binding-types\" aria-labelledby=\"book-binding-types-heading\"\u003e\u003c\/aside\u003e","brand":"Einar Kárason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68342838559024,"sku":"9789935304902","price":8690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/SiggiHansen_FRONT.jpg?v=1794397557","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/sigurdur-hansen-i-kakalaskala-nokkur-aevintyri-ur-lifi","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}