{"product_id":"thar-sem-hafid-glitrar","title":"Þar sem hafið glitrar","description":"\u003cdiv\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eÁrið 1941 stigmagnast seinni heimsstyrjöldin og Evrópa brennur. Í skerjagarðssælunni í Arkösund er hins vegar allt nánast eins og það á að sér að vera. En ekki fyrir alla. Þegar Margareta, dóttir verksmiðjueiganda, hittir gyðinginn Henry umturnast líf þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eÁrið 2024 stendur hjúkrunarfræðingurinn Lilly á krossgötum. Eftir að hafa lent í svikum og glímt við veikindi vegna kulnunar ákveður hún að snúa ekki aftur á gamla vinnustaðinn. Í tómarúminu fær hún sér sumarstarf á elliheimilinu Unaðsreit í Arkösund. Vinnan og samstarfs­fólkið valda djúpstæðri breytingu á Lilly og hægt og rólega finnur hún sjálfa sig aftur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eÁ sama tíma skapast sönn vinátta milli hennar og ­hinnar dularfullu Margaretu sem dvelur á elliheimilinu. For­tíðin ásækir gömlu konuna og Lilly dregst inn í stórbrotið ævin­týri sem teygir sig aftur til stríðsáranna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eÞar sem hafið glitrar er sjálfstætt framhald af hinni vinsælu bók \u003cem\u003eÞar sem villtu blómin vaxa\u003c\/em\u003e eftir \u003cstrong\u003eLouise Strömberg\u003c\/strong\u003e í Skerjagarðs-seríunni. Grípandi skáldsaga um hvernig djúp vinátta getur kviknað þegar síst skyldi og hvernig ástin getur breytt öllu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003e\u003cstrong\u003eLouise Strömberg\u003c\/strong\u003e er markþjálfi, jógakennari og rithöfundur. Hennar leiðarljós er að leiðbeina fólki um að lifa í sjálfbærni og af hjartans lyst – það gerir hún í gegnum bækur, instagram-síðu sína, fyrirlestra og jógatíma.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\"\u003e\u003cem\u003e„Dásamlegur ljúflestur í anda Lucindu Riley“\u003c\/em\u003e \/ Nordin\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\"\u003e\u003cem\u003e„Mikilvæg bók sem snertir hjartað“\u003c\/em\u003e \/ Bonniers Bokklub\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"x_MsoNormal\"\u003e\u003cstrong\u003eUrður Snædal\u003c\/strong\u003e íslenskaði\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Louise Strömberg","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50576602530096,"sku":"9789935313362","price":4690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/THar-sem-hafid-glitrar.jpg?v=1770048498","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/thar-sem-hafid-glitrar","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}