{"product_id":"skadraedisskepnur-einu-sinni-var","title":"Skaðræðisskepnur - Einu sinni var ...","description":"\u003cdiv\u003eÞegar Gunnar lendir enn einu sinni í vandræðum í skólanum ákveða foreldrar hans að senda hann í sveit. Á bænum Steini býr stórskrýtin fjölskylda ásamt óþolandi ketti og beljum sem virðast aldrei ætla að hætta að skíta. En eitthvað leynist í sveitinni. Eitthvað óhugnanlegt og hættulegt sem felur sig í hrauninu og skilur eftir sig risastór fótspor ...\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003ci\u003eSkaðræðisskepnur – Einu sinni var …\u003c\/i\u003e er fyrsta bókin í nýjum og æsispennandi bókaflokki, listilega myndlýst af Bergrúnu Öddu Pálsdóttur.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003eÆvar Þór Benediktsson er einn allra vinsælasti rithöfundur landsins.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eSkaðræðisskepnur\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003eer fertugasta bókin hans en fyrir verk sín hefur Ævar fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga, nú síðast Íslensku bókmenntaverðlaunin og tilnefningu til bæði Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Bókaverðlauna barnanna fyrir metsölubókina\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eSkólastjórann\u003c\/i\u003e.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er prentuð með sérstöku lesblinduletri.\u003c\/div\u003e","brand":"Ævar Þór Benediktsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66838371369264,"sku":"9789979354192","price":4890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Skadraedisskepnur.jpg?v=1779385445","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/skadraedisskepnur-einu-sinni-var","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}